Bændablaðið - 12.04.2018, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018
Hafsteinn Hafliðason er mörgum
garðeigendum og öðru áhugafólki
um plöntur að góðu kunnur. Hann
hefur á starfsferli sínum getið sér
gott orð sem garðyrkjufræðingur
og alþýðufræðari um ræktun
plantna og umhirðu.
Fyrir fáeinum árum skrifaði hann
lipra og lærða pistla í Bændablaðið
um plöntur og oft með áhugaverðu
þjóðfræðilegu ívafi út frá þeim.
Hann er að mestu sestur í helgan
stein í Þingborg í Flóa og dundar
sér þar við ýmsa dægradvöl; sýsl
og tilraunir í eigin bakgarði, auk
þess sem hann er nokkuð iðinn við
að uppfræða alþýðuna á Facebook-
síðunni Ræktaðu garðinn þinn.
Garðyrkja engin afgangsstærð
í uppvextinum
„Ég er náttúrlega alinn upp við
garðyrkju meira og minna,“ segir
Hafsteinn um ræturnar að áhuga
hans á plöntum. „Garðyrkja var
engin afgangsstærð. Ég er fæddur
á Ísafirði og alinn upp í Djúpinu, í
Vigur, meðal annars hjá stjúpömmu
minni, Björgu Björnsdóttur, sem
var mikil ræktunarkona. Hún var
á lífrænu línunni, vildi ekki nota
tilbúinn áburð, en notaði kúamykjuna
á rófurnar, sauðatað á kartöflurnar og
hrossatað á rabarbarann – ef hrossin
skildu eitthvað eftir í hesthúsunum.
En þau voru nú oftast úti við.
Hún var vel lesin og verseruð í
fræðunum, enda var systir hennar,
Guðrún Björnsdóttir, menntaður
garðyrkjufræðingur.
Svo varð pabbi auðvitað
garðyrkjumaður frá Garðyrkju-
skólanum, útskrifaður 1944. Hann var
garðyrkjustjóri í Reykjavík í ein 30 ár.
Ég var ekkert mikið að snuddast með
með honum fyrr en ég var kominn
yfir fermingu – enda tíðkuðust ekki
þessar pabbahelgar þá.“
Almennilegt þjóðlíf þrífst bara í
ræktuðu landi
„Ég var næmur ungur piltur með
áhuga á mannkyninu. Það þrífst
ekkert almennilegt þjóðlíf nema í
ræktuðu landi þannig að ég var fljótur
að tengja þar á milli. Annars konar
þjóðlíf er bara villimennska, eða
hjarðmennska eins og hefur reyndar
tíðkast hér á Íslandi alla tíð.
Mér finnst miklu máli skipta að
fólk stundi það að rækta gróður; hvort
sem það er tré, gras eða matjurtir til
dæmis. Það verður engin menning
án ræktunar. Í okkar máli aðskiljum
við reyndar ræktun og menningu, en í
mörgum öðrum löndum er þetta bara
eitt orð – kúltúr,“ segir Hafsteinn.
Lærði að sinna herragarði
í Svíþjóð
Hafsteinn fór til Svíþjóðar til að læra
garðyrkjufræðin. „Þar snerist námið
um það að nemendurnir gætu sinnt
herragarði í einu og öllu; hvort sem
það var að skipuleggja garða, fella
eða gróðursetja tré, fjölga trjám og
sinna garðplöntum – hvort sem það
voru skrautplöntur eða matjurtir.
Svo þurfti maður að kunna allt um
pottaplöntur og híbýlaprýði; geta gert
blómaskreytingar og annað slíkt.
Ég kom svo heim og kláraði
sveinsprófið – en það voru reyndar
engar löggildingar þá. Ég starfaði
stutt við garðyrkjuna eftir prófið
en fór að vinna í gestamóttöku á
hóteli í fjögur ár. Ég fór svo aftur til
Svíþjóðar og starfaði síðan mikið í
svokölluðum garðmiðstöðvum, bæði
úti í Svíþjóð en einnig hér heima, eins
og í Blómavali.“
Miðlun á garðyrkjufróðleik
Meðfram sölu mennskunni og
ráðgjöfinni miðlaði Hafsteinn
garðyrkjuefni í gegnum ýmsa
fjölmiðla. „Þegar ég hef fjallað um
garðyrkju þá reyni ég að gera það á
skemmtilegan hátt líka – og þannig
að ég hafi gaman af því – fyrir utan að
gera það skilmerkilega. Markmiðið
er þá að reyna að koma öðrum á
bragðið, enda hef ég lengst af verið
tengdur sölumennsku á garðplöntum
og upplýsingamiðlun. Þetta helst í
hendur. Þú getur varla selt vöruna
nema kúnninn þekki hana að
einhverju leyti.
Í slíkum garð miðstöðvum þurfa
alltaf að vera starfsmenn sem kunna
á vörurnar, sem geta leiðbeint um það
hvað henti á hverjum stað og hvernig
eigi að hirða um plönturnar. En mér
þótti þetta alltaf mjög áhugavert starf
því að starf sölumannsins felst ekki
síst í því að lesa viðskiptavininn –
og það eru þessi mannlegu nánu
samskipti sem eru mjög gefandi.
Í raun er þetta líka mjög skapandi
vinna og ég hef sótt í slíka vinnu líka
á öðrum sviðum.
Ég vann til að mynda að þáttagerð,
bæði fyrir útvarp og sjónvarp, þar sem
fjallað var um garðyrkju frá ýmsum
hliðum. Þetta fjölmiðlabrölt byrjaði
reyndar þannig að ég skrifaði pistla
í Þjóðviljann, líklega í ein tvö ár. Þá
bauðst mér að gera útvarpsþætti á Rás
2 sem ég vann við meira og minna í
yfir tíu ár, samhliða garðyrkjuráðgjöf
og sölu, örugglega til 1998. Í þeim
voru meðal annars símatímar, þar sem
fólki bauðst að hringja inn og viðra
vandamál sín eða með fyrirspurnir
til mín sem ég svaraði bara í beinni
útsendingu. Þetta var auðvitað alveg
nýtt en naut mikilla vinsælda.
Svo var það 1988 að Sveinn
Einarsson, þáverandi dagskrárstjóri
á RÚV, bað mig um að gera
sjónvarpsþætti um garðyrkju. Ég
gerði það fyrst í ein tvö sumur
ásamt tökumanninum snjalla, Baldri
Hrafnkeli Jónssyni. Hann var með
kvikmyndatökuvélina en ég var í
umfjölluninni, reyndi að vera frekar
minna í mynd en segja meira frá því
sem bar fyrir augu – auk þess að
tala við garðyrkjufólkið auðvitað.
Svo hélt ég áfram með smáþætti á
Stöð 2, lítil innslög sem voru kostuð.
Blómaval stóð að þessari þáttagerð.“
Sýslar við pistlaskrif
og garðyrkjuráðgjöf
Hafsteinn fór svo út úr fjölmiðla-
bransanum og gerðist umhverfisstjóri
í Snæfellsbæ, sem þá var nýstofnað
sveitarfélag. „Þaðan fór ég á Selfoss
í svipað starf. Selfyssingar vildu
reyndar ekki hafa mig lengi í þessu
starfi og fundu út að það væri of dýrt
að hafa sérstakan garðyrkjustjóra á
fullum launum fyrir bæjarfélagið.
Bærinn lagði stöðuna niður og nú
sér áhaldahúsið um þetta.
Það má segja að ég hafi síðan að
mestu setið í helgum steini, en er þó
að sýsla við eitt og annað og leika
mér hér heima. Ég hef gaman af því
að skrifa pistla ef ég er beðinn um
það og ég hef gert dálítið af því –
meðal annars fyrir Bændablaðið. Svo
fylgist ég með garðyrkjuumræðu á
vefnum – til dæmis á Facebook – og
blanda mér þar í umræðuna og gef
ráð. Ég er félagi í Facebook-síðunni
Ræktaðu garðinn þinn þar sem
fjölmargir skiptast á skoðunum um
ýmis málefni og ég reyni að hjálpa
til með ráðgjöf þar. Líka á síðunni
Stofublóm inniblóm pottablóm. Á
þessum síðum er töluverður hluti
þjóðarinnar að leita sér aðstoðar, enda
er þetta mjög sniðugur vettvangur
fyrir skoðanaskipti og skilvirk leið til
upplýsingaöflunar. Ef ég sé eitthvað
í ummælum notenda sem þarf að
athuga betur, þá gríp ég oft inn í og
hef gaman af því að vera í sambandi
við fólk. Oft er það þá fróðleikur sem
ég er með á takteinum en stundum
þarf ég að grúska eitthvað til að finna
réttu svörin. Ég reyni að vanda mig
við þetta. Maður fær nú svo sem
ekkert mikil viðbrögð oftast nær, en
það er gaman að sjá ef manni tekst að
gleðja einhvern.“
Umræðan á Alþingi oft
tómt rugl og þras
„Oftast fæ ég fyrirspurnir um ástand
pottaplantna þegar þær eru nær
dauðar; annaðhvort með ofvökvun
eða með of mikilli áburðargjöf. Það
hefur líka gerst að fólk hefur samband
sem hefur keyrt með pálmana sína í
janúar frá Keflavík til Reykjavíkur á
opnum bíl í frosti. Því miður er það
nú þannig að náttúrufræðikennslu
– hvort sem það er almenn líffræði
eða umhverfisfræði – er illa sinnt í
grunnskólakerfinu. Í kennaranámi er
mikið verið að fókusera á kenningar
og hverjir hafi komið með þær og af
hvaða tilefni. Það er minna hugað
að hinum praktísku hliðum lífsins.
Með öðrum orðum þá er í íslensku
skólakerfi meira verið að hugsa um
fenginn, hvers maður aflar, en um
það hvernig skynsamlegast sé að afla
hans. Það er meira þrasað en gert –
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur er sestur í helgan stein en sinnir enn garðyrkjuráðgjöf á spjallborðum Facebook-hópa:
Þurfum að koma okkur upp
hagkvæmri skógarauðlind
Hafsteinn býr í Þingborg í Flóa og dundar sér þar við ýmsa dægradvöl; sýsl og tilraunir í eigin bakgarði. Myndir / smh
Úrklippa úr umfjöllun Hafsteins um hlyni, kjörviði fínsmiðanna, sem var birt í Bændablaðinu 22. mars 2016.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is