Bændablaðið - 12.04.2018, Síða 32

Bændablaðið - 12.04.2018, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 RÚÐUR Í MIKLU ÚRVALI John Deere Zetor Case IH McCormick Steyr Claas Ford Fiat New Holland Deutz-Fahr Massey Ferguson EIGUM TIL Á LAGER RÚÐUR Í FLEST ALLAR GERÐIR DRÁTTARVÉLA – FRÁBÆR VERÐ SÉRPÖNTUM RÚÐUR Í ALLAR GERÐIR DRÁTTARVÉLA MEÐ SKÖMMUM FYRIRVARA Beltone ™ Enn snjallari heyrnartæki HEYRNARSTÖ‹IN Be lto ne T ru st g en gu r m eð iP ho ne X o g el dr i g er ðu m , i Pa d A ir, iP ad (4 . k yn sl óð ), iP ad m in i m eð R et in a, iP ad m in i og iP od to uc h (5 . k yn sl óð ) m eð iO S eð a ný rr a st ýr ik er fi. A pp le , i Ph on e, iP ad o g iP od to uc h er u vö ru m er ki s em ti lh ey ra A pp le In c, s kr áð í Ba nd ar ík ju nu m o g öð ru m lö nd um . Um 60 manns sóttu íbúaþing á Þingeyri: Tveir megin drifkraftar í byggðaþróun Ef samgöngur eru góðar, atvinnulífið öflugt og íbúar kraftmiklir, er samfélaginu á Þingeyri og við Dýrafjörð allir vegir færir. Þetta eru niðurstöður tveggja daga íbúaþings sem haldið var í Félagsheimilinu á Þingeyri nú nýverið. Um sextíu manns tóku þátt í þinginu, sem hófst með því að sýnt var myndband um Þingeyri, unnið af nemendum á miðstigi grunnskólans, og nemendur tónlistarskólans komu fram. Á allra næstu árum munu skapast ný tækifæri með opnun Dýrafjarðarganga og tilkomu ljósleiðara og spurning er hvernig íbúar vilja nýta möguleikana. Fjallað er um íbúaþingið á vef Byggðastofnunar. Samkvæmt umræðum á íbúaþinginu skiptir máli að byggja á því sem þegar er til staðar og orðið er rótgróið í samfélaginu en jafnframt að leita nýrra leiða og sýna framsækni til að leiða Þingeyri og nágrenni inn í framtíðina. Fiskverkun undirstaðan en huga þarf einnig að nýsköpun Fram kom að fiskverkun er undirstöðuatvinnugrein á Þingeyri og að renna þurfi styrkari stoðum undir hana, auk þess sem horft er til fiskeldis. Halda ætti áfram að þróa víkingaferðaþjónustu og nýta önnur sóknarfæri í ferðaþjónustu. Samhliða þurfi að auka aðra nýsköpun og skapa umhverfi fyrir frumkvöðla og minni fyrirtæki og þar bera íbúar miklar væntingar til Blábankans. Fjárfesta þarf í fólki og skapa enn betri skilyrði fyrir ungar fjölskyldur, t.d. með sveigjanleika í leikskóladvöl og auknu tómstundastarfi. Þó nú styttist í hin langþráðu Dýrafjarðargöng, þarf jafnframt að bæta vetrarþjónustu, marka stefnu um Þingeyrarflugvöll og huga að umferðarmálum í þorpinu og næsta nágrenni. Lagning ljósleiðara er í farvegi og æskilegt að hann verði kominn fyrir árið 2020. Styrkja þarf samvinnu Styrkja þarf samvinnuna milli íbúa við Dýrafjörð og stjórnsýslunnar á Ísafirði og lofaði samtalið á íbúaþinginu góðu. Gengið er út frá því að áfram verði hátt hlutfall skammtímaíbúa, sem margir vildu líta á sem styrkleika, og m.a. kanna hvort eigendur frístundahúsa væru tilbúnir að bjóða þau til leigu yfir afmarkaðan tíma. Á þinginu var rætt um umhverfismál og stefnu til framtíðar, með áherslu á sjálfbærni og fram kom mikill metnaður fyrir fallegri ásýnd og snyrtimennsku. Auðlegð í sögu Dýrafjarðar var kortlögð og einnig var varpað fram hugmyndum um söfn, markaðssetningu á afurðum úr héraði og rými fyrir listagallerí, fyrir dýrfirska listamenn og gesti. Öll vötn til Dýrafjarðar Íbúaþingið markar upphaf að verkefni Byggðastofnunar, Brothættum byggðum, á Þingeyri í samstarfi við heimamenn, Ísafjarðarbæ og Vestfjarðastofu og er verkefnisstjórn skipuð fulltrúum þessara aðila. Nú verður unnin samantekt um skilaboð þingsins, sem verður, ásamt stöðugreiningu, efniviður fyrir verkefnisáætlun, með framtíðarsýn og markmiðum fyrir byggðaþróunarverkefni sem staðið getur í allt að fjögur ár. Á næstu árum munu opnast margvísleg tækifæri þegar Þingeyri verður miðsvæðis á Vestfjörðum og getur byggðaþróunarverkefnið verið farvegur fyrir þá sókn, enda var því á þinginu gefið heitið „Öll vötn til Dýrafjarðar“. /MÞÞ Um sextíu manns tóku þátt í þinginu. menn, Ísafjarðarbæ og Vestfjarðastofu og er verkefnisstjórn skipuð fulltrúum þessara aðila. félaginu á Þingeyri og við Dýrafjörð allir vegir færir. Ráðrík kannar viðhorf íbúa í A-Hún. til sameiningar: Atvinnumál fyrirferðarmest í sameiningarumræðunni Ráðrík ehf. hefur efnt til sex opinna funda í Austur-Húnavatnssýslu til að kanna viðhorf íbúanna til þess að sameina sveitarfélögin. Fundarsókn fór fram úr björtustu vonum en alls mættu á þriðja hundrað manns á fundina. Það var misjafnt hvaða málaflokkar brunnu á íbúum og fór það eftir því hvar í sýslunni var fundað. Til að mynda voru fjallskil ofarlega á baugi í Húnavatnshreppi og Skagabyggð. Jafnframt brunnu skólamálin á íbúum Húnavatnshrepps. Þá voru íþrótta- og æskulýðsmálin rædd og velt upp möguleikum sem gætu myndast í sameinuðu sveitarfélagi. Fjölbreyttara atvinnulíf Atvinnumálin voru þó fyrirferðarmest í umræðunni og þá sérstaklega sóknarfæri í ferðaþjónustunni sem þykir óplægður akur í sýslunni. Uppbygging á fjölbreyttara atvinnulífi er forsenda viðsnúnings í mannfjöldaþróun í sýslunni, að því er fram kemur í frétt á vef huna.is. Ráðgjafar hjá Ráðrík ehf. munu hitta sameiningarnefndina í lok mánaðarins og fara yfir stöðu mála. Þá verður gert hlé á vinnunni fram yfir sveitarstjórnarkosningar sem fram fara þann 26. maí næstkomandi. /MÞÞ iblb . s F obcea ok

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.