Bændablaðið - 12.04.2018, Síða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018
-
-
-
414 1000
Ráðgjafarnefnd Orkusjóðs hefur ákveðið að styrkveitingar Orkusjóðs á árinu 2018
verði til verkefna samkvæmt b) lið 7. gr. reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð en
þar segir:
„Styrkri til verkefna sem leiði til lægri kostnaðar við óniðurgreidda
rafkyndingu húsnæðis og mannvirkja í eigu sveitarfélaga“.
Til greina kemur meðal annars: Uppsetning varmadæla, uppsetning eða
endurbætur hitastýringarkerfa og önnur verkefni sem leiða til minni
raforkunotkunar við hitun.
Um er að ræða fjárfestingarstyrki, sem hæst geta numið 50% af áætluðum kostnaði
við einstök verkefni, þó að hámarki 5 m.kr.
Við mat á umsóknum verður sérstaklega litið til:
• Að verk- og kostnaðaráætlun sé vönduð og ítarleg.
• Að raunsætt mat sé lagt á áætlaðan raforkusparnað.
• Hlutfalls orkusparnaðar miðað við kostnað
Umsóknarfrestur er til 18. Apríl 2018
Skrifleg staðfesting á afgreiðslu umsókna mun berast umsækjendum eigi síðar
en 18. júní 2018
Umsóknum skal skila rafrænt af vef Orkustofnunar www.os.is undir Orkusjóður
Nánari upplýsingar á www.os.is og hjá Orkusjóði, Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg,
603 Akureyri. Símar 569 6083 – 894 4280 – Netfang jbj@os.is
ORKUSJÓÐURORKUSTOFNUN
ORKUSJÓÐUR
Orkusjóður auglýsir sérstaka styrki 2018
Sveitarfélög í Austur-Húnavatnssýslu:
Góð fjárhagsstaða og eignir
upp á 4,5 milljarða
Fjárhagsstaða fjögurra sveitar-
félaga í Austur-Húna vatnssýslu
sem hyggja á sameiningu er
góð, en öll skiluðu þau jákvæðri
niðurstöðu fyrir árið 2016, að
því er fram kemur í minnisblaði
sem er að finna á nýjum vef
um sameiningarmál í sýslunni.
Heild ar eignir sveitarfélaganna
í Austur-Húnavatnssýslu ásamt
byggðasamlögum námu samtals
um 4,5 milljörðum í loks ársins
2016.
Þegar skuldir og skuldbindingar
sveitarfélaganna eru brotnar niður
á íbúa er nokkur munur á stöðunni
eftir sveitarfélögum. Hæstar voru
skuldirnar í Blönduósbæ og námu
þær um 1,4 milljónum á íbúa árið
2016. Á Skagaströnd námu þær
um 960 þúsund krónur á íbúa, í
Húnavatnshreppi 471 þúsund á
íbúa og tæpar 260 þúsund á íbúa í
Skagabyggð.
Hæstu tekjurnar í
Húnavatnshreppi
Hæstar tekjur á hvern íbúa árið 2016
voru í Húnavatnshreppi og námu þær
rúmri milljón króna. Næsthæstar
voru tekjurnar á Skagaströnd, eða um
986 þúsund á hvern íbúa, á Blönduósi
námu þær 974 þúsund krónum og í
Skagabyggð 962 þúsund á íbúa.
Í lok árs 2016 voru hæstar eignir
á hvern íbúa á Skagaströnd, eða
rúmar 3 milljónir, og næsthæstar á
Blönduósi, tæpar 2 milljónir. Eignir
á hvern íbúa í Húnavatnshreppi námu
tæplega 1,3 milljónum og tæpri
milljón í Skagabyggð.
Nýr upplýsingavefur
Nýr upplýsingavefur um
sameiningarmál sveitarfélaga í
Austur-Húnavatnssýslu hefur verið
opnaður en þar má finna upplýsingar
af ýmsu tagi, fréttir og tilkynningar,
fundargerðir, minnisblöð og
hvaðeina sem tengist mögulegri
sameiningu sveitarfélaganna
fjögurra, Húnavatnshrepps,
Blönduósbæjar, Skagabyggðar og
Sveitarfélagsins Skagastrandar.
Vefslóðin er sameining.huni.is.
Upplýsingavefurinn er
samstarfsverkefni Húnahornsins,
sameiningarnefndar A-Hún. og
Ráðrík ráðgjafa. Hann er í umsjón
og á ábyrgð Húnahornsins –
fréttavefs Húnvetninga í 17 ár.
Upplýsingar sem á vefinn koma
eru frá sameiningarnefndinni og
Ráðrík ráðgjöfum. Aðra almenna
textavinnslu sér Húnahornið um.
Ljósmyndirnar í haus vefsins voru
teknar af Höskuldi B. Erlingssyni.
Vefurinn er einnig hannaður
fyrir snjalltæki og er því mjög
aðgengilegur í t.d. sjallsímum.
Opnir fundir fyrir íbúa
Svanfríður Jónasdóttir hjá
Ráðrík ráðgjöf segir á vef Húna
upplýsingavefinn mjög mikilvægan
til þess að allir geti fylgst með og
kynnt sér þá vinnu sem er í gangi
í tengslum við framtíðarskipan
sveitarstjórnarmála í A-Hún. Hún
segir mikilvægt að sem flestir hafi tök
á að kynna sér sameiningarmálefnin,
geti rætt málin og komið sínum
sjónarmiðum á framfæri.
Í undirbúningi er að halda opna
fundi á sex stöðum í sýslunni strax
eftir páska. „Þeir verða opnir öllum
íbúum, þ.e.a.s. þú þarft ekki að
mæta á fundinn sem er næstur þínu
heimili, heldur getur sótt hvaða fund
sem er til að taka þátt í umræðu um
framtíðarskipan sveitarfélaganna
í Austur-Húnavatnssýslu,“ segir
Svanfríður. /MÞÞ
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 26. apríl