Bændablaðið - 12.04.2018, Side 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018
Fyrirspurn á Alþingi til landbúnaðarráherra um lífræna ræktun:
Einungis 31 voru starfandi í lífrænni
ræktun á Íslandi á árinu 2016
– Aðeins komu 5 af 35 milljóna króna aðlögunarstyrkjum í greininni til úthlutunar á síðasta ári, verið að skoða ráðstöfun á restinni
Bjarni Jónsson alþingismaður
lagði fram fyrirspurn á Alþingi
þann 31. janúar varðandi
lífrænar landbúnaðarafurðir.
Sendi hann Kristjáni Þór
Júlíussyni sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra fyrirspurn
um málið í þrem liðum. Spurði
hann ráðherra einnig hvort hann
hygðist beita sér fyrir því að
málefni lífræns landbúnaðar verði
skoðuð með heildstæðum hætti.
Fyrirspurnin er athyglisverð í
ljósi þess hversu erfiðlega hefur
gengið að koma fótunum undir
lífræna ræktun á Íslandi. Virðist það
þvert á þróunina víða um Evrópu
þar sem lífrænt framleiddar afurðir
án allra eitur- eða aukaefna njóta ört
vaxandi vinsælda.
Tvær umsóknir og ein
styrkveiting
Í haust vakti það einnig athygli
að einungis tvær umsóknir bárust
til Búnaðarstofu MAST varðandi
aðlögunarstyrki fyrir lífrænan
landbúnað á árinu 2017. Aðeins
annar umsækjandinn var talinn
uppfylla skilyrði styrkveitingar.
Var þar gert ráð fyrir 35 milljónum
til styrkveitinga, en áður nam
heildarupphæðin 3,5 milljónum
króna. Markmiðið er að aðstoða
framleiðendur við að uppfylla þær
kröfur sem gerðar eru í vottaðri
lífrænni búvöruframleiðslu og auka
framboð lífrænna vara á markaði.
Samkvæmt reglugerð nr.
1180/2017 um almennan stuðning
við landbúnað, sem Matvælastofnun
vinnur eftir, getur stuðningur við
framleiðanda aldrei verið meiri en
50% af árlegum aðlögunarkostnaði
skv. umsókn og að hámarki 20%
af heildarframlögum stuðningsins
í fjárlögum ársins. Því var 30
milljónum óráðstafað í árslok.
VOR félag lífrænna framleiðenda
verði kallað að borðinu
Lagt hefur verið til að nýjasta
aðildarfélag Bændasamtaka
Íslands,VOR, sem er hagsmunafélag
framleiðenda sem stunda lífræna
ræktun eða fullvinnslu lífrænna
íslenskra afurða, hafi hönd í bagga
varðandi nýtingu þeirra fjármuna
sem út af stóðu.
Að sögn Sigurðar Eyþórssonar,
framkvæmdastjóra BÍ, er ekki
hugmyndin að þessar 30 milljónir
bætist við þær 35 milljónir sem
verða í pottinum 2018. Þess í stað
hefur verið lagt til að fjármagnið
verði notað m.a. við að hjálpa
bændum í lífrænni ræktun að
standa undir kostnaði við úttektir og
vottanir á starfsemi sinni. Einnig að
hluta fjárins verði varið til að kalla
til erlenda ráðgjafa í samstarfi við
Ráðgjafarþjónustu landbúnaðarins
líkt og gert var í garðyrkjunni með
góðum árangri. Jafnframt verði hægt
að nýta fjármunina til að kynna
lífræna ræktun almennt og hvetja
fleiri til að skoða þá möguleika sem
í henni felast.
Að sögn Jóns Baldurs Lorange,
framkvæmdastjóra Búnaðarstofu
MAST, þá er ákveðið regluverk
þegar til staðar varðandi úthlutun
fjármuna sem falla til á yfirstandandi
ári. Eigi að síður er nú til skoðunar
hvort breytt verði fyrirkomulagi
úthlutunar aðlögunarstyrkja til
lífræna geirans á þessu ári til að þjóna
betur markmiði úvörusamninganna.
Engar ákvarðanir hafa þó verið
teknar í þeim efnum.
Mjög hæg þróun í lífrænni
ræktun á Íslandi
Kristján Þór svaraði fyrirspurn
Bjarna Jónssonar á Alþingi þann
22. febrúar. Gerði hann það með
eftirfarandi hætti beint út frá
spurningum Bjarna:
„1. Hver hefur þróunin verið
undanfarinn áratug í framleiðslu
og sölu landbúnaðarafurða með
lífræna vottun og hvert er hlutfall
lífrænt vottaðra landbúnaðarafurða
af heildarframleiðslu og -sölu
innlendra landbúnaðarafurða?
Þróun vottaðrar lífrænnar
landbúnaðarframleiðslu á Íslandi
má marka af þrennu:
– fjölda vottaðra starfsstöðva,
– flatarmáli vottaðs nytjalands
og
– fjölda vottaðs búpenings.
Á liðnum áratug hefur fjöldi
frumframleiðenda verið á bilinu 22
(2006) til 39 (2011), en í árslok 2016
var fjöldi þeirra einungis 31. Flestir
þeirra eru tiltölulega sérhæfðir, þ.e.
stunda ýmist garðyrkju, búfjárrækt
eða söfnun villtra plantna af landi
eða sjó. Framleiðsla þeirra er
allfjölbreytt eins og sjá má af töflu
3 sem lýsir þeim vöruflokkum sem
framleiddir voru árið 2016.
Vinnslustöðvum hefur hins vegar
fjölgað jafnt og þétt úr 12 (2006) í
29 (2016). Um er að ræða fjölbreytta
flóru vinnslustöðva, svo sem sjá
má af töflu 3 (2016), en þær vinna
ýmist úr innlendum eða innfluttum
hráefnum, eða hvort tveggja.
Flatarmál vottaðs nytjalands er
algengur mælikvarði á framvindu
og stöðu lífræns landbúnaðar.
Framvindu þess hér á landi má sjá
á mynd 1. Um árabil voru um 5.000
hektarar nytjalands vottaðir lífrænir,
en það svæði þrefaldaðist árið
2007, einkum vegna aukinna nytja
á óræktuðu landi til söfnunar villtra
jurta. Eftir það hefur aukningin verið
mjög hæg og í árslok 2016 voru
tæpir 23 þúsund hektarar vottaðir til
lífrænna landnytja, sem svarar til um
1,5% af því sem talið er nýtanlegt
land til landbúnaðar (ræktunar og
beitar) hér á landi. Í samanburði
við flest önnur lönd Evrópu er það
hlutfall mjög lágt. Fyrir utan þessar
tölur eru svo í kringum 200 þúsund
hektara svæði á grunnsævi, einkum
við innanverðan Breiðafjörð, sem
hagnýtt er til öflunar þangs og þara
sem vottanleg eru sem lífrænar
afurðir.
Mjög lítill hluti bústofns
íslenskrar búfjárræktar er enn sem
komið er vottaður lífrænn. Vottaður
stofn náði hámarki á árunum 2011–
2013, en hefur dregist nokkuð
saman á síðustu árum. Þannig voru í
árslok 2016 vottaðar mjólkurkýr 111
talsins og vetrarfóðraðar ær 1.475.
Þótt tölur um bústofn á árinu 2017
liggi ekki endanlega fyrir er ljóst
að sauðfjárbændum hefur fækkað
og þar með vetrarfóðruðum ám.
Undantekning frá þessari framvindu
er eldi á varphænum sem tók
mikinn kipp fyrir rúmum tveimur
árum, þegar einn eggjaframleiðandi
byggði upp allstóra eldisstöð sem
uppfyllir kröfur um vottaða lífræna
framleiðslu. Ein eldisstöð framleiðir
vottuð laxaseiði til útflutnings og
áframeldis. Engir alifuglar eða svín
eru vottuð í lífrænu eldi.
Upplýsingar um magn
framleiddra vottaðra lífrænna
landbúnaðarafurða hér á landi liggja
ekki fyrir. Hlutföll vottaðra afurða í
einstökum afurðaflokkum verða því
ekki metin nema mjög gróflega og
út frá ofangreindum upplýsingum
um fjölda framleiðenda, nytjaland
og bústofn.
Í flestum tilvikum er ekki um
mikið magn að ræða. Þó eru nokkrar
undantekningar frá því og er verulegt
magn villtra sjávarjurta (þangs
og þara) svo og eggja og gulróta
framleitt í landinu. Ætla má að
margar tegundir lífræns grænmetis
gangi til þurrðar þegar kemur fram
á haust, framboð gulróta, kartaflna
og gulrófna endist lengur, en lífræn
mjólk og mjólkurafurðir, egg,
lambakjöt og bygg eru fáanleg á
markaði mestallt árið.
Auk þessara afurða er
framleitt mikið magn af þang- og
þaramjöli, einkum til útflutnings
og áframvinnslu, til notkunar í
matvæla- og fóðuriðnaði. Þá eru
nokkrir aðilar vottaðir til framleiðslu
á lífrænum snyrtivörum.“
Fjölþætt skilyrði fyrir stuðningi
„2. Hvaða möguleikar eru á að
hljóta fjárhagslegan stuðning
til aðlögunar að lífrænum
búskaparháttum á sveitabýlum,
hvernig er honum háttað og hve
margir bændur hafa notið slíks
stuðnings árlega undanfarin fimm
ár?
Um núgildandi fyrirkomulag
stuðnings vegna lífrænnar
framleiðslu er fjallað í V. kafla
reglugerðar nr. 1180/2017 um
almennan stuðning við landbúnað.
Matvælastofnun ráðstafar
þeim fjármunum sem ætlaðir
eru til að styðja við aðlögun að
lífrænum framleiðsluháttum. Þeir
framleiðendur sem uppfylla skilyrði
3. gr. ofangreindrar reglugerðar
og hafa byrjað lífræna aðlögun í
landbúnaði undir eftirliti faggildrar
vottunarstofu og í samræmi við
gildandi reglugerð um lífræna
framleiðslu og merkingu lífrænna
vara geta sótt um aðlögunarstuðning.
Skilyrði fyrir stuðningi eru
fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í
þeim búgreinum sem við á hverju
sinni.
Umsóknum þarf að skila
inn í rafrænt umsóknarkerfi
Matvælastofnunar, eigi síðar en
15. maí ár hvert og í umsókn þurfa
eftirfarandi upplýsingar koma fram:
1. Upplýsingar um nafn, kennitölu,
og lögheimili framleiðanda sem
sækir um stuðning.
2. Upplýsingar um búsnúmer
lögbýlis sem verið er að aðlaga
að lífrænni framleiðslu.
3. Lýsing á búrekstrinum sem
verið er að aðlaga að lífrænni
framleiðslu, þ.m.t. upplýsingar
um gripafjölda eftir tegundum
búfjár, flatarmál lands eftir
tegund nytja og aðstæður í
gripahúsum sem breyta þarf til
að mæta kröfum um aðbúnað
lífræns búfjár.
4. Áætlaður aðlögunarkostnaður
á umsóknarári samkvæmt
kostnaðaráætlun.
5. Upplýsingar um áður fenginn
aðlögunarstuðning ef við á.
Fylgiskjöl sem þurfa að fylgja með
fyrstu umsókn eru:
1. Kostnaðaráætlun unnin af
fagaðila, svo sem Ráðgjafar-
miðstöð landbúnaðarins. Í
kostnaðaráætlun skal m.a.
leggja mat á þann kostnað
vegna lífrænnar aðlögunar
sem framleiðandi þarf að bera
frá því að lífræn aðlögun hefst
og þar til lífræn vottun fæst.
Kostnaðinn skal áætla fyrir
hvert ár aðlögunarinnar og skal
líta til eftirfarandi þátta:
a. Fjárfestingar: Breytingar
á húsa kosti til að uppfylla
viðbótarkröfur um aðbúnað
og gólfrými, tækjabúnað
og aðstöðu, námskeið og
fræðsluefni til að byggja upp
þekkingu framleiðanda.
b. Rekstrarútgjöld sem tengjast
sérstaklega aðlögunarferlinu:
Gerð aðlögunaráætlunar,
greiningar jarðvegssýna og
fóðursýna, gerð jarðakorta,
ráðgjöf búnaðarráðunauta og
fyrstu úttektir vottunarstofu.
c. Lækkun tekna vegna minni
framleiðslu á hverja flatar-
og búfjáreiningu: ræðst
m.a. af þekkingu og hæfni
framleiðanda, jarðvegsgerð,
landsháttum, veðurfari og
fyrirkomulagi búreksturs árin
áður en aðlögun hefst.
2. Afrit af áætlun um aðlögun
að lífrænni landbúnaðar-
framleiðslu, staðfest af faggildri
vottunarstofu.
3. Staðfesting faggildrar vottunar-
stofu um að umsækjandi hafi
undirritað samning við hana
um reglubundið eftirlit með
framleiðslunni samkvæmt
reglum um lífræna framleiðslu.
Einnig skal fylgja staðfesting
faggildrar vottunarstofu um að
umsækjandi hafi lokið a.m.k.
átta klukkustunda námskeiði
fagaðila, eins eða fleiri, um
lífræna aðlögun landbúnaðar-
framleiðslu, þar sem fjallað er
um aðlögunarferlið, lífrænar
aðferðir í þeim búgreinum
sem aðlaga á að kröfum,
skráningar og skýrsluhald í
lífrænum búskap, fyrirkomulag
eftirlits og vottunar og fyrir-
komulag ráðgjafar og stuðnings
við lífræna aðlögun. Mat-
vælastofnun skal staðfesta
fyrirkomulag og skipulag
námskeiðsins.
Matvælastofnun annast úthlutun
aðlögunarstuðnings. Stuðningur
við hvern framleiðanda getur að
hámarki numið 50% af árlegum
aðlögunarkostnaði með tilliti
til umfangs aðlögunar. Hver
framleiðandi getur þó ekki fengið
hærra framlag árlega en 20% af
heildarframlögum stuðningsins
samkvæmt fjárlögum.
Heimilt er að veita framleiðanda
árlegan aðlögunarstuðning á
meðan aðlögun undir eftirliti
faggildrar vottunarstofu stendur
yfir og skal umsækjandi þá sækja
um að nýju. Ný umsókn skal vera
með uppfærðum upplýsingum og
fylgiskjölum auk þess skal fylgja
með umsókn staðfesting faggildrar
vottunarstofu á að aðlögun
standi yfir samkvæmt áætlun.
Matvælastofnun er einnig heimilt
að kalla eftir frekari upplýsingum
frá framleiðanda telji hún þess þörf
til að meta umsókn.
Á árinu 2017 fékk 1 umsækjandi
stuðning, alls 3.231.250 kr.
Á árinu 2015 fengu 5
umsækjendur stuðning, alls
3.400.000 kr.
Á árinu 2014 fengu 5
umsækjendur stuðning, alls
5.202.706 kr.*
Á árinu 2013 fengu 6
umsækjendur stuðning, alls
5.002.294 kr.*
*Ástæðan fyrir hærri greiðslu
árin 2013 og 2014 er sú að á þeim
árum var veitt viðbótargreiðsla
vegna þróunarfés sauðfjár.“
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að
efla lífræna ræktun
„3. Hyggst ráðherra beita sér fyrir
stefnumörkun í málefnum lífræns
landbúnaðar og gerð markvissrar
aðgerðaáætlunar með það að
markmiði að auka hlut lífræns
landbúnaðar eins og gert hefur
verið í flestum Evrópulöndum?
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar er sérstaklega bent á að efla
þurfi lífrænan landbúnað. Þessi
áhersla er auk þess í samræmi
við rammasamning um almenn
starfsskilyrði landbúnaðarins
á árunum 2017–2026 en eitt af
markmiðum samningsins er að auka
vægi lífrænnar framleiðslu.
Í upphafi árs 2017 samþykkti
þáverandi sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra upptöku
gildandi reglna Evrópusambandsins
um lífræna ræktun í EES-samninginn
og voru gerðirnar formlega teknar
upp í samninginn 17. mars 2017.
Í nóvember 2017 voru nýjar reglur
um lífræna ræktun samþykktar innan
ESB og munu þær taka gildi í byrjun
árs 2021. Þessar reglur falla undir
gildissvið EES-samningsins og
munu því koma til meðferðar innan
EFTA.
Með vísan til þess að ríkisstjórnin
leggur áherslu á að efla lífræna
ræktun og í ljósi nýrrar löggjafar
ESB á þessu sviði er fyrirhugað að
ráðherra beiti sér fyrir því að málefni
lífræns landbúnaðar verði skoðuð
með heildstæðum hætti,“ sagði
ráðherra í svari sínu við fyrirspurn
Bjarna. /HKr.
Bjarni Jónsson. Kristján Þór Júlíusson.
LÍFRÆNN LANDBÚNAÐUR