Bændablaðið - 12.04.2018, Side 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018
Margvíslegur ávinningur með heilsársvegi yfir Kjöl að mati flutningsmanna þingsályktunartillögu:
Aukið öryggi, meiri umhverfisvernd
og betri tenging milli landshluta
– Lagt til að um einkaframkvæmd verði að ræða og notendagjöld innheimt
Fram hefur verið lögð á Alþingi
þingsályktunartillaga um að
samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráð herra verði falið að hefja
undirbúning að endurnýjun vegar-
ins yfir Kjöl sem heilsársvegar
með einkaframkvæmd.
Á ráðherra að gera forkönnun
á umhverfisáhrifum og samfélags-
legum og efnahagslegum áhrifum
framkvæmdarinnar, m.a. á ferða-
þjónustu, byggðaþróun og nátt-
úru vernd. Samkvæmt tillögunni
er stefnt að því að undirbúningi
framkvæmda ljúki fyrir 1. febrúar
2019 og framkvæmdir hefjist í
beinu framhaldi. Flutningsmenn
tillögunnar eru sjálfstæðismennirnir
Njáll Trausti Friðbertsson,
Vilhjálmur Árnason og Haraldur
Benediktsson.
Fram kemur í greinargerð með
tillögunni að mörg rök hnigi að
því að endurbæta vegarkaflann,
þar megi nefna öryggissjónarmið,
byggðasjónarmið og sjónarmið um
umhverfisvernd. Þá hafi Samtök
ferðaþjónustunnar lýst sárum
vonbrigðum með að vegarkaflinn
hafi ekki fengið brautargengi í
síðustu samgönguáætlun og bent á
mikilvægi þess að vegasamgöngur
milli landshluta verði bættar, ekki
síst vegna stóraukins ferðamanna-
straums síðastliðinna ára. Telja verði
fullkannað að samgöngubætur hafi
jákvæð áhrif á öryggi, nærsamfélag
og efnahag.
Fornir hálendisvegir í
niðurníðslu
Talsvert hefur undanfarin ár
verið fjallað um að stytta leiðir
milli landshluta með bættum
hálendisvegum, þannig megi t.d.
tengja betur saman fjölmennustu
byggðir landsins. Til séu gögn
um nokkrar þeirra leiða sem lagst
hefur verið í rannsóknir á. Bent er á
í greinargerð að fornir hálendisvegir séu í niðurníðslu og flokkist fremur
sem slóðar en vegir.
„Kjalvegur hefur frá landnámsöld
verið mikilvæg samgönguæð milli
norður- og suðurhluta landsins
og þrátt fyrir mikla uppbyggingu
á hringveginum síðustu áratugi
er mikilvægi vegarins enn mikið.
Þrátt fyrir það hefur veginum ekki
verið haldið við eins og nauðsynlegt
er. Hér er lagt til að vegurinn yfir
Kjöl verði endurnýjaður og lagður
bundnu slitlagi þannig að unnt verði
að halda honum opnum mestan hluta
ársins og að verkefnið verði unnið
sem einkaframkvæmd,“ segir í
tillögunni.
Styrkur fyrir
landbúnaðarhéröðin
Betri vegir um hálendið mundu
ekki einungis auka ferðaþjónustu á
einstökum stöðum og styrkja þannig
hverja byggð fyrir sig heldur gæfist
með betri hálendisvegum tækifæri til
að styrkja landsbyggðina í heild með
aukinni samvinnu og samkeppni
milli einstakra byggðarlaga.
Nýjar og góðar samgönguleiðir
mundu styrkja landbúnaðarhéruð
hvarvetna og heilsársvegur
yfir Kjöl mundi tengja saman
landbúnaðarsvæði á Suður- og
Norðurlandi. Hringvegurinn yrði
þá ekki eina greiðfæra leiðin
heldur opnuðust fleiri möguleikar
með styttri hringleiðum sem gætu
hentað fleirum, bæði einstaklingum
og ferðaþjónustuaðilum og
aðilum í öðrum atvinnurekstri.
Norðvesturland hefur farið nokkuð
halloka í atvinnu- og byggðamálum
síðustu áratuga og þar hefur íbúum
og störfum fækkað jafnt og þétt.
Heilsársvegur yfir Kjöl mundi
styrkja atvinnulíf í landshlutanum
auk þess sem ferðaþjónusta getur
skipt grundvallarmáli þegar kemur
að því að viðhalda lágmarksþjónustu
í litlum byggðarlögum þar sem
íbúafjöldi stendur ekki undir henni
einn og sér.
Bætt umferðaröryggi
Benda flutningsmenn á að nýr
og bættur vegur yfir Kjöl bæti
umferðaröryggi á hálendinu og
minnki líkur á slysum. Lögregla og
björgunarsveitir ættu greiðari aðgang
að hálendinu m.a. til að fylgjast
með og vakta aukna umferð, en
heilsársvegur yfir Kjöl nýttist einnig
sem neyðartenging milli Norður- og
Suðurlands. Endurbætur á Kjalvegi
mundu einnig styrkja náttúruvernd
á hálendinu. Utanvegaakstur þar
er viðvarandi vandamál sem ógnar
náttúrunni víða og nauðsynlegt er
að sporna við.
Standi undir sér með
notendagjöldum
Í tillögunni felst að endurgerð
Kjalvegar verði einkaframkvæmd,
þannig að einkaaðili taki að sér
fjármögnun, framkvæmd og rekstur
verkefnisins í umboði hins opinbera.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdin
standi undir sér að öllu leyti með
notendagjöldum með svipuðum
hætti og staðið hefur verið að
málum varðandi Hvalfjarðargöng,
þar sem gjöldin hafa staðið undir
fjármögnun, rekstri og viðhaldi
ganganna. Það væri á könnu hins
opinbera að heimila framkvæmdina
og setja um hana reglur. /MÞÞ
hálendisvegum tækifæri til að styrkja landsbyggðina í heild með aukinni samvinnu og samkeppni milli einstakra byggðarlaga. Bættur vegur um Kjalveg
með bundnu slitlagi myndi auk þess draga stórlega úr rykmengun og kostnaði vegna skemmda á ökutækjum. Myndir / HKr.
á hálendinu og minnki líkur á slysum.
Endurbætur á Kjalvegi mundu einnig styrkja náttúruvernd á hálendinu, að
Gesto
vinnubuxur
Stretch-buxur. Vinnubuxur
úr teygjanlegu efni fyrir fólk
á ferðinni!
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is