Bændablaðið - 12.04.2018, Side 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018
ANDLÁT
Vesturhrauni 3 - 210 Garðabær
480-0000 - sala@aflvelar.is - www.aflvelar.is
Gerir umhverfið hreinna
Glutton sugan
Öflug suga frá Glutton
Hentug fyrir sveitafélög og fyrirtæki til að auðvelda vinnu við hreinsun
Kveðja frá sonum
og dætrum
Pabbinn okkar, minka-
veiðimaðurinn, þúsund þjala-
smiðurinn og fyrrum bóndi,
Reynir Bergsveinsson frá Fremri
Gufudal, er látinn.
„Berðu honum/henni kveðju
mína með guðs blessun og þökk
fyrir allt“, þessa kveðju höfum við
systkin farið með víða og eigum eftir
að bera margar enn. Við höfum alið
börnin okkar upp í þeirri vissu að
öðrum eins manni eigi þau aldrei
eftir að kynnast, því það er enginn
annar svona til.
Ofvirkur? Klárlega.
Skemmtilegur? Klárlega.
Og tvímælalaust fróðasti maður á
landinu um atferli minka.
Það var um mánaðamótin febrúar/
mars að hann átti síðasta 18 klst.
vinnudaginn sinn, 4. mars taldi hann
sig vera lasinn. Hann ætlaði að vera
með mótmælastöðu við hreppskrif-
stofuna á Reykhólum 8. mars þegar
ÞH leiðin með veg um Teigsskóg
yrði valin en þann dag komst hann
ekki úr rúminu og var hættur að ha-
fa matarlyst. Stuttu síðar kemur í
ljós að hann var með krabbamein
á lokastigi.
Hann naut þess að lifa og hafði
aldrei getað sætt sig við langa
sjúkrahúsvist svo við erum öll
þakklát fyrir stutt stríð, en hann lést
á sjúkrahúsinu á Akranesi 6. apríl
síðastliðinn.
Ykkur fjölmörgu vinum og
kunningjum hringinn í kringum
landið viljum við þakka þær
móttökur og skilning sem þið
hafið sýnt hans þrotlausu vinnu
við útrýmingu minks á landinu og
hvetjum ykkur til að halda verki hans
sem víðast áfram.
Hjartans kveðja,
Þröstur, Svandís, Erla, Hrafn-
hildur, Bergsveinn, Sævar og
Herdís Reynisbörn.
Reynir Bergsveinsson.
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is Frostagata 2a 600 Akureyri VERKIN TALA
Mótor: 163 Hestöfl búin „vetrarpakka“ þ.e öflugri rafgeymi, öflugri alternator, startara og kaldræsibúnaði.
Gírkassi: stiglaus skipting „VARIO“. Vökvakerfi: Load sensing „úrtök fyrir rúllusamstæðu“ 110L vökvadæla,
4 vökvaspólur að aftan. Aflúrtak: 3 hraðar 540/540E/1000.
Dekk: framan 540/65-28 - aftan 650/65-38 - Trelleborg heilsoðnar felgur.
Annað: framfjöðrun, húsfjöðrun, loftkæling, upphituð afturrúða, vökvayfirtengi,
útskjótanlegur dráttarkrókur + þýskur sleðakrókur, vagnbremsa bæði vökva og loft,
fullt af vinnuljósum, loftpúða ökumannssæti, farþegasæti og útvarp.
Verð kr. 14.890.000+vsk - Miðaða við gengi Evru 123 kr.
Aukabúnaður: Ámoksturstæki Fendt kr. 1.290.000+vsk. Frambúnaður/pto kr. 760.000+vsk.
Nú getur draumurinn orðið að veruleika
Nýgerðir samningar við Fendt verksmiðjuna tryggja okkur nokkrar
vélar af gerðinni FENDT 516 Power á afar hagstæðu verði.
Helsti búnaður er eftirfarandi: