Bændablaðið - 12.04.2018, Síða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018
Nú er komið að síðustu greininni
af þremur um jarðarberjaræktun.
Þessi grein fjallar um uppskeru
jarðarberja.
Umhirða
Eins og sagt var í annarri grein þarf
að hliðra jarðarberjaklösunum til
að auðvelda aðgengi að berjunum
þannig að léttara sé að tína berin.
Þau þurfa ljós til að þroskast og taka
lit auk þess sem þarf að uppfylla
næringarþörf plöntunnar. Ef
klasarnir eru ekki dregnir fram geta
berin lagst í moldina. Ef það gerist
þegar þau eru að vaxa og þyngjast
getur myndast grámygla sem smitast
auðveldlega milli plöntuhluta
og berja. Grámyglan dregur úr
og skemmir uppskeruna. Það er
mikilvægt að aðgengi plantnanna að
vatni og næringu sé ekki af skornum
skammti þannig að berin haldi áfram
að vaxa en einnig má heldur ekki
vera of mikið af næringu því það
eykur líkur á sjúkdómum.
Uppskera
Í uppskeru skipta magn og
gæði jarðarberjanna höfuðmáli
en hvorutveggja getur verið
mismunandi á milli yrkja. Sú hlið
berjanna sem snýr að birtunni er
sú hlið sem byrjar að taka lit fyrst.
Þegar berin eru farin að stækka þá
eru þau fyrst hvít (mynd 1).
Það eru margir þættir sem
hafa áhrif á litun berjanna eins
og t.d. hitastig og birta (sól).
Utanaðkomandi áhrif geta valdið
því að berin litast mishratt (mynd 2).
Það þarf að fylgjast með þegar
berin eru tínd að þau hafi náð að
litast á öllum hliðum (mynd 3). Hins
vegar má nefna að ef berin eiga að
endast lengi eftir að þau eru tínd þá
þykir gott að tína þau áður en allar
hliðar verða rauðar eða þegar um
þrír fjórðu hlutar bersins hefur náð
rauðum lit (mynd 4). Ber sem eru
tínd með þessum hætti innihalda
ekki alveg jafn mikið af bragðefnum
og eru ekki eins sæt og ber sem eru
lituð allan hringinn (mynd 3).
Jarðarber eru tínd með ákveðinni
aðferð sem felst í því að berin eru
brotin af stilknum en ekki kippt af.
Taka þarf varlega utan um berið og
passa að það merjist ekki, annars
kemur fingrafar á berið (mynd 5), ef
það gerist verður geymsluþol bersins
minna og getur mygla komið í farið.
Ef það á að geyma berin er
nauðsynlegt að koma þeim sem fyrst
í kæli. Æskilegt hitastig til geymslu
í kæli á að vera 0-5°C.
Eftir að búið er að tína berið
roðnar það lítið og hættir að
stækka. Þess vegna þarf að passa
upp á að tína þau á nákvæmlega
réttum tíma. Of rauð ber merjast
auðveldlega og skemmast þ.a.l.
við minnsta hnjask. Best er að tína
oftar og þá minna í einu, jafnvel
daglega á sólríkum dögum. Einnig
er gott að smakka berin til að vera
viss um að þau hafi rétta bragðið,
þannig lærist það smátt og smátt að
sjá hvaða ber eru góð og hver eru
súr. Berin verða súr ef brot kemur á
klasastilkinn (mynd 6). Brot í stilk
heftir aðgengi næringarefna að
berjunum. Afleiðingar þess skila
sér í því að berin stækka minna
en þau ættu að gera, verða súr, eru
með hörðum kjarna, litast illa og fræ
setjast utar á berið.
Uppskerutímabilið fer eftir
yrkjum og umhverfi en tekur yfirleitt
um sex vikur. Stærðarflokkur
er mismunandi milli yrkja en
venjulega eru berin stór í upphafi
uppskerutímans en fara svo
minnkandi eftir því sem líður á.
Það er æskilegt að velja yrki sem
framleiðir lítið af útlitsgölluðum
berjum (mynd 7) sérstaklega ef
um mikla ræktun er að ræða og
berin seld í verslunum (mynd 8).
Upplýsingar um yrki er hægt að fá
frá söluaðilum yrkjanna.
Christina Stadler,
Börkur Halldór Bl Hrafnkelsson,
Elías Óskarsson
Mynd 6: Súrt ber, klasabrot.
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Jarðarberjaræktun í gróðurhúsi – 3. hluti:
Uppskera
Mynd 1: Hvítt jarðarber að byrja að litast (dagur 1).
Mynd 2: Berin halda áfram að litast (dagur 2, dagur 3, dagur 4).
Mynd 3: Fullþroskað ber. Mynd 4: ¾ hluti bersins er litað.
Mynd 7: Útlitsgallað ber.
Mynd 8: Jarðarber tilbúin til sölu.
Þorlákshöfn – Sími 483 1955 – www.sbskilti.is
Framleiðum allar gerðir af
skiltum fyrir landeigendur
og ferðaþjónustuaðila
ER ALLT KLÁRT
FYRIR SUMARIÐ?