Perlur - 01.09.1931, Blaðsíða 11

Perlur - 01.09.1931, Blaðsíða 11
PERLUR 127 ★ gerlega ofaukið á þessari jörð. Dóttur hennar liði eins vel, ef ekki betur, þó sín missti við, og vinirnir, þeir voru teljandi. Það yrði held- ur ekki sérlega mikið um að vera, þegar hún færi. Dauðinn var þó ekki hversdagslegur. f eðli sínu var hann hrífandi atburður, þar sem hinn deyjandi var miðdepillinn og sópaði að sér allri athygli. Hennar dauði yrði næsta sviplítill. Fátækleg og einmana legði hún upp í síð- asta ferðalagið. Frú Jörgensen þyngdi, þegar á daginn leið, og drung- inn yfir höfðinu óx. Hún var að smádotta, en hrökk jafn- harðan upp aftur og gat engrar værðar notið. Hugsunin um dauðann lá alltaf öðru hvoru í hug hennar. í einu mókinu settist að henni nýr kvíði. Hún hafði fundið votta fyrir honum einhvern tíma fyr á æfinni, en hann hvarf þá undir eins aftur. Nú kom hann, sár og stingandi. Þeir hlytu að vera öruggir og hamingjusamir, sem ættu einhvern góðan vin hinumegin, sem beinlínis biði eftir þeim. Það væri undur auðvelt fyrir þá að átta sig á hlutunum. En því var ekki þannig farið með hana. Öðru nær. Hún þekkti ekki neinn, sem vildi eða gæti beðið eftir henni þar, og hún sem var svo óframfærin og klaufa- leg. Pabbi hennar dó, þegar hún var ung. Hún hefði gjarnan kosið að vera með honum, en mamma hennar væri víst, þrátt fyrir ýmislegt, búin að taka hann til sín, og með henni langaði hana hreint ekkert að vera. Og maðurinn hennar, ekki var að sökum að spyrja með hann. Allir voru uppteknir. Frú Jörgensen reyndi að bylta sér til í rúminu. Svita sló út um hana. Hún var brennandi heit og þur í kverkunum. Hún ætlaði að biðja um að drekka, en gat þá ekki komið því fyrir sig, hvað það var, sem hana vantaði, eða hvernig hún átti að biðja um það. -----Hún var á gangi úti í undurfallegum trjágöngum. Prúð- búið fólk streymdi þar fram og aftur, glatt og hiklaust. Ógn var káp- an hennar orðin trosnuð og snjáð á börmunum. Það var reyndar engin furða eftir ellefu ár. Aldrei hafði heldur hatturinn hennar verið svona afleitur. Reyndar hafði hann alltaf verið of stór, síðan hún missti hárið, en nú gleypti hann hana alveg. Verst var, að hún vissi ekkert, hvert hún var að fara. Allt í einu heyrir hún rödd, sem hún kannast vel við. Hún sér manninn sinn, hann Pétur, koma á móti sér. — En hann er þá ekki einn. Há, fönguleg kona styðst við arm hans. Pétur er í sínu bezta skapi, eins og hann hefði verið að kaupa góðan hest. Þau tala mikið og hlæja. I þessu kemur Pétur auga á hana og kall- ar: »Nei, þú ert þá komin, Stína*. Og hún finnur að fyrri konan lítur á hana, en hún veit ekki, hvað felst í augnaráðinu, því hún vogar

x

Perlur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Perlur
https://timarit.is/publication/1437

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.