Perlur - 01.09.1931, Side 19
PERLUR
135
★
Eiðið og Heimaklettur. Ljósm. S. J.
kringum Daltjörnina, sem er í miðjum dalnum, eru reist hundruð af
tjöldum, — síðastliðið sumar 270, — þvi hver, sem vettlingi getur valdið,
flytur sig inn í Dal á þjóðhátiðinni, til að njóta náttúrufegurðarinnar,
iþróttanna og skemmtananna, sem þar eru um hönd hafðar. íþrótta-
áhugi er hér mjög mikill, enda hafa Eyjarnar á að skipa sumum beztu
íþróttamönnum landsins, eins og sýndi sig á íþróttamóti í. S. í., sem
háð var í sambandi við þjóðhátíðina síðustu.
Vestmannaeyingar eru mestu sjósóknarar landsins, og stunda sjó
á versta tíma árs, fyrir opnu hafi. Að visu er lítið róið i svartasta skamm-
deginu, en þegar eftir áramót byrjar vertíðin. Um aldaraðir hafa sótt
hjngað vermenn úr fjarlægum héruðum, en einkum þó úr nærsveitun-
um, úr Rangárvalla- og Skaftafellssýslum. Eyjarnar voru löngum mesta
aflastöð landsins, enda nældi einokunin danska fyrst klóm sínum í þær
og verzlunin hér var á fyrstu árum einokunarinnar metin jafnhátt til af-
gjalds eins og á öllum öðrum höfnum landsins til samans.
Með byrjun vélbátaútgerðarinnar eftir aldamótin síðustu jókst fisk-
framleiðslan gífurlega, enda voru orðnir hér 74 vélbátar 1920, en flestir
smáir. Síðan hefur þeim fjölgað, en smálestatalan vaxið þó miklu meira,
þvi stórir og góðir bátar voru keyptir í stað gömlu smábátanna jafnóð-
um og þeir gengu úr sér eða fórust. Árið 1929 var bátafjöldinn orðinn
nær hundraði. Á ófriðarárunum og fram til 1920 var milljónagróða ausið
hér upp úr sjónum, en lítið af því fé var lagt fyrir í kistuhandraðann.
Þá var hér ný landnámsöld. Fjöldi manna flutti hingað á þeim árum og
landnemarnir urðu að byggja sér skýli yfir höfuðið, þegar er þeir höfðu
unnið sér eitthvað inn. Útvegsbændurnir urðu að byggja sér ný fiskhús
í stað gömlu kofanna, þurkreiti undir aukna aflann, fullkomna báta í