Perlur - 01.09.1931, Blaðsíða 42
158
PERLUR
★
»Borgin þögla«. HIuii af sfórfenglegum stuðlabergsmyndum, sem ná yfir 5 km. svæði.
gulgráar, naktar grjótdyngjur, blá fjarlæg fjöll, í stuttu máli: alla þá höf-
uðliti landslaga, sem vér höfum vanizt allt vort líf, birtist oss skyndi-
lega rautt landslag (vegna hins mikla járns i klettunum), heill sjónhring-
ur af rauðum björgum! Þarna eru einnig snjóhvítar og gráar bergmynd-
anir i lögum. Á dalbrúninni og hér og þar á meðal rauðra klettanna er
grænn gróður, sem þéttist og verður meiri um sig' á botni dalsins, breið-
ir sig lit um dalsmynnið í austri og þaðan yfir hið frjósama umhverfi,
og' eykur þetta enn meir á litaskrúð þessa óvanalega landslags.
En litaskrúðið er ekki hið undursamlegasta við þennan dal, ekki
það, sem mest er um vert! Björgin þarna eru engir hversdagsklettar,
ekki venjuleg björg. Þau eru sannkölluð byggingarlistaverk með afar-
einkennilegri lögun, sem hvergi á sinn líka. Myndbreytingarnar eru ó-
teljandi. Stuðlabjörgin eru í kynlegum, jafnvel afkáralegum þyrpingum,
en mynda töfrandi fagra heildarsýn. Og landslagið skýrist og verður enn
mikilfenglegra, er augað hefur fengið tima til að átta sig á því. Hinar
ýmsu myndir stuðlabjarganna virðast þá hlutar úr samstæðri heild, og
það, sem við fyrstu sýn virðist óskapnaður einn, ummyndast nú í töfra-
heim, þar sem jafnvægi og samræmi ríkir!
Á einum stað gnæfa hátignarlegir musteristurnar til heimins; á öðr-
um stað er glæsilegt Vestu-hof með háreistum múrum, súlum og útflúr-
uðum stöllum. Hérna eru fjórir þunglamalegir munkar, sveipaðir síð-
um kuflum, myndir horfins tíma, sokknir niður í alvarlegar hugleiðing-
ar. Þarna eru runnar og heilir skógar af steinstrýtum og broddsúlum,