Perlur - 01.09.1931, Blaðsíða 44

Perlur - 01.09.1931, Blaðsíða 44
Skákir og skákdæmi verða birt á þessari síðu eftirleiðis. Skáksamband íslands hefur fallizt á að hafa um- sjón með þvi, sem birt verður. Það hefur falið hr. Hannesi Hafstein að sjá uin skákdæmin, en skákir verða auk þess birtar bæði eftir íslenzka og útlenda skákmeistara, með nauðsyn- iegum skýringum eftir skákfróða menn. Vonandi þykir lesendum rits- ins vænt um þessa nýbreytni, því svo mikið er skák iðkuð á landi hér. Skák nr. 1. Eftirfarandi skák var tefld í kapp- skákunum í Baden-Baden 1925. Árið 1927 benti Aljechin ameríska skák- meistaranum Frank Marshail á þessa skák, sem þá beztu, sem hann (Alje- ehin) hefði teflt tii þess tíma. Hvítt: Réti. Svart: Aljechin. 1. g2—g3, e7—e5. 2. Rgl—f3, e5— c4. (Hér er Aljechin óhræddur að tefla gegn vörn þeirri, sem kennd er við hann sjálfan, en leik seinna. Marshall bendir á að betra hefði verið fyrir hvit að leika Bfl—g2. 3. Rf3—d4, d7—d5. (Þennan 3. leik svarts telur Marshall betri en c7—c5). 4. d2—d3, e4xd3. (Hér bendir Marshall á að c7— c5 til að reka burtu biskupinn, sýnist að vera sterkari leikur, og áframhald- ið Bc8—f5. Hvítur hefði ekki getað leikið Rd4—b5, vegna þess að þá hefði svartur getað leikið Dd8—a5 (skák). 5. IldlXd3, Rg8—f6. (Ef hvitt hefði i 5. ieik leikið e2Xd3, hcfði það veiklað talfstöðu hvíts, vegna þess að hann er búinn að leika g2—g3. Réti segist hafa viljað láta peðin á e2 og f2 standa kyr á sinum reitaröðum, með það fyrir augum að nota þau síðar til árásar á taflstöðu svarts á miðju borðinu. 6. Bfl—g2, Bf8—b4 (skák). (Marshall telur að svartur noti sér hér af því hve hvítur er tregur til að leika c2— c3. 7. Bcl—d2, Bb4 XBd2 (skák). S. I\blXBd2, O—O (stutt hrókun). 9. c2—c4, Rb8—a6. Aijechin er mjög sækinn. Síðasti leikur hvits gaf hon- um tækifæri til að koma biskupi sin- um snemma frá c8 i góða stöðu, og hann gripur nú tækifærið til að leika leik, sem hefði verið býsna hjákát- iegur, ef öðruvísi hefði staðið á. 10. c4xd5. Ra6—b4. 11. Dd3—c4, Rb4xd5. 12. Rd2—b3, c7—c6. 13. O—O (stutt hrókun), Hf8—e8. l'i. Hfl—dl, Bc8—g4. (Marshall álitur að hvitur iiefði átt að leika hér sem 14. ieik Hal—dl, því leikurinn Hfl—dl veiki taflstöðu hvits kongsmeginn, og ieiði að síðustu til taps fyrir hann. 15. Hdl—d2, Dd8—c8. 16. Rb3—c5, Bg4—h3. 17. Bg2—f3, Bh3—g4. 18. Bf3—g2, Bg4—h3. 19. Bg2—f3, Bh3— g4. (Marshall segir að Réti hafi hald- ið því fram, að hér hafi hann hafnað hinu boðna jafntefli (þrátefli), vegna þess, að hann hafi álitið sig hafa hag- kvæma taflstöðu. Ég get ekki gert að því, segir Marshall, að mér virðist hann sýna litla dómgreind í þessu). 20. Bf3—hl, h7—h5. Úr þvi að Alje- chin þurfti að halda taflinu áfram, á- kvað hann að sækja fram kongsmeg- in, til að jafna upp það sem taflstaða hans er lakari drotningarmeginn. 21. b2—b4, a7—a6. 22. Hal—cl, h5 —h4. (Réti telur að 22. leikur sinn Hal—cl) sé sin fyrsta villa i þessu tafli, sem nokkra verulega þýðingu hafi. Hann álítur að hann hefði átt að leika strax a2—a4, tvöfalda síðan hróka sina á a reitaröðinni, og loks leika b4—b5. 23. a2—a4, h4Xg3 24. h2Xg3, Dc8—c7. (Sakleysislegur leik- ur segir Marshali — og bætir þó við, sem er fyrirboði mjög fallegrar leikja- raðar). 25. b4—b5, a6xb5. (Þessi 25 leikur hvíts (b4—b5) er önnur, og mjög alvarleg villa. Varnarleikur var hér nauðsynlegur fyrir hvítan, og rétti <

x

Perlur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Perlur
https://timarit.is/publication/1437

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.