Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Blaðsíða 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
3. TÖLUBLAÐ
9. ÁRGANGUR 1996
Ritstióri og ábyrgðarmaður:
Helgi Seljan
Umbrot og útlit:
Fjóla Guðmundsdóttir
Prentun:
Steindórsprent/
Gutenberg h.f.
Ljósmynd á forsíðu:
Gerður Arnórsdóttir.
Frá ritstjóra
Enn einu tölublaði Fréttabréfs Öryrkjabandalagsins er nú fylgt
áleiðis til lesenda með óskum beztu um allan hag og von um
það að sólríkt sumarsins yndi hafi öllurn nokkra auðnubót fært. Sem
alltaf áður er blaðið sent ókeypis til allra
félagsmanna í félögum okkar og raunar víðar á
vettvang, enda fer blaðið út í yfir 15 þúsundum
eintaka. Það leiðir af sjálfu sér með lesendahóp
svo fjölmennan og margbreytilegan um leið að
erfitt getur verið að véla um efnisval, þar sem
freistað er til sem flestra að ná, fanga hug sem
allra flestra á einhvern veg. Sumt efni er eflaust of
svipað frá blaði til blaðs, en af sjálfu leiðir, því baráttumálin og
viðfangsefnin eru ærið lík frá einum tíma til annars og vissulega setur
varnarbaráttan nú um stundir sitt ákveðna mark á svo margt í allri
umfjöllun mála. Fréttir af vettvangi félaganna svo og frásagnir af
ýmsum atburðum taka ævinlega allnokkurt rými, reynt er að vera
með viðtöl sem vermt gætu hug svo og annað efni til upplífgunar
andans og umhugsunar um leið, allt yfir í sögur og ljóðmæli. Eftir
stendur þó sem áður að hinn almenni félagsmaður finnur ekki næga
hvöt hjá sér til að stinga niður penna eða ýta á tölvutakka sér til
sálubótar, okkur til ærins gagns. Eitt er víst, yfrið næg eru um-
fjöllunarefnin og enn send út áskorun til hinna mörgu mætavel
skrifandi sem gætu auðveldlega lagt okkur lið. Það húmar að og
haustar og vonandi fer vetur konungur ekki um okkur of óblíðum
höndum. Eftir sólblíða sumardaga tekur við önn og erill á ýmsa lund
og félagsstarfið stendur í blóma. Von okkar æðst sú að fram megi
þoka málum sem mest til aukinnar farsældar fyrir fatlað fólk, til ríkara
réttlætis og vermandi velferðar.
H.S.
EFNISYFIRLIT Félag nýrnasjúkra 10 ára Molar til meltingar 27 28
Gluggað í góð rit og gott betur 30
Frá ritstjóra 2 Af dágóðri iðju dægranna 32
Breyttir tímar 3 Iþróttir og afreksfólk 34
Vígsla fyrir erfiðara hlutverk 4 Sautjánda aðildarfélag Sjálfsbjargar 34
Þakkað fyrir sig 8 Fréttir í fáum orðum 35
Daufblindrafélag Islands 9 Ljóð Arnórs Þorkelssonar 35
Norræn skilgreining 9 Ar var alda 36
Ráðstefna Mannréttindastofu íslands 10 ÖBI færir Greiningar- og
Þýtt ljóð um Tourette 11 ráðgjafarstöð ríkisins peningagjöf 36
Hlerað 11,13,15,17,26,29,31,33,37,39,44,45 Ljóð Unnar Sólrúnar Bragadóttur 37
Héraðsdómslögmaður haslar sér völl 12 Þing Bandalags fatlaðra 38
Útskrift í Hringsjá 13 Sérstök lán 38
28. þing Sjálfsbjargar 14 Úthlutað úr styrktarsjóði 39
Heimsóknin 16 Frá Parkinsonsamtökunum 39
Að lifa með einhverfu 18 Fræðslubæklingur um flogaveiki 40
Úthlutun styrkja 22 Ljóð Sigurðar Gunnarssonar 40
Dauðsföll af völdum ýmissa Gluggað í góð rit og gott betur 41
hjartasjúkdóma 23 Góðum bæklingi gerð skil 44
Hugleiðing um atvinnumál fatlaðra 24 Örlítið af Umhyggju 45
Ljóð Valgeirs Sigurðssonar 26 í brennidepli 46
2