Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Blaðsíða 30
Gluggað í góð rit og gott betur
s
12. tbl. Klifurs, fréttablaði Sjálfs-
bjargar - landssambands kennir
ýmissa góðra grasa. Sigrún Pálsdóttir
fjármálafulltrúi sambandsins leggur
orð í belg um það að rækta garðinn
sinn. Minnir á að þungamiðja alls
starfs sé sem fyrr hin eilífa réttinda-
barátta. Einnig ræðirhún um Hollvini
Sjálfsbjargar og þá miklu björg sem
þeir færa í búið. Viðtal er við Jónu
Kristínu Halldórsdóttur, ritara Sjálfs-
bjargar á Vopnafirði, sem segir að
heilmargt hafi þar eystra þokast í rétta
átt í málefnum fatlaðra. Hún veitir
fullfrísku fólki þarfa áminningu
varðandi bílastæði fatlaðra, sem eiga
fyrir þá eina að vera. Kynnt er nýjung
frá Össuri hf., sérgerðir stólar sem
veita þeim sem þar sitja mun virkari
stöðu og eru mjög góðir fyrir þá sem
eru með lömun, vöðvasjúkdóma,
spasma eða ósjálfráðar hreyfingar.
Mikill og góður fróðleikur er um MS
sjúkdóminn og MS félagið kynnt um
leið. Og svo skrifar hún Valey Jónas-
dóttir formaður Sjálfsbjargar á Siglu-
firði raunasögu frá 3. des. sl. á al-
þjóðadegi fatlaðra, þar sem hún í raun
leggur aðaiáherzlu á það að meiri
athygli verði á deginum vakin í
fjölmiðlum okkar. Verður ritstjóri þá
að minna á hve erfiðlega okkur hefur
gengið að fanga athygli fjölmiðla af
þessu tilefni. Ritstjóri Klifurs er
Ingólfur Birgisson.
*
Fréttaþjálfinn -
blað útskriftar-
nemenda Starfsþjálf-
unar fatlaðra barst
okkur á vordögum, að
vanda fjölbreytt að
efni. Þar kynna út-
skriftarnemar ýmis-
legt s.s. starfskynn-
ingu sem nemar fara
í sér til mikillar
ánægju og gagns. í
blaðinu er viðtal,
smásaga, ljóð, ljóð-
skáld kynnt, dansinn
rómaður og fleira efni
sem ber nemendum
hið ágætasta vitni.
Ferð til vítis eftir
Mravinac Zlatan
fangar þó hug manns mest, segir þar
af ferð þeirra hjóna frá Islandi til
Sarajevó um jólaleytið á liðnum vetri,
en Zlatan er einmitt þaðan. Frásögn
hans af ferðalaginu til hins stríðs-
hrjáða lands lætur engan ósnortinn.
En aftur að léttara efni. Nemandi einn
greinir frá fyndnum atvikum af
heimaslóð vestra m.a. þessu: Gamall
maður hafði það fyrir sið þegar hann
var að fara með rútunni, að þá labbaði
hann alltaf af stað áður en rútan kom,
gekk jafnvel fleiri kólómetra.
Aðspurður kvaðst hann gera þetta til
að flýta fyrir rútunni.
*
Fréttabréf Heyrnarhjálpar 1. tbl.
þessa árs barst hér á borð inn árla
vors. Þar kennir margs konar efnis.
Bréf er frá skagfirzkri konu um nauð-
syn enn öflugra foreldrastarfs innan
Heyrnarhjálpar og undir það tekið af
framkvæmdastjóra félagsins. Minnt er
á aðgengismál heymarskertra þar sem
tónmöskvinn trónir hæst - krafan um
tónmöskva inn í allar opinberar bygg-
ingar sett á oddinn. Svo er sagt frá val-
inu á Skýrmæltasta fjölmiðlamann-
inum, en frá þeirri ágætu athöfn hefur
þegar verið greint hér. Sagt er frá ferð
þriggja heyrnarskertra ungmenna frá
Heyrnarhjálp á alþjóðlega ráðstefnu í
Danmörku. Aðalfundur NNS - sam-
taka heyrnarskertra á Norðurlöndum
verður í Reykjavík 3.-6. október.
Sagt er frá niðurstöðum nefndarstarfs
um túlkamál heymarskertra, heyrnar-
lausra og daufblindra, en því nefnd-
aráliti verða hér skil gerð. Fréttir eru
frá Samskiptamiðstöð heymarlausra
og heyrnarskertra m.a. um námskeið
þar, táknmálsnámskeið fyrir börn og
hraðnámskeið í táknmáli. Það er
Jóhanna S. Einarsdóttir framkv.stj.
sem á þessu fróðlega blaði ber ábyrgð
alla.
*
Fréttabréf Samtaka psoriasis- og
exemsjúklingahefurborizt okk-
ur með efnisgnótt ærinni. I formanns-
spjalli er mótmælt harðlega þeirri
ákvörðun tryggingaráðs og ráðherra
að fella niður ferðir til sólarlanda fyrir
psoriasis- sjúklinga, enda lagaheim-
ildin enn í fullu gildi. Sömuleiðis
greinir Helgi formaður frá undir-
búningi að gerð fræðslumyndar um
psoriasis. Ritstjórinn hvetur í sínu
spjalli til virkara starfs félagsmanna
og að þeir afli um leið fleiri félaga.
Húðsjúkdómalæknir svarar spurnum
félagsmanna og Jón Guðgeirsson
húðsjúkdómalæknir er með fróðlega
hugleiðingu um tjörumeðferð sem
hann segir að hafi verið notuð við
húðsjúkdómum meira en 2000 ár, en
þó eru enn ekki með öllu ijós áhrif
tjöru á psoriasis. Tjara er hins vegar
bæði bólgueyðandi og kláðastillandi.
Stefán Einarsson efnaverkfræðingur
greinir frá psórias-
isdegi í Þýskalandi
og þingi því tengdu
sem fjallaði um
sjálfshjálp og vísindi.
M.a. rekur hann
helztu atriði úr fyrir-
lestri dr. Schaefers
sem er húðlæknir og
formaður þýzku
psóriasissamtakanna
og Evrópusam-
bandsins, og sömu-
leiðis erindi dr. Klaus
Bosse húðlæknis, en
Stefán fullyrðir í
lokin að sjálfshjálpin
hafi sannað gildi sitt,
hann hefur sjálfur
sannreynt það.
Þegar öryggisnetið heldur ekki lengur. Teikning úr þýzku blaði.
30