Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Blaðsíða 40
Fræðslubækl-
ingur um
flogaveiki
LAUF- landssamtök áhugafólks
um flogaveiki hafa gefið út afar
vandaðan og vel unninn bækling um
flogaveiki með undirfyrirsögninni:
Fræðsla um krampa og skyndihjálp.
Bæklingurinn er 16 síður í bókarformi
eða stór einblöðungur með lesmáli
góðu báðum megin, hvort sem menn
kjósa nú að hafa. Mikill og notadrjúg-
ur fróðleikur er þarna á ferð og skal
aðeins farið ofan í allra helztu atriðin
hér. I formálsorðum segir: “Það eru
minnst 2500 ástæður fyrir því að þessi
bæklingur var skrifaður, en það er
áætlaður sá fjöldi íslendinga sem hef-
ur flogaveiki”. Farið er yfir hvað
flogaveiki sé þ.e. algeng truflun á
taugaboðum í heila og þar m.a. tekið
fram að flogaveiki sé aldrei smitandi.
Þá er minnt á hinar ýmsu tegundir
floga, altækt krampaflog, störuflog,
sértæk flog. Vikið er vel að viðbrögð-
um við krampaflogum við sérstakar
aðstæður: í flugvél, í vatni og í strætis-
vagni. Farið er yfir spuminguna : Er
þörf á að leita bráðamóttöku? og leitað
svara þar við, sem mjög leiðbeinandi
eru. Síðan er minnt á ýmis einkenni
sem til flogaveiki geta bent og fólk
ætti þá að athuga betur og fá svör við.
Sérstakur kafli er helgaður upplýsing-
um sem ætlaðar eru lögregluyfirvöld-
um. Þar er m.a. farið yfir algengustu
lyf sem notuð eru við flogaveiki.
Sömuleiðis er m.a. minnt á það að
fram komi annarleg hegðun án þess
að viðkomandi sé meðvitaðurum það.
Hinum megin á einblöðungnum eða
hinar átta síðurnar fjalla á skýran og
greinargóðan hátt um fræðslu um
krampa og skyndihjálp. Farið er yfir
hinar ýmsu tegundir floga: hvernig
þau lýsa sér, hvernig eigi að bregðast
við og hvað eigi ekki að gera og svo
er bent á hvað slík flog séu ekki s.s.
að ráðvilluflog sé ekki áfengisvíma,
lyfjavíma, geðveiki eða ósiðlegt
athæfi. Þama er í knöppu en ljósu máli
fjallað um hverja tegund floga, þeim
skipt niður og viðbrögð við þeim síð-
an útfærð eftir því sem við á. Floga-
tegundireru: Altæk 11 og - krampaflog,
- altæk flog - störuflog, einföld sértæk
flog, fjölþætt sértæk flog - ráðvillu-
flog, talflog, kippaflog og ungbarna-
kippir. Glögg og mjög greinargóð
lýsing er á öllum þessum afbrigðum.
Bæklingur þessi er hið bezta unninn
og að honum umtalsverður fengur
þeim sem fræðslu hans og ráðlegginga
njóta. LAUF - er að þessu riti sínu
mikill sómi. H.S.
Sigurður Gunnarsson fv.
skólastjóri:
Við krá í London
Hér er”angan” illra veiga,
ólánsmenn að staupa sig.
Við þá ekkert vil ég eiga,
vel mér aldrei þeirra stig.
Bakkus kóngur, blendinn löngum,
bruggar mörgum lokaráð,
veldur kjörum kostaþröngum,
kætist yfir margri bráð.
Marga valda dáðadrengi
dregur kóngur til sín heim,
ærir þá og espir lengi,
eiturveigar byrlar þeim.
Ef þú hlýðir kóngs þess kalli,
kýst þér vist í sölum hans
það mun verða þér að falli,
það er leið hins blinda manns.
Fylgd hans aldrei veldu, vinur,
við þér, án hans, lífið hlær.
Vertu ættar óskahlynur,
ísalandi sonur kær.
Sigurður Gunnarsson
Eftirmáli ritstjóra:
Hinn gagnmerki skólamaður, Sigurður Gunnarsson, lézt á liðnu vori.
Hann lét ritstjóra í té ýmislegt sem seinna mun moðað úr. Kvæði það
sem hér er birt mætti okkur til ærinnar umhugsunar verða svo sannarlega.
Blessuð sé minning dáðríks drengskaparmanns.
40