Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Blaðsíða 35
Fréttir í fáum
orðum
✓
Aeinhverjum síðustu dögum
Alþingis var samþykkt þings-
ályktun um menningar- og tóm-
stundastarf fatlaðra. Þar segir að fela
skuli félagsmálaráðherra að láta
kanna á hvern hátt fatlaðir geti notið
sumarleyfa, tómstunda, lista og menn-
ingarlífs á sama hátt og aðrir í þjóð-
félaginu og gera tillögur um úrbætur.
Tryggt verði að fulltrúar frá samtök-
um sveitarfélaga, svæðisskrifstofum
um málefni fatlaðra, Öryrkjabanda-
laginu og Þroskahjálp komi að mál-
inu. Svo mörg voru þau orð og síðan
er að sjá hvert framhald verður hér á,
en flutningsmaðurinn, Margrét Frí-
mannsdóttir, fullyrðir að því muni vel
eftir fylgt.
*
Verið er að gera úttekt á þjónustu
við fatlaða í Reykjavík af starfs-
hópi á vegum félagsmálaráðuneytis
og er það vel að koma því á hreint
hvert umfang og eðli þessarar þjón-
ustu er í víðtækastri merking. Uttekt-
in færir vonandi þann árangur að
glöggva myndina sem leið til aðgerða
þar sem helzt á skortir. Fréttabréfið
mun reyna að fylgjast hér með og fá
birtar helztu niðurstöður, ef unnt er.
*
Aaðalfundi Heyrnarhjálpar var
samþykkt gerð svohljóðandi:
“Aðalfundurinn skorar á heilbrigðis-
yfirvöld að auka til muna fjármagn til
Heyrnar- og talmeinastöðvar Islands
svo stofnunin geti sinnt lagalegri
skyldu sinni sem m.a. er að útvega
nýjasta heymartæknibúnað sem völ er
áogað skipuleggja þjónustuferðirút
á land”. Formaður Heyrnarhjálpar er
Friðrik Rúnar Guðmundsson og aðrir
í stjóm: Anna Guðlaug Gunnarsdóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir, Guðjón
Yngvi Stefánsson og Helga Kristins-
dóttir.
*
Itilefni af 50 ára afmæli Olíu-
félagsins hf. veitti félagið tvo
styrki til mannræktarmála, hvorn á
eina milljón króna. Okkar ágæta
aðildarfélag - Styrktarfélag vangef-
inna fékk annan styrkinn og er vel að
komið. í frétt frá Olíufélaginu hf. segir
m.a.: “Starfsemi félagsins hefurborið
mikinn og góðan árangur og er viður-
kennt brautryðjendastarf í mannrækt
á Islandi.”
*
Landssamtök hjartasjúklinga og
Rauði kross íslands afhentu síðla
júlímánaðar gjafabréf til Barnaspítala
Hringsins að upphæð 15 milljónir
króna. Skal fénu varið til kaupa á
handlækningatækjum og hjartaómsjá
fyrir börn. Um leið var kynntur af
hálfu heilbrigðisráðhema, Ingibjargar
Pálmadóttur, samningur milli aðila
um að á haustdögum skyldu hafnar
hjartaskurðaðgerðir á börnum. Þá ætti
að vera unnt að framkvæma 75% allra
aðgerða á börnum hér heima.
Spamaður á hverja aðgerð innanlands
miðað við kostnað erlendis nemur um
l.lmillj.kr. H.S.
Arnór Þorkelsson
frá Arnórsstöðum:
Gullbringum
Ég framhjá gekk, þar sem fallinn var bær
með fúa og moldarhauga.
En liðið mannlíf í hug mínum hlær,
því hér var kannski svo falleg mær
með indælis blik í auga.
Og bærinn drúpir, það heyrist hnegg
og hér er svo fallegt engi.
Ó, hvað ég gæti við gróinn vegg
grátið mikið og lengi.
Niðursetningurinn
Tvö lítil augu vaka en hjartað hrærist ótt.
Húmið það er komið og úti er þokunótt.
Því túnið þarf að vakta og ær því reka úr
og eins ef hestar koma, það má ei sofna dúr.
En þessi litla stúlka hún átti ei nokkurn að
og einmitt sveitarstjórnin henni kom á þennan stað.
Og hvernig gast þú trúað því, vota vorsins nótt
að vaki lítið barn þegar aðrir sofa rótt.
Höfundur er aldraður málarameistari.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
35