Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Qupperneq 12

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Qupperneq 12
HÉRAÐSDÓMSLÖGMAÐUR HASLAR SÉR VÖLL ✓ Afjórðu hæðinni að Hafnarstræti 20, næst fyrir ofan sjálfan Framsóknarflokkinn eiga aðsetur lögmenn þrír sem nefna sig: Lögmenn við Lækjartorg. Þangað held ég einn sólríkan sumar- dag til fundar við einn þeirra þriggja, þó ekki í neinum málflutn- ingserindum, heldur einvörðungu til að afla mér fróðleiks- korna og koma þeim svo á framfæri við lesendur þessa blaðs. Lögmaðurinn heitir Omar Stefáns- son, 39 ára Reykvík- ingur, sem þarna er að hasla sér völl, en lögmannsstofan tók til starfa í september 1995. Foreldrar Omars voru: Stefán Pétursson málarameist- ari og Fanney Ingimundardóttir, en þau eiu bæði látin. Omar lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina 1977 og cand.juris frá Háskóla Islands varð hann 1990 með góðri l.einkunn. Frá 1990varÓmar fulltrúi á lögmannsstofu Jóns Sigfúsar Sigurjónssonar allt til ársins 1995. s Omar er verulega sjónskertur og það er bróðir hans einnig. Þetta er sagður erfðasjúkdómur, en þó er ekki vitað um sjónskerðingu í ætt þeirra. Omar kveður sjónfrumur skiptast í svokallaðar keilur og stafi. Hjá honum eru keilumar mikið til óvirkar sem m.a. veldur því að hann greinir illa liti. Stafimir em hins vegar í lagi. Omar kveður sjúkdóm þennan haga sér misjafnlega, allt frá lítilli sjón- skerðingu yfir í blindu. Omar segist engu að síður hafa verið í almenna skólakerfinu alla tíð þ.e. frá barna- skóla og upp í háskóla. Það hafi geng- ið ágætlega en auðvitað með rneiri fyrirhöfn ömgglega en aðrir þurftu á að halda. Hann kveðst hafa staðið sig bærilega og allt gengið snurðulaust fyrir sig. Hann minnist frá bernsku og æsku ekki annarrar aðstoðar en þeirrar að kennarar hafi á próftíma spurt hvort hann þyrfti aukaaðstoð, sem yfirleitt hafi ekki verið. Sama gilti á menntaskólaárun-um nema Omar segist hafa fengið að taka efnafræðiprófið munnlega enda formúlufjöldi ærinn þar. Ómar tók sér hlé eftir stúdentspróf til að átta sig á því í hvað helst skyldi fara. Hann gerði sér glögga grein fyrir því að sjóndepran setti rnörk urn val. M.a. langaði hann í líffræði eða jafn- vel læknisfræði en þótti það ótækt af þessum ástæðum. Síðasta daginn fyrir skráningarlok var hann enn óráðinn, en velur svo lögfræðina. M.a. valdi hann lögfræðina vegna tungumála en Ómar var í stærðfræði- deild, leit svo á að svo staðbundið nám - íslenzk löggjöf - krefðist ekki alltof mikils lesturs á erlendum málum, en svo reyndist þó ekki. Lögfræðinámið hefur hann 1979 og segir að hann hafi í Háskóla íslands mætt mikilli velvild. Allir boðnir og búnir til beztu aðstoðar. Hann lýkur svo prófum um áramótin 1984 - 85, en tekur sér svo hlé til kandidatsritgerðar, sem dregst úr hófi m.a. vegna fjölskyldustofnunar og þess sem því fylgdi, svo og af fleiri gildum ástæðum. En svo var drifið í þessu og fullgildur cand.juris verður Ómar svo 1990. Hann hverfur á vit minninganna um námið. Auðvitað hafi lestrinum fylgt geysilegt álag. Hann hafi eignast góða félaga og lesið og lært með þeim, slrkt samstarf er bæði skemmtilegra og gefur lífinu gildi um leið. Þessa náms- samvinnu telur Ómar raunar forsenduna fyrir því hjá sér að lokið var náminu. Þegar ég sé Ómar rýna í bækur sér til upprifjunar þá geri ég mér þess grein hversu mikið álag hefur fylgt þessu og fylgir óneit- anlega. Hluti námsefnis, m.a. ýmsar glósur sem þetta byggðist að verulegu leyti á, var þó lesinn inn á band. Hann var í lögfræðinni samtíða Jóhanni Pétri Sveinssyni og á um hann mætar minningar. Þeir tveir voru á þeirri tíð einu fötluðu nemendurnir. Báðir fengu þeir að taka prófin sér, sinn upp á hvom máta. Ómar var svo í fimm ár lögmanns- fulltrúi, vann á lögfræðiskrifstofu Jóns Sigfúsar Sigurjónssonar hdl. Þar fékkst hann við hin fjölbreytilegustu málefni sem gáfu vissulega breiðan grunn að byggja á. Þar var engin sér- hæfing á ferð í tilteknum málaflokk- um heldur við flest fengist. Ómar nefnir aðeins málaflokka eins og bóta- uppgjör vegna slysamála, sakamál, einkamál, forræðismál, þrotabúsmál o.fl. ✓ Omar leysti út sín lögmannsrétt- indi 1 .júní 1994, en hann er hér- aðsdómslögmaður. Og svo var út í sjálfstæðan rekstur farið á haustdögum 1995 - í september það ár. 12

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.