Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Qupperneq 14
28. ÞING SJÁLFSBJARGAR
Hinn 7. - 9. júní sl. var 28. þing
Sjálfsbjargar - landssambands
fatlaðra haldið. Þingsetning fór fram
7. júní kl. 15 á Grand Hótel Reykja-
vík. I upphafi var fluttur: Söngur
Sjálfsbjargar, lag Sigursveins D.
Kristinssonar við ljóð Asgeirs Ingv-
arssonar, en ljóðið einmitt birt hér í
blaðinu. Sigrún V. Gestsdóttir söng
við undirleik Sigursveins Magnús-
sonar. Formaður Sjálfsbjargar, Guð-
ríður Olafsdóttir, flutti því næst þing-
setningarræðu. Hún minntist í upphafí
Jóhanns Péturs Sveinssonar form.
Sjálfsbjargar sem sýnt hefði fram á að
meðalmennskan væri ekki nauðsyn-
leg örlög fatlaðra. Meginmál þessa
þings yrðu lífeyris- og tryggingamál
og þær skerðingar sem þar hefðu á
orðið. Einkum nefndi hún hið ört
minnkandi vægi örorkulífeyris og
nauðsyn þess að rétta þar við, svo og
yrði samfélagið að viðurkenna um-
framkostnað þann sem af fötlun hlyt-
ist. Guðríður benti á hve margir
öryrkjar sæktu um félagslega aðstoð
Reykjavíkurborgar en þeir væru um
23% þeirra sem sækja. Heilbrigðis- og
tryggingaráðherra Ingibjörg Pálma-
dóttir ávarpaði þingið. Kvað ákvarð-
anir ýmsar sem á öryrkjum hefðu bitn-
að hafa verið sér afar erfiðar. Ræddi
m.a. um forgangsröðun í heilbrigðis-
kerfinu og knýjandi nauðsyn þess að
þar væri grunnþjónustan traust. Ráð-
herra lagði áherzlu á að leita þyrfti
haldbærra skýringa á því hvers vegna
örorkulífeyrisþegum hefði fjölgað svo
mjög að undanförnu. Árnaði þinginu
allra heilla í störfum sínum sem verða
mættu sem gifturíkust.
á flutti formaður Öryrkja-
bandalags íslands, Ólöf Ríkarðs-
dóttir, ávarp. Hún greindi m.a. frá
framkvæmdaáætlun fyrir fatlaða hjá
Evrópusambandinu - Helios II, en
Öryrkjabandalagið er aðili þar að.
Sömuleiðis sagði Ólöf frá fyrirhug-
aðri ráðstefnu á hausti komanda sem
haldin yrði í samstarfi við Þroskahjálp
með yfirskriftinni: Ferðalög fyrir alla.
Færði Sjálfsbjörg hlýjar óskir og
kveðjur frá Öryrkjabandalaginu. Milli
atriða sungu Borgardætur og glöddu
með því hug og hjörtu fólks, en
þessari athöfn stýrði Sigurður
Einarsson framkv.stj. af mikilli rögg-
semi. Þingið var svo haldið í salar-
kynnum Sjálfsbjargar og skal hér að-
eins á örfáu tæpt sem á þinginu gerð-
ist, en það var málefnalegt og tók á
mörgu. I fyrsta lagi bættist landssam-
bandinu nýtt félag, Félag heilablóð-
fallsskaðaðra, og var aðild þess ein-
róma samþykkt og formaður félags-
ins, Hjalti Ragnarsson, þakkaði hinar
ágætu móttökur. I skýrslu stjórnar
kom fjölmargt fram um starfið á und-
angengnum tveim árum og ýmislegt
Söngur
Sjálfsbjargar
Lag: Sigursveinn D.Kristinsson
Ljóð: Ásgeir Ingvarsson
Rofin er hula húms og skugga
hafinn dagur nýr,
dagur lífs og Ijúfra anna
langur, bjartur, hlýr.
Förum saman fram til starfa
fyllum hópinn stóra, djarfa.
Vaknandi lífstrú einn og alla
að einu marki knýr.
Er ekki líkt og haltur hafi
hækju á eldinn fleygt,
eða blindur gæfugull
í götu sinni eygt.
Við að skapa verk til þarfa
vinna, nema, lifa, starfa.
Við að hafa í vinarbrjósti
vonarloga kveikt.
af því vissulega komið fram hér á
síðum Fréttabréfsins áður. Þar er m.a.
getið um stofnun minningarsjóðs um
Jóhann Pétur Sveinsson, en í skipu-
lagsskrá sjóðsins er kveðið á um að
styrki skuli veita: a) til að styrkja
hreyfihamlaða til náms og b) að
styrkja einstök málefni með aðgengi
fyrir hreyfihamlaða í huga.
Langur kafli er um vamarbaráttu
liðinna ára fyrir lífskjörum líf-
eyrisþega, en Sjálfsbjörg verið þar
sem alltaf áður hinn vökuli vamaraðili
og oft orðið af árangur nokkur sem
betur fer. Þar hefur Sjálfsbjörg verið
samstíga Öryrkjabandalagi Islands og
þess vegna hafa mál þessi verið ræki-
lega talin upp og tíunduð hér á hverj-
um tíma. Sagt er frá leikritasam-
keppninni á alþjóðadegi fatlaðra svo
og viðurkenningum þá fyrir gott
aðgengi. Vikið er að heimsóknum til
félagsdeilda og hugmyndasamkeppni
skólabama, ljóðum þeirra og myndum
og þá getur ritstjóri ekki stillt sig um
að birta hér þetta ljóð Elísu Kristínar
Amarsdóttur, Húnavallaskóla.
Hjólastóllinn
er hækja fóta minna.
Hjólastóllinn
er styrkur handa minna.
Hjólastóllinn
er hafskip vona minna.
„l
Hjólastóllinn
er heimild tilveru minnar.
14