Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Page 33
félögum, en ekki öllum og það er tekin
staðgreiðsla skatta af þeim tekjum svo
að ekki er í öllum tilfellum unt að
ræða viðbót fyrir fólk þó það fái
greiddar húsaleigubætur. Því miður
hefur hagsmunabarátta samtaka fatl-
aðra að undanförnu verið varnar-
barátta. Sífellt er verið að breyta lög-
um og reglum á þann veg að skera
niður kostnað í heilbrigðis- og trygg-
ingakerfinu sem kemur óneitanlega
hart niður á þeirn sem minnst hafa
milli handa. Auðvitað er erfitt að meta
lífsgæði fólks. En gott húsnæði og
fjárhagslegt öryggi er forsenda þess
að skapa vellíðan fólks og að það geti
notið lífsins eins vel og unnt er. Hags-
munasamtök fatlaðra hafa ærið starf
að vinna og mega hvergi slaka á. Það
þarf að halda vörð um velferðarkerfið
svo það megi vera þjóð okkar til sóma.
Hverjir eru helztu samstarfsaðilar
þínir í hinum ýmsu málum?
Helztu samstarfsaðilar mínir eru
eins og áður sagði í Tryggingastofnun,
einnig er samstarf við félagsmála-
stofnanir, svæðisskrifstofur málefna
fatlaðra, Geðhjálp, heimaþjónustu
Reykjavtkurborgar, heimahjúkrun og
fleiri aðila. Eg reyni að nýta vel þá
þjónustu sem í boði er á hverjum tíma
hjá öllum þessum aðilum. Með tím-
anurn hefur þróast mikið og gott sam-
starf við alla þessa aðila. Ég ætla að
fara nokkuð nánar út í hvaða þjónustu
um er að ræða. Heimaþjónusta er á
vegum Reykjavíkurborgar og heima-
hjúkrun. Nú starfa 10 einstaklingar í
heimaþjónustu í Hátúni. Þeir sjá um
120 einstaklinga og þar af fá 12
einstaklingar daglegt innlit þ.e. einnig
um helgar. Margir fá einnig heima-
hjúkrun reglulega. Nokkuð margir
einstaklingar fá heimsendan mat í
hádegi. Frekari liðveisla er persónu-
bundin þjónusta, veitt fötluðu fólki
sem býr sjálfstætt. Frekari liðveisla er
viðbót við almenna þjónustu sveitar-
félaganna og er veitt þegar almenn
þjónusta nægir ekki til að koma í veg
fyrir dvöl á stofnun. Hún er veitt í
gegnurn svæðisskrifstofur málefna
fatlaðra. Liðveisla er veitt til að rjúfa
félagslega einangrun fatlaðra, veitt af
félagsmálastofnunum. Nokkrir ein-
staklingar hér í Hátúni fá þessa þjón-
ustu og fer hún vaxandi. Þess má geta
að ég hef einnig haft samstarf við
Starfsþjálfun fatlaðra. Nokkrir ein-
staklingar í húsnæði Hússjóðs hafa
sótt nám þar með góðum árangri. Það
eru einnig alltaf einhverjir sem hug
hafa á að fara út á atvinnumarkaðinn
og hef ég þá gjarna samstarf við
Atvinnumiðlun fatlaðra í Reykjavík.
Ég vil einnig nefna að ýmis þjónusta
er í boði fyrir fólk sem orðið er yfir
67 ára. Þá nefni ég sérstaklega félags-
starf aldraðra í Bólstaðarhlíð í Reykja-
vík. Félagsstarf aldraðra fer nú fram í
14 miðstöðvum víðsvegar urn borgina
þar sem unnið er mikið og gott starf.
Dagvist Sjálfsbjargar er í Hátúni 12,
þar eru alltaf nokkrir íbúar héðan sem
njóta þess að vera í Dagvistinni ein-
hverja daga í viku. Að lokum vil ég
nefna sérstaklega einn hóp fatlaðra
sem því miður hefur verið nokkuð
afskiptur í þjónustu en nú er verið að
gera átak í að bæta úr því. Geðhjálp
hefur boðið fram aðstoð sína og gert
þjónustusamning við félagsmála-
ráðuneytið og Svæðisskrifstofu
Reykjavíkur um rekstur stuðnings-
þjónustu við geðfatlaða. Nokkur
reynsla er af því starfi og fer það sam-
starf vaxandi og vænti ég góðs af því.
Hvernig er svo ástatt
hjá Hússjóði í dag?
Eins og fram hefur komið í fyrri
greinum hefur biðlisti Hússjóðs verið
Hlerað í hornum
Virðulegur borgari sendi allan sinn
þvott í þvottahús. Honurn þóttu hvítu
skyrtumar sínar ekki nógu hvítar og
sendi næst áfestan miða við eina
skyrtuna þar sem á stóð:
lokaður um tíma vegna þess hve biðin
eftir húsnæði hjá okkur er löng. Bið-
listi Hússjóðs hefur sífellt lengst. Eftir
að honum var lokað var ákveðið að
biðja alla þá sem áttu umsókn hjá
sjóðnum að sækja um aftur, þ.e. að
endurnýja umsókn sína, ef þeir höfðu
þörf fyrir húsnæði áfram. Hannað var
nýtt umsóknareyðublað með ítarlegri
upplýsingum en áður. Nú hefur verið
farið yfir umsóknir sem bárust og það
metið hverjir eru í mestri þörf fyrir
húsnæði. Alls bárust yfir 200 umsókn-
ir. Á seinasta ári var unnt að leysa hús-
næðisvanda 70 einstaklinga. Það er
hvergi nærri nóg því að enn eru alltof
margir umsækjendur óafgreiddir og
vitað er um fjölda fólks sem bíður eftir
að við opnum fyrir nýjar umsóknir.
Hvað að lokum?
Það er ekki hægt að ætlast til þess
að frjáls félagasamtök sinni nær
alfarið húsnæðisþörf öryrkja. Brýn
nauðsyn er á að sveitarfélögin um allt
land og þá sérstaklega Reykjavík, þar
sem svo stór hluti öryrkja býr, komi
mun betur til móts við þennan hóp
en nú er gert. Mikil og góð samvinna
þeirra sem vinna í þessum málaflokki
þarf að vera fyrir hendi til að sem
allra flestir fái úrlausn sinna mála.
Kristín Jónsdóttir.
Aðeins rneiri sápu. Honum brá hins
vegar í brún þegar hann fékk hreina
þvottinn næst úr þvottahúsinu og
flennistór miði var festur við einar
nærbuxurnar hans þar sem á stóð
stórum stöfum: Aðeins rneiri pappír.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
33