Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Qupperneq 39
þannig varið að sýnt þyki að hann
ráði ekki við afborganir. Þá segir að
lán falli í gjalddaga og endurgreiðist
að fullu við eigendaskipti. Lántöku-
kostnaður er 1 % af lánsfjárhæð og
er hann tekinn beint af láninu. Ekki
eru til sérstök umsóknareyðublöð, en
þeir sem vilja kynna sér lánin betur
ættu að útvega sér reglugerðina og
spyrjast fyrir um það hjá Húsnæðis-
stofnun hvernig einfaldast sé að
sækja um sérþarfalán.
Ef það gerði líf ykkar auðveldara
ef baðherbergið yrði stækkað, stiginn
lagfærður eða dyrnar breikkaðar, svo
dæmi séu tekin. hvet ég ykkur til að
íhuga málið. Vextir eru lágir og ekki
til að óttast. Húsnæðisstofnun reikn-
ar út greiðslubyrði lána áður en þau
eru veitt.
Afgreiðsla Húsnæðisstofnunar
ríkisins er að Suðurlandsbraut 24,
108 Reykjavík.
Sími er 569 6900, en grænt núrner
800 6969.
Már Viðar Másson sálfræðingur
Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í
Reykjavík
Hlerað í hornum
Bóndi nokkur kom í kaupstað til
læknis og heimtaði hann fram í sveit
- langa leið. Læknirinn kvaðst vera
veikur. Bóndi spurði: “Geta nú lækn-
ar verið veikir?” Þá sagði læknirinn:
“Jú, jú, og það sem meira er. Þeir geta
líka dáið.”
Frá styrkveitingunni í vor.
Úthlutað úr styrktarsjóði Grein-
ingar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins
A11. vornámskeiði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins í Háskólabíói
nýverið var í fyrsta sinn úthlutað úr styrktarsjóði stofnunarinnar. Styrk
hlutu Stella Hermannsdóttir til framhaldsnáms í talmeinafræði í Svíþjóð og
Þjóðbjörg Guðjónsdóttir til framhaldsnáms í sjúkraþjálfun í Bandaríkjunum.
Ennfemur var veittur styrkur til að taka saman fræðsluefni um sjúkdóminn
Tuberous sclerosis.
Styrktarsjóður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins til minningar um
Þorstein Helga Ásgeirsson var stofnaður fyrir réttu ári. Tilgangur hans er að
veita styrki til símenntunar og fræðilegra rannsókna á sviði fatlana bama, með
það að leiðarljósi að efla fræðilega þekkingu og faglega þjónustu við fötluð
böm og fjölskyldur þeirra. Hefur starfsfólk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar
ríkisins að jafnaði forgang við styrkveitingar úr sjóðnum, sem fara munu fram
árlega.
Sjóðnunr hefur borist fjöldi framlaga, bæði frá félögum og einstaklingum, en
tekna er einnig aflað með sölu minningarkorta. Þeim sem vilja styrkja sjóðinn,
með minningargjöfum eða með öðrum hætti, er bent á að snúa sér til Greiningar-
og ráðgjafarstöðvarinnar, Digranesvegi 5, Kópavogi, sími 564 1744, eða
Breiðholtsapóteks, Mjóddinni, sími 557-3390.
Afhending góðrar gjafar.
Frá Parkinson-
samtökunum
Parkinsonsamtökin á íslandi hafa
nýverið opnað upplýsingamiðstöð fyrir
félaga sína, aðstandendur og aðra vel-
unnara félagsins að Laugavegi 26 3ju hæð.
I tilefni af þessum áfanga hefur félaginu
borist höfðingleg gjöf frá Nýherja í formi
Tuliptölvu. Mun þessi gjöf verða til þess
að létta alla vinnu í sambandi við útgáfu-
störf, félagatal og annað þess háttar.
Það sem gerir þessa gjöf sérstæða er m.a.
nafnið Tulip en merki Evrópusamtaka
Parkinsonsjúkra er Parkinson-túlipaninn.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
39