Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Page 2

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Page 2
fréttabréf ÖRYRKJABANDALAGS ÍSLANDS í. TÖLUBLAÐ 10. ÁRGANGUR 1997 Ritstióri og ábyrgðarmaður: Helgi Seljan Umbrot og útlit: K. Fjóla Guðmundsdóttir. Prentun: Steindórsprent/ Gutenberg ehf. Ljósmynd á forsíðu: s Rúna Stína Asgrímsdóttir. Baksíða: Kristján E. Einarsson. Frá ritstjóra Hér heilsar ykkur nú fyrsta tölublað tíunda árgangs og þess því skammt að bíða að okkur takist tuginn að fylla. Ekki fer milli mála að málgagn þetta hefur í áranna rás aukizt mjög að umfangi og einnig óhætt að fullyrða að það hafi í mörgu náð að dafna duglega. Um gagnsemi þess í góðri baráttu daganna má hins vegar eflaust deila, því á þessari fjölmiðlaöld augnabliksins getur vafi vissulega leikið á áhrifamætti málgagns sem kemur út fjórum sinnum á ári. Nafnið eitt gefur raunar til kynna að tilgangurinn sé fyrst og síðast að flytja fréttir af vettvangi félaga okkar og félaga þeirra svo og hvað verið sé að erja á akri bandalagsins sjálfs. Þó hvergi nærri sé verið að gera lítið úr nauðsyn slíks fréttaflutnings út á við sem inn á við, þá á þó hlutverkið að vera metnaðarfyllra, það að blaðið sé verðugt málgagn til að kynna og berjast fyrir þeim málum sem hverju sinni eru efst á baugi. Og þó sú barátta öll sé góðra gjalda verð þá hlýtur þó alltaf þegar upp er staðið að vera um árangur spurt, hverju skilaði umræðan og baráttan þeim sem málgagnið á að þjóna. Þar þykir þeim sem hér heldur á penna sem ekki hafi til tekizt svo sem öll efni hefðu átt til að standa, en þar á hann mesta sök við sjálfan sig. Hins vegar þarf atfylgi sem allra flestra til að koma, að þetta málgagn okkar megi verða sem beittast vopn í baráttunni, þeirri baráttu sem ætíð þarf að heyja svo vel sé í horfi haldið og hugað að sóknarfærum um leið. Vetur konungur hefur á veldi sitt minnt nú um stundir, en vonglöð höldum við mót vori og sól með sóknarhug í sinni. Helgi Seljan. EFNISYFIRLIT Málefni fatlaðra Ur snilliyrðum 19, 28 38, 47 Frá ritstjóra 2 Vinastaðir - vel unnið 30 Flöfum við gengið til góðs? 3 Frá Starfsþjálfun fatlaðra 31 Hlerað 4,8,9.11,31,33,46,52,53 Molar til meltingar 32 Margmiðlun ryður sér til rúms 5 Af stjórnarvettvangi 34 Það er vandi að ferðast í henni veröld .. 6 Skýrsla Blindrabókasafnsins 1995 .... 35 Formaðurinn fenginn í spjall 8 Veiðisaga 35 Heimsókn til MS félagsins ... 10 Kanadaferð 36 Samstöðuhátíð á Suðurlandi ... 12 Gluggað í glögg rit 39, 49 Ávarp Helga Seljan ... 13 Guðmundur gamli 44 Suðurnes sótt heim ... 14 Stökur 45 Hússjóður á skjól í Skjóli ... 15 Samstarf Félagsmálastofnunar 46 Innlitið ...16 Vinnustaðir ÖBI - Ræstingadeild 47 Þjónusta - Lífsgæði ... 17 Halaleikhópurinn og Gullna hliðið .... 48 Undir álögum Parkinson ...20 Stökur úr lausu lofti gripnar 51 Kynning framkvæmdastjóra ...24 Fréttir frá FAAS 52 Frá Svæðisráði Reykjaness ...25 Ljóð Þorbjarnar Magnússonar 53 Innlit hjá Örva ...26 I brennidepli 54 2

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.