Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Blaðsíða 13
Öryrkjabandalagsins í þágu geðfatl-
aðra. Sigríður Jensdóttir mælti svo
nokkur lokaorð, kvað mikilvægt að
þjónusta öll við fatlaða væri undir ein-
um hatti og vonaði það að sveitar-
félögin væru því vaxin að sinna þess-
um málefnum vel svo og að smærri
sveitarfélög ynnu þá saman að verk-
efnum. Þegar þessu ánægjulega
samkvæmi lauk var fyrst farið í fylgd
Eggerts á sambýlið að Árvegi 8 þar
sem Anna Hjaltadóttir ræður ríkjum.
Þar búa við ágætar aðstæður 5 ein-
staklingar og fer mætavel um alla.
Fólk sat við kaffidrykkju með jóla-
bakkelsi þegar okkur bar að garði og
gestir voru í heimsókn, en okkur sýnd
herbergi heimilismanna af geislandi
gleði og góðu stolti. Okkur fylgdu
fallegar jólaóskir út í skafrenninginn.
Sömuleiðis heimsóttum við heimilið
eða þjónustuíbúðirnar að Vallholti 12
- 14, íbúðir Hússjóðs Öryrkjabanda-
lagsins, en þar er afar vistlegt og gott
rými fyrir hvem einstakan, en alls búa
þarna 6 einstaklingar og forstöðu
veitir María Jónsdóttir. Við þágum
þarna rausnarlegar veitingar í einni
íbúðinni, þar sem Sólrún Vilhjálms-
dóttir veitti okkur vel.
Þar vill ritstjóri meina að fólk búi
við kjöraðstæður og veit af
góðum kynnum við einn íbúanna,
Eirík Harðarson, að þar fer fjarska vel
um heimilisfólk allt og öllu vel til
skila haldið af þeirra hálfu. Við
hefðum gjarnan viljað sjá fleira af
hinni ágætu starfsemi sem á Selfossi
fer fram, því af nógu er að taka, en
þessu öllu gerð allgóð skil áður í
blaðinu. Við kvöddum heimilisfólk
með hlýjum jólaóskum. En úti biðu
þeir björgunarsveitarmenn og við
kvöddum Eggert og hans fólk með
miklu þakklæti fyrir góðar og gjöfular
stundir á Selfossi. Við vitum að þar
er vel að öllu hlúð og verkin sýna
merkin. Þeir Trausti og Hreiðar
skiluðu okkur heilu og höldnu til húsa
heim svo sem þeirra var von og vísa.
Við sendum Selfyssingum alúðar-
þakkir fyrir vermandi viðtökur og
árnum þeim allra heilla í áfram-
haldandi starfi að málefnum okkar
fólks.
H.S.
Avarp
Helga Seljan
Góðir heimamenn og gestir!
Birta í sál og sinni
sindra ljósin á tré.
Vermandi ylur inni
enn verður stormahlé.
Halda skal heilög jól
hugurinn fyllist gleði.
Lýsir svo ljúft í geði
lausnarans milda sól.
Með þessum ljóðlínum
heilsum við ykkur sem hér
eruð saman komin á samstöðu-
hátíð á Selfossi. Öryrkjabandalag
Islands hefur undanfarin ár haft
þann holla sið að halda hátíð, helga
einhverjum stað, byggðarlagi eða
landssvæði hátíðarstund á að-
ventu, gefa um leið hið græna tré
sem tákn um þökk fyrir þekk verk
að málefnum okkar fólks, verðuga
viðurkenningu þess þegar vel er
gert, þar sem hagur fatlaðs fólks
er í fyrirrúmi. Suðurlandið með
Selfoss senr miðstöð þessara mál-
efna varð nú fyrir valinu. Þar hefur
um árabil verið afar vel á nrálurn
haldið, þar hafa margir notið og
njóta virkilega góðra verka sem að
er sannur sómi. Hér eru heimili
margra fatlaðra einstaklinga,
vinnustaður sem vistun góð. Hér
eru einnig virkar og vakandi fé-
lagsdeildir hinna fjölmörgu aðild-
arfélaga Öryrkjabandalagsins sem
láta margt til sín taka og til heilla
gengið á veg fram til farsældar fyr-
ir okkar fólk. Jólatréð er tákn þess
þakklætis sem um huga okkar fer
þegar til hutverks ykkar er horft og
verkin nýt að verðleikum metin.
Málefni fatlaðs fólks eru víðfeðm
og taka eðlilega til allra þátta
mannlífsins, fötlun er mismun-
andi, fötlunarstig enn frekar, þarfir
og þrár ólíkar og spanna allt lífsins
litróf.
ð verkum þar skyldi enginn
ganga með ofurstaðlaðar
lausnir efst á blaði hvað þá að fara
eftir forskrift einhvers einstaks
fötlunarhóps. Hvergi eru alhæf-
ingar hættulegri en þegar fjallað er
um hina hárfínu þætti mannlegra
langana, lífskjara og lífsaðstæðna
allra. Ætíð verður að hafa í huga
þau hollu sannindi að þeim sem
örðug er lífsgangan á einhvern veg
verður með ýmsum hætti að létta
þá lífsgöngu, auðvelda ævisporin,
byggja upp en brjóta ekki niður.Öll
okkar velferðarmarknrið skulu vígð
þeim sannindum. En undirstöðunni
má aldrei gleyma að unandi lífskjör
séu örugglega tryggð, að ekki sé
hverjum degi heilsað með kvíða
sakir lífsafkomunnar sjálfrar. Þar
bíða okkar allra verðug verkefni
þar sem varnarbaráttu þarf að snúa
í sigursókn. Hér á Suðurlandi hafa
menn í engu legið á liði sínu, hvorki
í hinum opinbera geira eða á hinurn
félagslega vettvangi. Af fullri
djörfung og dáðríkri reisn hafa
menn viljað vekja og hvetja, verja
réttinn, vernda kjörin, veita skjól
og útvega úrræði. Fyrir það er færð
alúðarþökk einlægunr huga, þess
vegna erum við hér í dag til að sam-
fagna ykkur með árangurinn, eiga
með ykkur stund í aðdraganda
helgrar hátíðar. Við tendrum von-
anna Ijós á vegi svo víki burt
skuggar skammdegismyrkurs. Við
tendrum vermandi ljós veitullar
gleði með þeirri helgi hugans sem
hátíð ljóss og lífs lífgar og glæðir.
Megi byggð sem búendur hér
blessunar njóta og farsællar fram-
tíðar. Megi áfram hlúð að öllu því
sem til velferðar fatlaðs fólks má
leiða.
Megi hinn dýri friður jólanna í
fögnuði hjartans færa ykkur þá gjöf
sem verðmætust er: innri hamingju
á ævibraut.
Eg vil svo biðja gamlan nem-
anda minn austan að Guðna Ragnar
Valdórsson að tendra á trénu ljósa-
tjöld sem ljá nrun birtu í bæinn.
Gleðilegjól. H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
13