Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Blaðsíða 47
• • X
Vinnustaðir OBI
- Ræstingadeild
Þorsteinn
Jóhannsson.
Amiðju ári 1994 var stofnuð
sérstök ræstingadeild hjá
Vinnustöðum ÖBÍ. Mark-
miðið með stofnun deildarinnar var
að auka úrval og fjölbreytni í störfum
fyrir fatlaða
starfsmenn og
um leið að
styrkja og efla
starfsemi Vinnu-
staðanna. Þetta
var nýjung í
starfsemi vinnu-
staða fatlaðra.
Mjög víða er-
lendis, svo sem á
——— írlandi er mikil
starfsemi í gangi fyrir fatlaða í hrein-
gerninga- og ræstingastörfum.
Kveikjan að starfsemi ræstinga-
deildarinnar var sú, að mikil vinna er
við daglega ræstingu í húseignum
Hússjóðs Öryrkjabandalagsins í
Hátúni 10. Vinnustaðimir gerðu Hús-
sjóði tilboð í verkið og vinna það nú
sem verktaki. Vinnan felst í ryksugun
á teppum á íbúðagöngum og stigum í
háhýsunum, afþurrkun af ljósum,
gluggakistum, borðum og að pússa
gler í hurðum og gluggaveggjum. Þrif
fara fram á lyftum, anddyrum, setu-
stofu, geymslugöngum og kjallara-
göngum, þvottahúsum og salernum.
Teppahreinsun og bónun er að
mestu leyti aðkeypt þjónusta, enda
þarf til þeirra verka sérhæfðan vél-
búnað og verkkunnáttu. Ræstinga-
deildin annast einnig þrif á húsnæði
vinnustaðanna, eldhúsi og matsal.
Þjónusta vegna kaffis til funda og við
starfsmenn Öryrkjabandalagsins,
Hússjóðs og Vinnustaðanna er undir
stjórn ræstingadeildarinnar.
Reynslan af starfsemi ræstinga-
deildarinnar þau þrjú ár sem hún hefur
verið starfrækt, má teljast mjög góð.
Þessi störf henta mjög vel stórum hópi
fatlaðra, sem hafa líkamlega burði til
þess að takast á við þessi verkefni.
Hjá ræstingadeildinni starfa 4 starfs-
menn, 3 auk leiðbeinanda, sem einnig
annast stjómun á starfsemi eldhúss,
þar sem einn starfsmaður til viðbótar
vinnur. Starf leiðbeinanda við þessi
störf er mjög mikilvægt, þar sem
skipulag og niðurröðun á daglegum
verkum þarf að vera vel undirbúið og
markvisst.
Aðsókn og eftirspurn eftir störfum
í ræstingadeildinni frá Vinnumiðlun
fatlaðra, gefur vísbendingu um að
fjölga þurfi slíkum störfum fyrir
fatlaða þar sem því verður við komið.
Þorsteinn Jóhannsson
framkv.stj. Vinnustaða ÖBI
Unnur Hermannsdóttir í viðtali
í framhaldi af þessum pistli
Þorsteins átti ritstjóri örstutt spjall við
þá sem forstöðu veitir ræstinga-
deildinni, Unni
Hermannsdóttur.
Hún er í hálfu
starfi en sagðist
gjarnan vilja
meira og kemur
að því í lokin.
Unnur er fyrst
spurð um hve-
nær vinnan fari
fram. Hún segir
111 að unnið sé frá 8-
12 alla virka daga og síðan korni
hátíðisdagar inn til viðbótar s.s.
jóladagur og nýársdagur. I hinni
eiginlegu ræstingadeild eru 3 stúlkur,
2 þeirra eru búnar að vera í 3 ár, en
Unnur
Hermannsdóttir.
ein er nýbyrjuð eftir að hafa unnið á
saumastofunni í 3 ár áður.
Hún segir að launakjör séu þau að
þær hafi um 24 þús. á mánuði fyrir
þessa fjóra tíma. Innifalið í þessum
fjórum tímum segir Unnur, að sé
fundartími frá kl. 11,30-12,00 daglega
þar sem farið er yfir öll verk og verk
skipulögð fyrir næsta dag. Starfs-
stúlkur fá hins vegar rnjög góðar
verklýsingar, sem þeim gengur vel að
fara eftir. Unnur sér líka um eldhúsið
en þar vinnur fjórða stúlkan frá kl. 9-
15, nema á mánudögum, þá frá kl. 8,
en þá bakar hún vöfflur handa fólkinu
á vinnustöðum og skrifstofu og
kannast ritstjóri vel við það góðgæti.
Þá tekur hún moppur, handklæði,
þurrkur o.fl. þess kyns frá ræstinga-
deildinni og þvær einu sinni í viku.
Unnur segir að reynslan sé nijög
góð, þessar konur reyni að standa sig
eins vel og kostur er, þær eru vand-
virkar og fara vel og dyggilega eftir
verklýsingum. Ef að er fundið, sem
sjaldan er, þá er því vel tekið og úr
bætt sem bezt. Þær eru glaðlyndar og
vinnufúsar og eru sönnun þess hve
miklu skiptir að verkfús hönd fái
vinnu við hæfi.
Unnur segir því í lokin að hún vildi
gjarnan sjá fleiri verkefni með fleiri
þátttakendum, fleiri fötluðum um leið
í gefandi starfi. H.S.
Úr snilliyrðum um
konur og ástir
Konur segja oft að þær hafi gefið hjarta sitt. Oftast er raunin sú að þær
hafa aðeins gefið eftir.
*
Betra er að vera gæddur fegurð en gæðum. Hins vegar er skárra að
vera góð persóna en ljót.
*
Frægð, auður og metorð! Hvers virði eruð þið á móts við ástina?
*
Þau hjónabönd sem nú tíðkast eru nokkurs konar líftrygging sem
konur hafa fundið upp.
*
Astin og óttinn geta talið mönnum trú um allt.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
47