Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Blaðsíða 52

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Blaðsíða 52
Fréttir frá FAAS Anýliðinni aðventu stóð Caritas á íslandi fyrir fjáröflun til styrktar FAAS. Af því tilefni voru haldnir glæsilegir tónleikar í Landa- kotskirkju, þar sem landsfrægir listamenn komu fram og gáfu alla vinnu sína af mikilli góðvild og hlýju. Einnig var safnað fé í öllum kaþólskum kirkjum landsins og víðar. Svona framtak er félaginu ómetanlegur stuðningur, bæði félagslega og fjárhagslega og eiga allir sem að því komu miklar þakkir skildar. Fyrir fáum árum gerðist FAAS aðili að norrænu samstarfi Alzheimerfélaga ásamt S víþjóð, Noregi, Danmörku og Finnlandi. Einn fundur hefur verið haldinn ár hvert til skiptis í þessum löndum og er nú komið að íslandi. Dagana 25. og 26. apríl verður þessi fundur haldinn á Grand Hótel Reykjavík. Þá koma tveir eða tleiri félagar frá þessum löndum og er undirbúningur nú í fullum gangi. Það hefur verið okkur mikils virði að fá að kynnast því sem er að gerast í málum minnissjúkra hjá nágrönnum okkar og er okkur mjög í mun að vel takist til í þessari fyrstu heimsókn þeirra til okkar. María Jónsdóttir form. FAAS. Fjallað er um skilgreiningu, al- gengi og tíðnitölur, áhættuþætti, ábendingar beinþéttnimælinga, grein- ingu á beinþynningu, meðferð bein- þynningar almennt og á brotastigi, ábendingar um fyrirbyggjandi hor- mónameðferð eftir tíðahvörf og hor- mónauppbótarmeðferð hjá konum. Þarna kemur m.a. fram að 1200 -1500 beinbrot á ári eru vegna beinþynn- ingar. Einn margra áhættuþátta eru reykingar. Lögð er sérstök áherzla á fræðsluþáttinn svo og meðferð: mat- aræði. hreyfingu og forvarnir gegn falli. Sömuleiðis eru birtar rann- sóknarniðurstöður á beinþéttni í íslenzkum stúlkum og konum eftir Gunnar Sigurðsson prófessor. Þar kemur m.a. fram að svo virðist sem erfðir ákvarði 60 - 80% af hámarks- beinmassanum. Sagt er frá einstökum deildum eða hópum innan Gigtarfélagsins s.s. Samtökum um rauða úlfa og Hrygg- iktarfélaginu, sem starfa vel. Sagt er frá rannsóknarstofu í gigt- arsjúkdómum á Landspítala, en ísland er talið kjörland fyrir gigtar- rannsóknir. Stofan tók til starfa 11. október sl. og vænta menn sér mikils af henni, en forstöðu veitir Kristján Steinsson yfirlæknir. Sagt er frá og birt ný stefnuskrá Öryrkjabandalagsins en ritstjórinn, Emi! Thóroddsen, var einmitt fyrir stefnumótunarnefnd ÖBI. Sagt er frá hópþjálfun G.I. en þar er boðið upp á mismunandi hópa og er fjölbreytni ærin, einnig er boðið upp á námskeið. Ragnheiður Yr Grét- arsdóttir er yfirsjúkraþjálfari þessa starfs. Punktar góðir eru um námskeið af ýmsu tagi, sagt frá nýjungum í hóp- þjálfun svo og fyrsta aðalfundi alþjóðagigtarfélaga. Greint er frá samtökum um vefja- gigt og síþreytu og fréttir eru frá Norð- urlandsdeild G.í. sem verður 10 ára á þessu ári og hefur góð umsvif-undir forystu Ingibjargar Sveinsdóttur. Lokahugleiðingar vefjagigtar- sjúklings eru þessar: Vinir mínir hvert skref sem við tökum hver orusta sem við vinnum er ávöxtur ástar og umhyggju til hvers annars í vefjagigtarhópnum, meðal vina. 'H.S. Hlerað í Jón og Gunna áttu 6 dætur. Sjöunda barnið varð drengur foreldrunum til óblandinnar ánægju. Föðurnum var af kunningjunum óskað ákaft til ham- ingju með soninn, en jafnframt spurði einn hann hvoru foreldranna sá litli líktist nú meir. Þá svaraði faðirinn: “Ja, ég veit það nú ekki, við höfum ekki litið framan í hann ennþá. ** Sagan segir af presti einum í henni Ameríku. Geysileg flóð urðu og allir flúðu úr borginni nema prestur sem sagðist treysta guði og hélt kyrru fyrir í kirkjunni. Flóðin hækkuðu og prestur fór upp í turninn og menn komu á báti og vildu bjarga honum, en hann sat fast við sinn keip. Enn hækkaði flóðið og prestur færði sig upp í mæni turnsins. Menn komu á þyrlu og buðu björgun en prestur kvaðst fela guði allt sitt ráð og með það hvarf hann í vatnsflauminn og drukknaði. Þegar hann kom til guðs kvartaði hann sáran yfir að hann hefði hornum ekki bjargað sér en guð svaraði rólega: “Ég sendi þorpsbúa til að tala þig til, ég sendi menn á bát til að bjarga þér og loks sendi ég þyrlu þér til bjargar”. ** Andri: “Ég hef séð kafara sem var hálfa klukkustund í kafi”. Bjössi: “Þaðkallaégekkimikið. Ég hefí séð annan sem kom aldrei upp aftur”. ** Hafnfirðingabrandarar hafa stundum eitthvað sér til ágætis: Hafnfirðingur kom inn á krá með útidyrahurð undir hendinni. Aðspurður kvaðst hann hafa týnt lyklinum, en haft hurðina með sér svo ekki yrði nú brotist inn. “En hvernig ætlarðu sjálfur að komast inn”, var spurt. “Jú, ég skildi glugg- ann eftir opinn”. ** Systkinin litlu, þrjú talsins voru íbaði, tveir bræður og ein systir. Eldri bróð- irinn spurði móður sína að því hvers vegna tveir væru af sinni sort en bara ein af hinni. 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.