Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Blaðsíða 9
fulltrúa til Svíþjóðar í sumarbúðir á
sumri komanda og göngum við svo
út frá því að þessir einstaklingar verði
í forystu æskulýðsdeildarinnar. Við
bindum miklar vonir við slíka deild í
framtíðinni.
Og fastir liðir eins og
venjulega eða hvað?
Já, fræðslumál eru alltaf í brenni-
depli, útgáfa fræðslubæklinga er brýn,
þýðingar á ýmsum góðum fróðleik
o.s.frv. Ekki má svo gleyma hinni
sívaxandi hagsmunagæslu sem m.a.
felst í kynningu á okkar málum við
heilbrigðisyfirvöld. Við höfum
mikinn hug á því að búa til og gefa út
sem mest tæmandi upplýsingabækl-
ing fyrir sykursjúka, sem allir gætu
að komið sem best sem um fjalla
mest, þannig að fólk fái á einum stað
sem heildstæðastar upplýsingar um
allt sem máli skiptir varðandi sjúk-
dóminn, eðli, afleiðingar og með-
höndlan alla. Þetta er í raun knýjandi
verkefni til að vinna að.Við höfum að
jafnaði gefið út eitt allvandað blað á
ári. Ætluðum að gefa út afmælisblað
en af óviðráðanlegum orsökum varð
ekki af því á síðasta ári, en vonandi
kemur það út nú í mars. Hins vegar
höfum við í hyggju að breyta blaða-
útgáfunni og stefnum að því að gefa
þá út 3 - 4 blöð á ári - aðeins minni
þá.
Eitthvað heyrði ég um
kynningarfund í Kringlunni.
Segðu mér frá honum
Þess má geta hér svo sannarlega
að 16. nóvember sl. vorum við með
kynningarstand í Kringlunni í tilefni
af alþjóðadegi sykursjúkra sem er 14.
nóvember. Þar vorum við í samstarfi
við lyfjafyrirtæki sem buðu gestum og
gangandi í blóðsykursmælingu. Nú,
það er skemmst frá því að segja að
sykur var mældur hjá 1500 - 2000
manns og reyndust 13-15 vera með
of háan blóðsykur og var þeim bent á
að leita læknis til frekari rannsókna.
Við hjá Samtökum sykursjúki'a vitum
að minnst 6 manns reyndust vera með
sykursýki. Þetta sýnir okkur hversu
nauðsynlegt er að koma á virku eftir-
liti á einhvern hátt til að finna sykur-
sjúka. Sannleikurinn sá að einstakl-
ingur með sykursýki án eftirlits og
meðferðar getur verið orðinn illa
haldinn af fylgikvillum sykursýkinn-
ar, þegar hann greinist.
Hvað er svo FSBU þarna
hjá ykkur?
Þetta er skammstöfun fyrir For-
eldrafélag sykursjúkra barna og ungl-
inga sem er deild innan Samtaka
sykursjúkra. FSBU hefur starfað í rúm
tvö ár og hefur félagið nú þegar náð
geysilegum árangri og er starfsemi
félagins í miklum blóma, enda hefur
Hlerað í
Oft er sagt að vinnubrögð í ungl-
ingavinnu séu ekki upp á marga fiska.
Einn ágætur maður sagði að þeir
hefðu greinilega tileinkað sér kjör-
orðið alkunna: Markmiðið er ekki að
vinna, bara að vera með.
**
Og svo einn andstyggilegur ljósku-
brandari: “Hvaða persóna er bara
með tvær heilafrumur?” Svar:
“Ljóska sem gengur með barni.”
það notið sterkrar handleiðslu
Jóhönnu Geirsdóttur fv. formanns. Nú
nýverið tók Jónína G. Jónsdóttir við
formennsku af Jóhönnu og væntum
við góðra verka áfram sem hingað til.
Hvað um fjárhaginn?
Helsta fjáröflun Samtaka sykur-
sjúkra er sala jólavara s.s. jólakorta,
jólapappírs, límmiða (til og frá) og
kerta. Stefna samtakanna er sú að allir
bæklingar sem frá samtökunum
koma, hvort heldur til einstaklinga eða
stofnana, verði án endurgjalds, en öll-
um sem eitthvað geta lagt af mörkum
er velkomið að gera svo enda vel
þegið. Svo erum við auðvitað með
okkar félagsgjöld.
Eitthvað sérstakt framundan?
Við munum halda hér stórfund í
haust þar sem forseti heimssamtak-
anna IDF og tveir forystumenn norsku
samtakanna munu mæta til skrafs og
ráðagerða. Við höfum í hyggju að
bjóða til þessa fundar okkar heil-
brigðis- og trygginganefnd Alþingis
og fulltrúa ráðuneytis og knýja sem
best á um svör við því, hver stefna
heilbrigðisyfirvalda sé og verði í
okkar málum. Væntum við mikils af
þessum fundi.
Og svo að lokum?
Við lítum bjartsýn til framtíðar-
innar, en eigum mikið verk fyrir hönd-
um. Samtökin eru með aðstöðu sína á
Laugavegi 26 eins og áður sagði.
Síminn er 562 5605 og skrifstofan er
opin frá 17 - 19 á miðvikudögum og
símatími er á sama tíma á mánudög-
um.
Sigurði þökkum við veittan fróð-
leik um félagið og óskum honum og
félaginu farsældar og góðs brautar-
gengis. H.S.
hornum
Maður einn bauð afar stórskorinni
konu upp í dans, en hún þvemeitaði,
enda maðurinn heldur óstyrkur á
fótum. Hann snéri frá en kom svo
aftur og sagði við konuna: “Þú ert sú
næstljótasta kona sem ég hefi
kynnzt”. Nærstaddur maður spurði
þann góðglaða hvers vegna hann hefði
ekki sagt “sú ljótasta”. “Hvað erþetta
maður. Heldurðu að ég hafi ætlað að
móðga konuna?”
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
9