Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Qupperneq 4

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Qupperneq 4
hins vegar sú að á þeim tímum atvinnuleysis, sem hér hafa ríkt lengi, þá bíða engin störf fatlaðra á hinum opna vinnumarkaði. Það myndu margir sitja heima, sem nú ganga til starfa á vemduðum vinnustað og þess vegna er það álit okkar að full þörf sé fyrir þennan þátt í atvinnumark- aðnum. ✓ Arið 1966 var Hússjóður Öryrkja- bandalagsins stofnaður með það að markmiði að byggja aðgengilegt húsnæði fyrir öryrkja, sem mikil þörf var fyrir. Eins og nærri má geta var þetta mikið basl fyrir fjárvana samtök, en fyrir harðfylgi Odds Ólafssonar, Guðmundar Löve og fleiri góðra manna, tókst á nokkrum árum að koma upp húsunum þremur við Hátún 10 í Reykjavík og Fannborg 1 í Kópa- vogi. I þessum húsum em samtals 284 íbúðir. Það var þröngt í búi hjá banda- laginu á þeim árum. En mikil urðu umskiptin með tilkomu íslenskrar Getspár árið 1986. Samkvæmt lögun- um um hana skyldi Öryrkjabanda- lagið verja ágóðahluta sínum til kaupa á húsnæði fyrir öryrkja, svo og til félagslegrar starfsemi. Á þeim tíu árum sem liðin eru frá stofnun Islenskrar Getspár, hefur Hússjóð- urinn fest kaup á 250 íbúðum, sem dreifðar eru víðsvegar um landið. Viðvíkjandi félagslegu hliðinni þá hefur Öryrkjabandalagið getað veitt meiri og víðtækari þjónustu en áður og vegur þar þungt útgáfa Fréttabréfs Öryrkjabandalagsins. Það kemur út fjórum sinnum á ári í yfir 15000 ein- tökum, flytur fréttir af starfsemi aðild- arfélaganna og fjallar um önnur hags- munamál öryrkja. ✓ Aþessu ári eru liðin tíu ár síðan Starfsþjálfun fatlaðra tók til starfa. Öryrkjabandalagið er rekstr- araðili hennar ásamt félagsmálaráðu- neyti, sem leggur fram rekstrarfé að mestum hluta. Starfsþjálfunin var til húsa í Hátúni lOa, þar til fyrir hálfu öðru ári að hún flutti í nýtt, rúmgott og fallegt hús á lóð bandalagsins, Hátúni lOd. Húsið hefur hlotið nafnið Hringsjá og er reist fyrir fé úr Framkvæmdasjóði fatlaðra. Fljótlega kom í ljós að þörfin fyrir starfshæfingu af þessu tagi er mikil, aðsókn hefur aukist jafnt og þétt og starfsemin fest sig í sessi. Uppistaða starfsins er kennsla. Kennd er tölvu- notkun, bókfærsla, reikningur, þar með talinn verslunarreikningur, íslenska, enska, verslunarréttur, sam- Hlerað í hornum Litli hnokkinn bað frænda sinn um að gapa fyrir sig. “Til hvers í ósköp- unum?” spurði frændinn. “Jú, ég ætla að athuga hvort pabbi segir satt að þú talir tungum tveim.” ** Finnskur forsætisráðherra var í félagsfræði og námstækni. Þessi starfsemi er stökkpallur til fyllra og betra lífs, tæki til blöndunar og virkrar þátttöku í samfélaginu. I Hringsjáereinnig til húsaTölvu- miðstöð fatlaðra, en Öryrkjabanda- lagið á aðild að henni ásamt fimm öðrurn félögum fatlaðra. Tölvumiðstöðin veitir mikilvæga þjónustu, meðal annars með ráðgjöf og þjálfun og einstaklingsaðlögun tölvunnar, sem getur skipt sköpum varðandi notkun hennarog gagnsemi. Þá hefur Öryrkjabandalagið lengi átt aðild að Bréfaskólanum, en þar var kjörinn vettvangur fyrir marga til þess að stunda fjarnám. Eins og að framan greinir, þá hefur hér aðeins verið getið nokkurra veigamikilla þátta varðandi starfsemi Öryrkjabandalagsins. Stjóm bandalagsins hefur alla tíð haft það að leiðarljósi að vinna í hvívetna samkvæmt þeirri stefnu, sem mörkuð var í upphafi, en fylgjast jafnframt með kröfum tímans og þeim nýju möguleikum, sem opnast hafa öryrkjum og fötluðu fólki. Það hefur verið lögð mikil áhersla á kjara- og réttindamál öryrkja, hús- næði, atvinnu og eða lífeyri, menntun og félagsmál. Allir þessir þættir þurfa að haldast í hendur, svo að einstaklingurinn geti þrifist. Lrkamleg og andleg vellíðan verður að fylgjast að. Á þrjátíu og fimm ára ferli Öryrkjabandalagsins hefur aðildar- félögum fjölgað jafnt og þétt og eru þau nú orðin 24 talsins. Því er óhætt að fullyrða að nú séu flestir hópar öryrkja sameinaðir í eina heild. Það er sterkt afl sem þarna býr að baki og það afl er ómetanlegur bakhjarl í baráttu Öryrkjabanda- lagsins fyrir jafnrétti fatlaðra. Ólöf Ríkarðsdóttir heimsókn á sveitabæ og húsmóðirin kallaði á börn sín til að sýna þau forsætisráðherranum. Þau komu tvö og tvö í einu og móðirin sagði alltaf að þetta væru nú tvíburar. Svo komu fjögur þau minnstu og það voru þá tvennir tvíburar. Agndofa ráðherrann spurði þá hvort þau fengju alltaf tvíbura. Stutt í spuna sagði frúin: “Oftast nær fáum við ekki neitt.” 4

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.