Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Qupperneq 5

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Qupperneq 5
Margmiðlun ryður sér til rúms í námsgagnagerð fyrir heyrnarlausa Margmiðlun af ýmsu tagi á sífellt meiru brautargengi að fagna. f auknum mæli gerir fólk sér far um að tileinka sér þá möguleika sem tölvur hafa upp á að bjóða. Þetta á einnig við um heyrnar- lausa. Nú hafa for- ráðamenn Sam- skiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra ásamt Trausta Þór Kristjánssyni raf- magnsverkfræðingi lokið þróun á kennsluforriti á tölvutæku formi sem ætlað er heyrnarlausum til að læra ritaða íslensku og heyrandi til að læra táknmál. Kennsluforritið heitir Spilari og er forvitnilegt fyrir margra hluta sakir. Spilari Spilarinn virkar eins og horft sé á þýdda myndbandsupptöku í tölvu. Á tölvuskjánum birtast tveir gluggar, annarsvegar textagluggi og hinsvegar myndagluggi. í myndaglugga birtist hreyfimynd af sögu eða frásögn á íslensku tákn- máli, í textaglugga er þýðing á hreyfi- myndinni á ritaðri íslensku. Til að notfæra sér samspil þessara tveggja glugga býður Spilarinn upp á ýmsa möguleika. í myndaglugga getur notandinn til dæmis ”spólað” fram og tilbaka, ”ýtt á” hvíld, sýnt einstök tákn hægt eða sýnt sama táknið eða setn- ingu aftur og aftur. Auk þess getur hann stjórnað hraða frá- sagnarinnar í myndaglugg- anum. Á milli texta- og myndaglugga er tenging sem gerir það að verkum að hægt er að fylgja hreyfimyndinni eftir í textaglugganum, þannig "uppljómast” samsvarandi orð í textaglugga um leið og það er táknað í myndaglugga. Heyrnarlausir einstaklingar læra ritaða íslensku Ef notandinn er heyrn- arlaus getur hann með hjálp Spilarans öðlast betri skilning á ritaðri íslensku. Hann getur smellt á orð í textaglugga og fengið samsvarandi tákn í myndaglugga. Kosturinn við þessa aðferð er að í textaglugganum má sjá ritaða íslensku í samhengi en oft hefur viljað brenna við að heyrn- arlausir hafi lent í vandræðum með að læra merkingu einstakra orða, orða- sambanda eða málshátta í íslensku. Auk þess býður Spilarinn heyrnar- lausum einstaklingum upp á auðvelda og aðgengilega leið til að sjá notkun falla, sagnbeyginga og forsetninga í ritaðri íslensku með hliðsjón af íslenska táknmálinu. Að síðustu má nefna að textinn í textaglugganum er ágætur vitnisburður um íslenska réttritun, því getur það verið góð æfing í íslenskri réttritun að lesa textann og hafa táknmálið til hliðsjónar. Heyrandi einstaklingar læra íslenskt táknmál Ef notandinn er heyrandi og hefur hug á að læra táknmál velur hann í upphafi sögu eða frásögn til að vinna með. Sagan eða frásögnin birtist í texta- og myndaglugga. Notandinn horfir á hreyfimyndina og fylgir textanum í textaglugganum. Til að læra einstök tákn eða einstakar setn- ingar nýtir hann sér það að geta spilað tákn eða setningar aftur og aftur, hægt á spiluninni og birt þýðingu undir hreyfimyndinni. Táknmálið lærir hann stig af stigi með því að horfa á söguna eða frásögnina. Seinna getur not- andinn bætt fleiri þáttum í tákn- málsnámið. Á tölvuskjánum í þar til gerðum athugasemdadálki getur hann fengið ýmsar upplýsingar um málfræði íslenska táknmálsins. Hér er átt við þætti eins og munnhreyfingar, augn- hreyfingar, staðsetningar og höfuð- hreyfingar. Þegar notandinn telur sig hafa náð nánast því fullkomnu valdi á sögunni eða frásögninni getur hann valið annað verkefni, það er að segja aðra sögu eða frásögn, sem ef til vill er nokkuð erfiðari en sú sem fór á undan. Svona getur lærdómsferlið gengið eins lengi og notandinn hefur áhuga á og gaman af. Hagnýt atriði Áður en hugað er að kaupum á Spilara er rétt að ganga úr skugga um að eftirfarandi kröfur til tölvubúnaðar séu uppfylltar: • Pentium tölva • Windows 95 stýrikerfi • Geisladrif • 2Mb laus á hörðum diski Bylting í námsgagnagerð fyrir heyrnarlausa Með Spilaranum opnast heyrnar- lausum og heyrandi einstaklingum auðveld og aðgengileg leið til að læra ritaða íslensku og íslenskt táknmál. í því sambandi er þó rétt að minna á að Spilarinn er einungis tæki eða leið til að framleiða námsefni, enn hefur ekk- ert námsefni verið búið til þó að það standi að sjálfsögðu til í nánustu fram- tíð. Hér er því um einskonar byltingu að ræða þar sem námsefni fyrir heyrn- arlausa á íslensku táknmáli hefur verið af skornum skammti fram að þessu. Heyrnarlausir hafa þurft að læra eigið mál og um eigið mál á til dæmis íslensku. Því má segja að hér sé um einskonar vatnaskil að ræða í sögu námsefnisgerðar fyrir heyrnarlausa á íslandi. Þetta eru auðvitað gleðileg tíðindi og fyrir mestu að þróun að einhverju marki sé hafin, þróun sem á eftir að leiða okkur lengra og inn á nýjar brautir í framtíðinni. Kristín Irene Valdemarsdóttir 8í«a teia 0® I & i % tömd J Ætf’Qnr 'mkkarasaga :Sir Aslaugu Jðnsdótíur og Sigurborgj StefonsUóliui. var Vcmíd haus! og v& pabbi gengum samsn í 3»mri. ég á'.ii »4 ii ný stíjeði, i sjaðinn fyrir þau 58 rn 6g týndí. /jð bakarfið v3ið ég aiítfeinu swngui og stakk upp i að yA koyptum Bifel Pabbi borgoðí snúðinn og hann þmfii !ika »5 boiga kðk-una ssm ég bah í. firum við i bðka-böð og leituðum að afmjsfis-gjðí hsnda ðmmu. Mét datt í hug fi! oð auka áhersluna á tákrrið PRAKKARA- auga íckað og munnvikin f®rð ÍHilega upp. Tákninu fylgir muotihreyfingín Hbi ddft Tákn; S«tnlna: 1« **■' >1 tjp! M-l | Textagluggi og myndagluggi FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 5

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.