Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Side 19

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Side 19
einstaklingur býr einn í íbúð. Frekari liðveisla kemur svo til þegar um mikið fatlaða einstaklinga er að ræða. Það sem gerir hlutina flóknari er það að bæjarfélögin halda utan um og greiða liðveisluna en ríkið og þar með svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra halda utan um frekari liðveisluna. Sjálfsagt væri léttara í vöfum ef þetta væri á einni hendi. En þá verður líka að sjá til þess að fjármagn fylgi með. ví miður gerist ekkert án fjár- magns. Það er sama hvað hug- sjónirnar eru miklar og þær eru miklar í þessum málaflokki, án fjármagns gerist ekkert. Það er svo einfalt mál. Ef hugsjónamennirnir hefðu meiri peninga og peningamennirnir meiri hugsjónir kæmumst við kannski nær raunveruleikanum. Flér hefur að sjálfsögðu verið mik- ið rætt um menntun. I okkar röðum hefur verið rætt um að í raun og veru sé nauðsynlegt að efna til námskeiða fyrir það fólk sem fer í liðveisluna. Það er svo margt sem kemur til greina þegar þú ætlar að fara að vera aðstoð- armaður fatlaðra og er þá sama hver fötlunin er. Sumum er áskapað að eiga gott með að umgangast aðra og skiptir þá ekki máli hvort viðkomandi er fatlaður eða ófatlaður. En það er ýmislegt sem er gott og gagnlegt að vita þegar þú gerist sérstakur liðsmað- ur fatlaðra - allt að því lífsakkeri viðkomandi. Vitneskja um hvernig best sé að bregðast við hlutunum er alltaf af hinu góða. Og það að sækja góð námskeið hjá völdu fólki er nauðsynlegt og sjálfsagt að bjóða því fólki, sem hyggst hafa þessa liðveislu að atvinnu. Sú tíð mun sjálfsagt koma að t.d. fjölbrauta- skólarnir bjóði upp á sérstakt nám fyrir þá sem ætla að snúa sér að því að vinna hjá fötluðu fólki. Og nú stendur fyrir dyrum innan fárra ára að málatlokkur fatlaðra flytjist frá ríki til sveitarfélaga. Það hefur sína kosti og sína ókosti. Kostirnir eru nálægðin við fólkið. Það fær meiri þjónustu í sinni heima- byggð. Ókostirnir eru þeir að lítil sveitarfélög hafa e.t.v. ekki efni á að veita þá þjónustu sem til þarf. Það er svo margt sem þarf að athuga í þessu samhengi og það má ekki flana að neinu. Það verður að hugsa málið alveg til enda. Ekki skiljast við neitt á miðri leið. í upphafi skal endirinn skoða. Góðir ráðstefnugestir. Eg vil að lokum segja það að hvernig sem allar stefnur og straumar eru og verða í málefnum fatlaðs fólks skulum við aldrei gleyma því að við erum fyrst og fremst að vinna að því að allir eigi jafnan rétt til þeirra lífsgæða sem í boði eru og þó við fæðumst öll á sama veg fáum við því miður ekki öll sömu tækifærin í lífinu. Þess vegna verðum við öll að standa vörð um það velferð- arkerfi sem hér hefur verið byggt upp og berjast gegn því að á það verði hallað meira en orðið er. Asgerður Ingimarsdóttir Asgerður flutti erindi þetta á fjölmennri ráðstefnu Sjúkraliða- félags Islands sl. haust. Að því var gerður einkar góður rómur og ritstjóra þykir einsýnt að fleiri eigi aðfá að njóta. Úr snilliyrðum um konur og ástir Konan er unaðsveig, guðum sæmandi, ef djöfullinn laumar ekki beizkju í bikarinn. * Konurnar gefa upp vörn, en falla ekki að velli. * Eftir því sem við höfum minna saman við konur að sælda eigum við náðugri daga. * Hjákonan er nauðbeygð til að reynast eiginmanninum betri heldur en kona hans. * Varir konunnar eru hið undurfagra hlið að aldingarði sálar hennar. * Fegurðin er fyrsta gjöfin sem konunni er gefin, og hin fyrsta sem frá henni er tekin. * Ekkert hæfir fögru konuandliti betur en koss. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 19

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.