Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Qupperneq 23

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Qupperneq 23
við stýrið og átti erfitt með að losa vinstri höndina. Síðan fór að bera á stirðleika í vinstra fæti.” (Parkinsonveiki stafar af skorti á boðefninu dópamín í heilanum. Vöðvastirðleiki kemur upp þegar boðefnið vantar. Enski lœknirinn James Parkinson greindifyrst veikina árið 1817 og ber hún því nafn hans.) - Þekktuð þið strax einkennin, um hvaða sjúkdóm var að ræða? Áslaug: “Okkur grunaði það. Við vorum búin að kynnast sjúkdóms- ferlinu hjá móðurbróður Magnúsar, Pétri Jónssyni bónda á Búrfelli. Ein- hver tilhneiging er til þess, að hann geti legið í ættum og nú er mikil erfða- fræðirannsókn í gangi.” Magnús: “Ég greindist árið 1969. Sama ár komu ný dópamínlyf á mark- aðinn, sem breyttu mjög miklu. Ég ætlaði að þrauka þetta af og vinna lengur, en varð að hætta árið 1974.” Áslaug: “Lyfjatökunni fylgirsvo mik- ið blóðþrýstingsfall, að jafnvægis- leysi sótti á Magnús. Parkinson- sjúklingar eru misgóðir og prestur þarf alltaf að vera mættur á mínútunni. Það reyndist því mjög erfitt fyrir Magnús að standa í messu, vera til- búinn í jarðarfarir og skírnir, ungl- ingastarf og sunnudagaskóla og fleira. Parkinsonveikin hefur líka áhrif á skriftina. Magnús handskrifaði allar sínar ræður. Allt í einu varð rithönd hans ólæsilega smá. Sóknarbörnin voru fyrst mjög ósátt við að við fær- um, fannst að við tilheyrðum pláss- inu.” “Maður kemur í manns stað,” heyr- ist frá Magnúsi. Stofan skrifstofa Parkinsonsamtakanna Magnús og Áslaug létu samt ekki fjötra Parkinson hefta starfsþróttinn meira en nauðsynlegt var. Áslaug fór strax í fulla vinnu á Barnadeild Land- spítalans og var deildarstjóri þar um tíma. Magnús vann á meðan þrekið leyfði sem prófarkalesari fyrir Náms- gagnastofnun. Og til skamms tíma gat hann setið yfir í prófum í Háskól- anum. Bæði eru þau meðal stofnenda Park- insonsamtakanna á íslandi í desember 1983. Svomjöghafaþauhjónintekið félagsstarfið inn á sig, að skrifstofa samtakanna var í stofunni heima hjá þeim þar til í fyrra. Áslaug var for- Áslaug sem ungur hjúkrunarnemi að sinna yngsta sjúklingnum. maður samtakanna í tíu ár, hætti í fyrra, og Magnús hefur ritstýrt frétta- bréfi samtakanna frá upphafi og ann- ast bréfaskriftir. “Það hefur gefið okkur mikið að kynnast og geta hjálpað öðrum Parkinsonsjúklingum.” - Hvert er starfssvið samtakanna? “Að ná til parkinsonsjúkra með fræðsluefni og nýjustu upplýsingar um sjúkdóminn. Talið er að um 500 manns séu með sjúkdóminn hér á landi. I samtökunum eru aðeins 300 manns, þar af um helmingur aðstand- endur, svo að greinilega þarf að ná til fleiri. Árlega eru fimm fræðslu- og skemmtifundir með sameiginlegri kaffidrykkju. Samtökin eru aðili að Evrópu- og Norðurlandaráðum Parkinson- sjúkra og fulltrúar fara héðan á árleg þing, ráðstefnur og fræðslufundi.” - Nú eru alltaf að berast nýjar upplýsingar um sjúkdóminn og ný lyf aðkomafram. Erulíkuráaðlækning muni finnast? Áslaug: “Jú, það eru líkur. Orsakir sjúkdómsins eru samt enn ókunnar. Nýlega er farið að gera aðgerðir á heila til að lækna skjálfta og hreyfi- hömlun, sem lofa góðu. Nýjustu lyfin virka líka lengur. Samt er það svo, að því lengur sem sjúklingur er háður lyfjum, því ónæmari verður hann fyrir þeim. Magnús er búinn að vera Parkin- Stoltir foreldrar með fermingarbarnið á milli sín - soninn Sigurbjörn. sonsjúklingur í þrjátíu ár og lyfið hefur ekki sömu virkun og fyrstu árin. Fyrir fjórum árum gat hann treyst miklu meira á verkun lyfsins. Þótt hann festist (gæti skyndilega ekki hreyft sig) gat hann sest niður og beðið eftir að lyfið virkaði. Núna getur hann ekki lengur farið einn út.” Nú vinnur Áslaug eingöngu á dag- vöktum, á meðan er Magnús í dagvist- un hjá MS félaginu. “Þar er aðstaða fyrir Parkinsonsjúklinga, innan um unga og eldri öryrkja með fullt andlegt atgervi, en eins og flestir vita, þá halda Parkinsonsjúklingar sínu minni og óskertri hugsun.” Parkinson herðir tökin Heimsóknin til Áslaugar og Magnúsar gefur örlitla innsýn í þá geysilegu erfiðleika sem sjúkdómur- inn veldur þeim báðum. Á eins og hálfs tíma fresti allan daginn er lyfja- taka. Áslaug má aldrei líta af manni sínum. Ymist hristist hann og skelfur af ósjálfráðum hreyfingum eða hann er skyndilega frosinn fastur í stólnum. Þá þarf Áslaug að toga hann upp, og sprauta efni undir húðina sem virkar eins og hvati á dópamínið. “Ég lærði að setja fótinn fyrir hann á þingi í Danmörku, eiginkona annars Parkinsonsjúklings sýndi mér það. Þeir eiga auðveldara með að lyfta fætinum yfir hindrun.” Fjölskyldan á sumarbústað hjá Kiðafelli í Kjós, þar sem Hjalti bróðir Áslaugar er bóndi. Áslaug: “Dvölin í sveitinni hefur hjálpað okkur mikið. Gott fyrir Magnús að hreyfa sig í ósléttu land- inu, slá og vinna útistörf. Hann þarf að hreyfa sig eins mikið og getan FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 23

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.