Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Síða 25

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Síða 25
Frá Örva. Eftirmiðdagsvaktin í nýjum vinnusal. Sjá næstu síðu. Frá Svæðisráði Reykjaness Formálsorð ritstjóra: essi bókun úr fundargerð Svæðisráðs Reykjaness barst ritstjóra rétt eftir áramótin en hún mun frá fundi ráðsins 10. des- ember 1996. Hér er að mörgu afar umhugsunarverðu vikið og því rétt að birta bókun þessa. Hér er inn á mörg þýðingarmikil mál komið, um sum þeirra eflaust skiptar skoðanir, en því meiri ástæða til að viðra þær og skapa jafnvel umræðu þar um. Blaðið er öllum opið til skoðanaskipta og færi vel á viðbrögðum góðum. í formála er sagt að þegar liðin eru nú 4 ár af starfstíma ráðsins þá sé hollt að staldra við - lýsa skoðun ráðsins og afstöðu þess til málaflokksins almennt í dag. Og er þá að þessari tvískiptu bókun komið. 1. Skipan mála í dag - flutningur málaflokksins til sveitarfélaganna Ráðið telur að unnið sé skipulega að málefnum fatlaðra á Reykjanesi. Svæðisskrifstofan og aðrir sem vinna með fatlaða vanda til vinnubragða og reyna að nýta þá fjármuni sem ætlaðir eru til málaflokksins með sem skyn- samlegustum hætti. Þær breytingar eru fyrirhugaðar í málefnum fatlaðra að flytja þau til sveitarfélagannaumaldamótin. Nýta þarf vel tímann sem fer í hönd fram að yfirtöku sveitarfélaganna og undir- búa flutninginn vandlega. í sveitarfélögunum þarf að brúa bilið milli starfa Svæðisskrifstofu og félagsþjónustu á vegum sveitarfélag- anna og byggja upp fagleg tengsl og samvinnu þannig að starfsfólk í félagsþjónustunni verði betur í stakk búið að taka virkari þátt í faglegum rekstri málaflokksins. I þessu sam- bandi vill Svæðisráð benda á þær til- raunir sem gerðar eru um samstarf í Kópavogi og hvetur til þess að fylgst sé með framvindu þeirra. Ljóst er að fámenn og dreifbýl sveitarfélög verða að sameinast um þjónustu við fatlaða. Hvernig svo sem ný lög um mál- efni fatlaðra verða þegar þau líta dags- ins ljós þá er það mat Svæðisráðs að fara verði með mikilli gát við flutning málaflokksins. Margvísleg þjónusta við fatlaða er svo samofin og sérhæfð að erfitt verður að skilja hana sundur eftir bæjarfélögum. Þjónusta við fatl- aða snýst um þjónustu við fólk fram- kvæmda af aðilum sem hafa til þess þekkingu og reynslu. Fagleg sjónar- mið mega því engan veginn falla í skuggann af beinhörðum rekstrar- sjónarmiðum þegar málaflokkurinn færist til sveitarfélaganna. Fagleg þjónusta verður að fylgja og má ekki flytjast frá einstaklingunum við breyt- inguna. Tryggja verður að allir fatl- aðir í kjördæminu fái notið árangurs af þeirri öru þróun sem átt hefur sér stað í endurhæfingu og læknisfræði síðustu árin. Svæðisráð telur nauð- synlegt að sveitarfélögin reki sameig- inlega greiningar- og fagskrifstofu til þess að tryggja fötluðum þá þjónustu sem þeir þurfa á að halda. 2. Almennt um málefni fatlaðra vill Svæðisráð benda á nokkur atriði Það er bitur reynsla ráðsins og þeirra sem í málaflokknum starfa að margir fatlaðir fá ekki þá þjónustu sem nauðsynleg er. Það er augljóst að í náinni framtíð verður þjónustu- þörf ekki fullnægt með því tjármagni sem lagt er til málaflokksins. Það er líka augljóst að fötluðu fólki mun ekki fækka á næstu áratugum heldur fjölga m.a. vegna þess að hátækniþjóð- félagið skilar stöðugt fleiri fötluðum og þróun læknisfræði og endurhæf- ingar veldur því að fleiri lifa og mun lengur en áður. Skortur á fjármagni og fjölgun fatlaðra leiðir hugann að þeim miklu kröfum sem gerðar eru í ytri aðbúnaði fyrir fatlaða. Þessar kröfur hafa leitt til þess að aðeins fáir fatlaðir fá við- unandi lausnir meðan aðrir sem hírast á biðlistum við oft á tíðum ömurlegar og mannskemmandi aðstæður fá ekki úrlausn sinna mála sérstaklega hvað varðar búsetu. Svæðisráð telur ekki verjandi að útskrifa fatlaða af sólarhringsstofn- unum inn á þau fáu nýju sambýli sem tekin hafa verið í notkun undanfarin 4 ár á meðan mikill fjöldi fatlaðra býr við neyð í heimahúsum og heilu fjöl- skyldumar sundrast vegna álagsins á heimilum. Svæðisráð telur að það húsnæði sem byggt er fyrir fatlaða sé oft á tíð- um of dýrt og íburðarmikið. Á meðan er fjöldi fatlaðra í eins konar “geymslu” á stofnunum sem ekki em ætlaðar þeim, svo sem elliheimilum, stofnunum í heilbrigðiskerfinu og jafnvel á götunni. Svæðisráð telur ekki réttlætanlegt að gera upp á milli fatlaðra hvað varð- ar aðbúnað og búsetu. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 25

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.