Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Blaðsíða 35

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Blaðsíða 35
Skýrsla Blindrabóka- safnsins 1995 Sömuleiðis út af styrkjum til félaga okkar - rekstrarstyrkjum, sem nauð- syn væri að hækka nokkuð. I fram- haldi hér af sagði Haukur Þórðarson frá frumvarpi nú fyrir þingi um breyt- ingar á lögunum um málefni fatlaðra þar sem fátt væri efnisatriða annað en það að sveitarfélögin skyldu yfirtaka málaflokkinn sem slíkan 1. jan. 1999 eða eftir tvö ár. Skipuð yrði verkefnis- stjórn til að vinna þar að og yrði bandalagið að koma þar inn í svo og eiga aðild að lagasetningu um félags- þjónustu sveitarfélaga sem myndi að verulegu leyti taka við af eldri lögum. Önnur mál. a) Helgi kynnti uppkast að allítar- legum tillögum trygginganefndar bandalagsins, en auk hans eiga þar sæti Sigurrós M. Sigurjónsdóttir og Jóhannes Agústsson. Tillög- urnar eru í 11 liðum með allnokk- urri greinargerð og varða ýmis meginmál sem bandalagið vill fá breytingar eða leiðrétting á. Leitað var heimildar stjórnar til þess að nefndin sendi tillögur þessar til endurskoðunarnefndar trygginga- laga sem tillögur ÖBÍ og var það heimilað. b) Helgi sagði frá að á laggir væri loks komin nefnd til að skoða samspil félagsaðstoðar sveitarfélaga og tryggingabóta svo og skattalega meðferð. Tveir fundir þegar haldnir og mál á allnokkurri ferð. Að koma: Heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneyti, fjármálaráðuneyti, embætti ríkisskattstjóra, félags- málaráðuneyti og Trygginga- stofnun ríkisins auk Öryrkjabanda- lagsins, en forysta í höndum Jóns Sæm. Sigurjónssonar. c) Haukur Þórðarson vakti athygli á frumvarpinu um réttindi sjúklinga sem ætti endurskoðað að koma fram á þessi þingi. Bandalagið yrði þar vel að fylgjast með. d) Þórey V. Ólafsdóttir gerði fund- argerðir og frágang þeirra að um- ræðuefni og vildi fá þær lesnar upp í upphafi hvers næsta fundar á eftir og var því fagnað og það ákveðið. Fundi var slitið 18.40 en þá fram- borinn léttur kvöldverður sem all- flestir gæddu sér á með góðri lyst. Með jólaóskum gengið frá gjöfulu borði. H.S. Skýrsla Blindrabókasafnsins hefur hingað á borð borizt, barmafull af ýmsum fróðleik. Fátt eitt skal fram talið hér. Fjárveiting á fjárlögum nam 27,3 millj.kr. Þjónustudeildir safnsins eru tvær: Utlána- og upplýsingadeild og námsbókadeild. Síðan er svo tækni- deildin og blindraletrið. í árslok störfuðu 10 fastráðnir starfsmenn á safninu. Formaður safnsstjórnar er Þóra Óskarsdóttir skipuð af menntamálaráðherra. Aðrir eru: Þórdís Þorvaldsdóttir. Ragn- hildur Björnsdóttir, Brynja Arth- úrsdóttir og Sigtryggur Eyþórsson. Bókvalsnefnd er ætlað að móta stefnu í bókavali og gæta jafnvægis milli fræðslu- og skemmtiefnis. Styrktarsjóður er starfandi við safnið frá 1989 og á að stuðla að framförum í starfseminni og var fjárframlag sjóðsins til safnsins nær 750 þús.kr. á árinu. Vinafélag Blindrabókasafnsins lagði því til rúmlega 300 þús.kr. I safninu voru hljóðritaðar 169 bækurtil útláns. Ein jólabók til sölu. Skrá yfir námsefni á snældum kom út á árinu sem og hljóðbókaskrá. Góðar gjafir eru þakkaðar - Kvenna- deild Rauða kross Islands, Hjalta Rögnvaldssyni og menntamála- ráðuneytinu og sjálfboðaliða er getið með góðum þökkum. Eintakafjöldi útlána hjá Útláns- og upplýsingadeild var 40.276 til alls 1038 einstaklinga og 118 stofnana. Rétt til að fá hljóðbækur að láni í Blindrabókasafninu hafa blindir og sjónskertir og aðrir sem ekki geta fært sér venjulegt prentað letur í nyt. A árinu nutu 233 framhaldsskóla- nemendur þjónustu námsbókadeild- ar. Auk þeirra fengu a.m.k. 15skólar afþreyingarefni á snældum fyrir les- trega nemendur. Þjónustan beinist að blindum og sjónskertum annars veg- ar og svo nemendum með sértæka lestrarörðugleika (dyslexíu). Fer sá hópur mjög vaxandi. Framleiðsla blindraleturs: 15 námsbækur, biblían, ein ævisaga, ein ljóðabók og fjögur skáldrit voru búin til prentunar á árinu. Prentuð voru 148 eintök bóka á 23.288 blindralet- urssíðum. í þessum kafla kemur fram að þeir eru ekki margir blindir hér á landi sem lesa blindraletur. Frá tæknideild koma þær upplýs- ingar að titlum hafi fjölgað um 169 á árinu eða um 1157 bandstundir. Hljóðritanir í tæknideild drógust saman um 27 titla eða 17% vegna fjárhagsörðugleika safnsins. Blindrabókasafn Islands er s.s. hér hefur oft komið fram til húsa á 1 .hæð Digranesvegar 5 í Kópavogi og forstöðumaður er Helga Ólafsdóttir. Þar er mikið starf og mæta gott unnið. H.S. Veiðisaga Einu sinni var lítill strákur sem hét Guðni. Guðni átti heima í litlu þorpi sem hét Vík. í Vík var stór hundur sem Gutti hét. Þeir Gutti og Guðni voru miklir vinir, þeir leiku sér alltaf saman og þá var gaman. Einu sinni komu þeir að stórri á. Guðni var með stöng með sér og renndi fyrir lax. Laxinn var stór sem beit á svo Guðni togaði og togaði í. Það sá hundurinn og fór að hjálpa strák. Það endaði þannig að báðir fóru í ána og blotnuðu en komust samt heim báðir glaðir og ánægðir eftir góðan dag. Eygló Ebba Hreinsdóttir, 1995. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.