Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Síða 38

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Síða 38
tími leið þar til hjálpin barst. Faðir hans var staddur í bresku Kólumbíu, vestur við Kyrrahaf, og tók hann tvo daga að komast heim eftir að fréttin barst. Móðir hans var hinsvegar heima og fékk fyrst fréttirnar og komst fyrr til Stefáns á sjúkrahúsið. Ingþór lýsir því þannig að í fyrstu hafi syni hans vart verið hugað líf og því bæði hugs- un og tilfinningar tengdar þeirri nag- andi óvissu. Ekki er nein opinber áfallahjálp veitt, nema eftir henni sé sérstaklega leitað. Opinber áfallahjálp er fyrst og fremst veitt þegar fjölda- slys hendir. egar Stefán var úr lífshættu vökn- uðu spurningar um hvað hægt væri að gera til að laga aðstöðu og umhverfi hans að þessum breyttu kröfum um nýja lífshætti. Á þeim þremur og hálfa mánuði sem endur- hæfing fór fram á sjúkrahúsi, var húsnæði og aðgengi lagað heima fyrir að þörfum Stefáns og sérbúinn bíll keyptur fyrir hann. Félagið sem tryggði mótorhjólið lagði fram bætur sem að mestu nægðu fyrir breyting- unum og kaupum á sérútbúnum bíl. Einnig lagði tryggingafélagið fram styrk til að greiða kostnað vegna náms til undirbúnings annars starfs. I byrjun árs 1983 hóf Stefán nám í tölvufræði, en síðar hélt hann til myndlistarnáms í Vancouver, sem hann hefur þegar lokið, eftir 4 ára nám. Og nú ætlar hann að læra grafíska hönnun, þar sem fyrra nám, bæði í tölvufræðum og myndlist, er ákjósanleg undirstaða og er áætlaður námstími 3 ár. Það skal tekið fram að hann verður sjálfur að standa straum af kostnaði þess náms og þátttöku tryggingafélagsins er lokið. Séra Ingþór segir það vera ljósa punktinn í þessum hremmingum að komið hafi fram góðir hæfileikar Stefáns í myndlist og á sviði sem trúlega hefðu verið óuppgötvaðir í díselvélvirkjuninni. Niðurlagsorð Eg hef í þessari grein reynt að tengja saman kynni mín af: a) Per- sónulegri reynslu fólks í Kanada af alvarlegri fötlun og hvaða úrræði hafa staðið því til boða b) Hvernig skipu- lagi málefna fatlaðra er háttað og hvernig að fötluðum er búið í sam- félaginu. Auðvitað verður slík úttekt ærið ófullkomin og handahófskennd þegar þekking mín og kynni ná jafn skammt og raun ber vitni. Vonandi verða þessi skrif þó til að vekja áhuga einhverra fyrir Kanada og málefnum fatlaðra þar. Við Islendingar eigum þar á þriðja hundrað þúsund frændur og frænkur, að vísu mjög mismikið skylda okkur, en þeir eru afkomendur 14 - 15.000 landa sem fluttu til Vesturheims í lok síðustu aldar og í upphafi þessarar. Ég lýk greininni með því að óska þess, að aukið samband við fatlað fólk í Kanada og samtök þess megi stuðla að því að við getum enn frekar nálgast það markmið að betra verði að búa á landinu okkar fvrir alla. Jón Hlöðver Áskelsson. Úr snilliyrðum um konur og ástir Kynni við konur fága siðina en spilla siðgæðinu. * Konan fyrirgefur manninum allt ef hann er óaðfinnanlegur elskhugi. * Ógiftri konu er heimilið fangelsi - giftri konu vinnuhæli. * Fögur kona er aldrei einmana í lífinu - karlmennirnir sjá um það. * Þær konur sem veita mönnum mestan unað, valda þeim og sárustu þjáningum. * Ef Satan gæti elskað mundi öll illska hans hverfa. * Sá sem hampar fagurri konu og fullri pyngju um of við aðra á það á hættu að menn taki hvorttveggja að láni. * Hið eina sem konan getur þagað yfir sem leyndarmáli er aldur hennar. * Tárin auka fegurð fagurrar konu um helming. * Ástin er eins og loginn - hún brennir burt allan sora. * Þær munu ekki margar siðsömu konurnar, sem ekki eru dauðleiðar af að vera það. * Ástin er ein en eftirlíkingar hennar skipta þúsundum. * Þeir sem tala vel um konur, þekkja þær ekki til hlítar - þeir sem tala illa um þær þekkja þær ekki svo neinu nemi. * Piparsveinn er eins og fiskur á þurru landi. 38

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.