Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Síða 49

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Síða 49
Gluggað í glögg rit réttabréf SPOEX 3.lbl. þessa árs í hinni traustu rit- stjórnarhendi Helgu Ingólfsdóttur er sem fyrr hið fjölbreyttasta. For- mannsspjallið hjá Helga Jóhannessyni er frá Namibíu. Minnir hann á bar- áttumálið mikla: áframhald loftslags- meðferðar psoriasissjúklinga. Minnir og á 25 ára afmæli samtakanna 1997. Segir Margreti Ingólfsdóttur vara- formann hafa tekið nú við for- mennsku í SPOEX. Ritstjórinn hvetur til verðugs átaks í félagasöfnun um leið og hún skorar á félaga að láta til sín heyraíblaðinu og læturþaðkunn- uglega í eyrum þess sem hér heldur á penna. Sagt er ljóslega frá aðalfundi Öryrkjabandalagsins, en einnig frá því hve áætlunarferðir í Bláa lónið hafa gengið illa. Séra Baldur Vilhelmsson ritar fallegajólahugvekju. Hanna Jóhann- esdóttir húðsjúkdómalæknir skrifar um barnaexem, útdráttur raunar úr erindi sem hún hafði flutt. Þar kemur fram að u.þ.b. 15% barna fá exem um lengri eða skemmri tíma, sem astmi og ofnæmi fylgja oft. Ástæðan trúlega veikleiki í ónæmiskerfinu. Einstaklingum með barnaexem er hættara við ýmsum sýkingum í húð- inni. Fer svo yfir áhrifaþættina og meðferðina en segir í lokin að 85-90% barna verði góð fyrir 20 ára aldur. Jón Þrándur Steinsson húðsjúk- dómalæknir svarar spumingum les- enda. Þar kemur m.a. fram að hætta er á að psoriasissjúkdómurinn verði erfiðari hjá þeim sem hann byrjar snemma hjá svo og segir hann að afar erfitt sé að meðhöndla sjúkdóminn í nöglurn fólks. Heilræði eru um notkun UBV ljósa, þ.e. hvaða áburð má eða má ekki bera á húðina í slíkri meðferð. Þar er vitnað í víðtæka rannsókn á þessu sviði, þar sem tjara og salícylsýra geta útilokað UBV geislana. Fróðleikur er um psoriasis gigt, en um 5% þeirra sem eru með húðsjúkdóm fá psoriasis gigt, aðallega liðbólgur í fingur- og fótaliði. í þeim tilfellum skaðast bæði brjósk og bein. Margir stakir fróðleikspunktar eru í ritinu héðan og þaðan og má þar af mikla fræðslu hafa um hin fjölþætt- ustu atriði. M.a. er lýst áhrifum ýmissa smyrsla og lyfja. Sagt er frá exemi og fæðuofnæmi og hversu mikilvægt geti verið að finna rétt mataræði en auðhlaupið er ekki að því. Eftirtektarverð er frásögn af sjúkrasögu verkakonu hátt á níræðis- aldri. Hún lýsir áralangri baráttu við psoriasis, upphafi sjúkdómsins og endalokum fyrir 10 árum. M.a. lýsir hún mikilli minnimáttarkennd gagn- vart fólki, en hún varð að hætta að vinna af þessum sökum, en fékk heimavinnu, “því fingurgómarnir stóðu jú út úr umbúðunum”. Sagt er frá nýju starfsfólki Göngudeildar SPOEX - þeim Herdísi Halldórsdóttur sjúkraliða sem er umsjónarmaður deildarinnar og Birki Sveinssyni húðsjúkdómalækni sem er ráðinn læknir deildarinnar. Fjallað er um psoriasis hjá börnum en fram kemurm.a. að hjá 10% sjúklinga greinist sjúkdómurinn fyrir 10 ára aldur, en 30-40% tilfella á aldrinum 10-25 ára. Aðeins 5% versnar með aldrinum en hjá 85% breytist sjúk- dómurinn lítið. Enn halda áfram fróð- leiksmolar um psoriasis í nöglum, afleiðingar streptokokkasýkingar, mataræði exemsjúklinga, vísbend- ingar um notkun Daivoner, græðandi áhrif af saltvatnsböðum, leiðbeiningar um fótsnyrtingu og svo mætti áfram telja. Er greinilegt að vel er fylgzl með erlendis frá, því mikið er af þýddu fræðsluefni í blaðinu. Fréttir eru af landsbyggðinni frá Suðurnesja- deild, Húnvetningadeild, Vestfjarða- deild, Suðurlandsdeild og Stykkis- hólmsdeild, starfið misjafnt en víða líflegt. Greint er frá sænskum fræðslubæklingi um illkynja æxli í húð. Grundvöllur aukinnar tíðni slíkra æxla rakinn til sólbaða og ljósa- notkunar. Greind eru hin ýmsu af- brigði æxla þessara og fólk í lokin beðið að gæta hófs í sólböðum. Fjöl- margt fleira efni er í ritinu, sem er hið fjölbreyttasta s.s. áður sagði. Velferð - málgagn Landssamtaka hjartasjúklinga4.tbl. 1996hefur hingað borizt með ærinni efnisgnótt sem ætíð áður. Ritstjóri Sigurjón Jó- hannsson. Engin ládeyða nefnist ritstjórnar- greinin þar sem frá því er greint að máske hafi liðið ár verið það starfs- samasta og árangursríkasta í sögu LHS. Minnt er á gjöfina til tækja- kaupa á hjartadeild ásamt með RKÍ, merkilegt framtak Suðurlandsdeildar LHS, 11. deildina í LHS sem var Neistinn og Sigurjón endar svo á umfjöllun um skipulagsmál, sem í deiglu eru. Jóla- og áramótahugvekju ritar okkar ágæti stjórnarmaður, Magnús Þorgrímsson. Hann biður menn að staldra við og leyfa Ijósinu að koma til okkar, jólin séu tíma ástar, fegurðar og gleði. Hann leggur áherzlu á að fólk opni sig meir og betur. dylji ekki og byrgi allt af hið innra með sér. Skorar í lokin á fólk að nota áramótin lil að opna fyrir lífið og taka það í sínar hendur. Gefast ekki upp, halda í löngunina. Elín Viðarsdóttir form. Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna, segir frá félaginu sem verður tveggja ára í maí n.k. Fimm mætir félagar LHS svara spurningum um störf og stefnumál LHS. Þar kemur margt fróðlegt fram en þau sem svara eru: Hallur Her- mannsson, Gísli J.Eyland, Haraldur Steinþórsson, Jón Júlíusson og Sig- urður Helgason en með Halli svarar eiginkonan Sigurveig einnig. Allt þetta fólk sem í eldlínu hefur verið hjá samtökunum telur samtökin hafa náð mjög verulegum árangri bæði félags- lega sem og í baráttumálum er snúa að hinu opinbera og varða hag og heill hjartasjúklinga. Bjartsýni einkennir öll þeirra svör. Sagt er frá 2 millj.kr. gjöf LHS og Landsbankans til Reykjalundar til kaupa á nýjum þolprófunartækjum. Minningarorð eru frá Ingibjörgu Magnúsdóttur um Önnu Cronin, vin og velgjörðarmann fjölmargra Islendinga er fóru til 49 FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.