Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 3

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 3
• • / Haukur Þórðarson form. Oryrkjabandalags Islands: A BRATTANN AÐ SÆKJA að kom skýrt fram á aðalfundi ÖBÍ í október sl., og ekki síður á ráðstefnu bandalagsins daginn fyrir aðalfundinn þar sem rætt var um lífskjör öryrkja, að meint góðæri hér á landi um þessar mundir og aukin velmeg- un hefur ekki skil- að sér jafnt til allra samfélags- hópa, þar á meðal ekki til örorkulíf- eyrisþega. Trú- lega minnst til þeirra - ef þá nokkuð. Örorku- lífeyrisþegar eiga því á brattann að sækja núna eins og oft áður. Versnandi staða lífskjara hjá örorkulífeyris- þegum á sér fleiri en eina orsök. Ein er að líkum afdrifaríkust og tengist því að árið 1995 var fellt úr gildi laga- ákvæði sem kvað á um að bætur (= laun) öryrkja fylgi almennum kjara- samningum um kaup og kjör lands- manna. I staðinn kom bráðabirgða- ákvæði sem raunar rennur út um n.k. áramót og lýtur að tengslum bóta við svokallað meðalvikukaup verkafólks. Þessi viðmiðun hefur reynst afar óljós og getur skilað breytilegum niður- stöðum eftir því hver reiknimeistarinn er. s Itilefni þess sem að ofan greinir var í einni af ályktunum síðasta aðalfundar ÖBÍ skorað á “Alþingi að leiða aftur í lög bein og ótvíræð tengsl milli launa í landinu og bótaupphæða í tryggingakerfinu.” Viðbrögð hafa lítil verið við þessari ályktun og varla annars að vænta að svo komnu. Lagt hefur verið fram að vísu þingmanna- frumvarp sem er til umfjöllunar núna hjá heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis og fjallar um breytingar á almannatryggingalögum varðandi lágmarksbætur örorku- og ellilífeyris- þega. ÖBÍ hefur fengið frumvarp þetta til umsagnar og mælir að sjálf- sögðu eindregið með samþykkt þess. í umsögn Öryrkjabandalagsins er vísað í fyrrgreinda ályktun aðalfundar. Um n.k. áramót eiga svokölluð lág- markslaun í landinu að miðast við 70 þúsund krónur á mánuði. Þeir sem njóta grunnlífeyris og fullrar tekju- tryggingar ásamt með heimilisuppbót og sérstakri heimilisuppbót koma til með að fá kr. 63.500. Menn athugi að það eru aðeins einhleypingar sem eiga kost á heimilisuppbót og sérstakri heimilisuppbót. / Alyktanir aðalfundar ÖBI eru birtar annars staðar í Frétta- bréfinu. Þær hafa verið sendar til þeirra yfirvalda, embættis- og trún- aðarmanna, sem fara með þau ýmsu mál sem um ræðir, þar á meðal til þingflokka Alþingis, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og trygg- ingaráðs. Borist hefur svar frá for- manni tryggingaráðs (ritað af trygg- ingayfirlækni) varðandi mótmæli aðalfundar um aukið greiðsluhlutfall öryrkja í kostnaði vegna sjúkraþjálf- unar, iðjuþjálfunar og talþjálfunar. I svarinu kemurþað fram, sem ÖBI var vissulega vel kunnugt um, að tekju- lausir örorkulífeyrisþegar geta sótt um uppbót á lífeyri vegna slíks kostnaðar eða sótt um endurgreiðslur vegna lyfja-, læknis- og þjálfunarkostnaðar. Ennfremur er svarað í tilefni ályktunar aðalfundarins um breytingar sem verða á örorkumati ef lífeyrisþegi aflar sér einhverra tekna, þannig: “Jafnframt er rétt að fram komi að innan Tryggingastofnunar ríkisins er almennt skilningur á því að óheppilegt sé að örorkuskírteini stofnunarinnar sé rígbundið af tekjum, þannig að sá sem verið hefur örorkulífeyrisþegi og byrjar að vinna missi nánast sjálfkrafa skírteinið. Þettar virkar auðvitað vinnuletjandi og verður stjórnvöldum bent á það.” Þarna er með öðrum orðum vikið að því að “aftengja” læknisfræðilega/ heilsufarslega þætti sem mynda grundvöll fyrir örorkumatinu og hugs- anlega tekjuöflunarmöguleika sem síðar kunna að koma til hjá örorkulíf- eyrisþeganum. Tryggingastofnun hefur til þessa talið sér skylt að lögum að breyta örorkulífeyri í örorkustyrk fari tekjur örorkulífeyrisþegans fram úr ákveðnu hámarki. Þessari yfirlýs- ingu tryggingaráðs ber vissulega að fagna en til þess að “aftenging” verði veruleiki þarf til að koma breyting á almannatryggingalögum svo að málið er Alþingis. Eins og kunnugt er kom út á þessu ári stefnuskrá Öryrkjabandalags íslands. Stefnuskráin byggir að veru- legu leyti á vinnu starfshóps um hlut- verk Öryrkjabandalagsins, markmið þess og leiðir til að ná markmiðum. Hópurinn samanstóð af fulltrúum aðildarfélaganna. I framhaldi af þeirri vinnu og útgáfu stefnuskrárinnar þótti eðlilegt að fjalla nánar um skipulag Öryrkjabandalagsins, bæði inn á við ogútávið. Þriggjamanna skipulags- nefnd tók til starfa að loknum aðal- fundi 1996. Þremenningarnir voru Björn Hermannsson (formaður), Helgi Seljan og Ólafur H. Sigurjóns- son. Nefndin skilaði tillögum á síðasta aðalfundi um framhaldið og voru þær samþykktar. Ein fjallar um að áfram starfi skipulagsnefnd og hefur hún þegar verið skipuð, önnur að tekin verði fyrstu skref til stofnunar félagaþjónustu á vegum ÖBÍ, hin þriðja að komið verði á fót málefna- hópum, fimm talsins. Hafa þeir nú verið skipaðir og eru þessir: Kjara- mála- og trygginganefnd, mennta- málanefnd, félagsmálanefnd, búsetu- nefnd og atvinnumálanefnd. Fram- kvæmdastjórnin hefur þegar skipað fimm manna nefndir til að sinna þess- um málum og eru nefndirnar að “gangsetja” sig um þessar mundir. SJÁ NÆSTU SÍÐU Haukur Þórðarson FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.