Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 47

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 47
Greinarhöfundar ásamt norskum leiðbeinendum. Þekking skapar skilning! S.l. sumar fóru undirrituð í kynnisferð til Noregs til að fræðast um hvað í boði væri í dansmálum andlegra og líkamlegra fatlaðra einstaklinga. Ferðin var studd af samtökum áhugafólks um almenna dansþátttöku á Islandi KOMIÐ OG DANSIÐ, Sjóði Odds Ólafssonar og Skálatúnsheimilinu. Fjölmörg samtök fatlaðra liðsinntu okkur með efni, frásögnum og þátttöku í ýmsu afþreyingarstarfi fyrir fatlaða og verður að segjast að dýrmæt reynsla fékkst af því hvað hægt er að gera ef vilji og aðstæður leyfa. Við kynntum okkur sérstaklega hvernig Iþróttafélag fatlaðra starfar með 18 íþróttagreinar og fengum að reyna sjálf hvernig framkvæmd er kennsla í hjólastóladansi. Norska ungmennasambandið vinnur merkilegt starf fyrir fatlaða og nýkomin er út framkvæmdaáætlun með tilsögn og tónlist fyrir danskennslu sem hentar bæði andlega og líkamlega fötluðum einstaklingum. Þroskahjálp í Noregi vinnur mikið og gott starf, og hefur nýlega framleitt myndband sem sýnir tjölbreytni starfs fyrir fatlaða í menningar- og afþreying- armálum. Tilgangur starfsins er að rjúfa enn frekar einangrun fatlaðra og gefa sem flestum tækifæri til að njóta þeirrar gleði sem dansinn gefur. Ferðin sýndi okkur að fötluðum er ekkert ómögulegt, þegar vilji og ásetningur er til staðar. Undirrituð eru reiðubúin til að gera áhugasömum nánari grein fyrir kynnisferðinni, og telja að með henni hafi sannast, að þekking skapar skilning. Kolbrún Hauksdóttir og Gunnar Þorláksson. kringum jólin, en þetta er samt siður, sem ég held að flestir myndu sakna, ef hann legðist niður. 7ólagjafi rnar eru þó stærri liður í jólaundirbúningnum. Margir reyna að útbúa sjálfir gjafimar og er það mjög skemmtilegt og eitthvað finnst manni nú ennþá meira gaman að senda frá sér heimatilbúna gjöf, þ.e.a.s. sé hún vel heppnuð heldur en það sem keypt er í verzlun. Annars ganga jólagjafirnar sumsstaðar alveg út í öfgar, en sem betur fer held ég að þeir séu fleiri sem halda sig innan skynsamlegra takmarka. Sumt fólk er alveg snillingar að pakka inn jólagjöfum - þannig að skemmtileg en ódýr gjöf fær helmingi meira gildi fyrir listainnpökkun og kannski fáein vel valin orð á spjaldinu sem fylgir. Já víst er margur þreyttur fyrir jólin og óskar þess kannski innst inni að blessuð jólin væru liðin og janúar kominn með sinn óskáldlega, glans- lausa hversdagsleika. En jólin væra bara ekki jól, ef ekki fylgdi allt umstangið og þrátt fyrir allt hugsa ég að margur fullorðinn hlakki enn til jólanna svo ekki sé minnst á bömin, sem byrja að telja dagana strax á haustin, fyrst bara sunnudagana og svovirkudaganalíka! Ogfátterjafn skemmtilegt eins og það að sjá nýböð- uð börnin sofnuð í tandurhreinum rúmum á Þorláksmessukvöld og eftirvæntingin skín út úr andlitunum jafnvel þó þau séu sofandi. Ogjólin eru nú einu sinni fyrst og fremst hátíð barnanna." Ásgerður Ingimarsdóttír. Hlerað í hornum Sagan segir af þrem mönnum, Dana, Svía og íslendingi, sem rekið hafði á land á eyðieyju og voru vægast sagt illa haldnir. Einn dag sem oftar gengu þeir niður á ströndina og þá hafði rekið þar lampa einn, heldur óásjálegan. Þeir fægðu nú lampann svo hann varð skínandi fagur og þá kom út frá honum andi einn sem ávarpaði þá og bauð þeim að uppfylla eina ósk hvers og eins þeirra. Daninn óskaði sér óðar í bili heim til Danmerkurog hvarf þeim hinum sýn- um. Svíinn óskaði sér á sama hátt til Svíþjóðar og hvarf Islendingnum í einni svipan. Þá stóð Islendingurinn einn eftir og sagði: “Mikið skelfing er ég einmana. Það vildi ég óska að þeir félagar mínir væru komnir aftur”, og á samri stund stóðu þeir þar allir þrír í sandinum. Knattspyrnuforkólfur var að segja frá því þegar hann hafði boðið með sér ráðherra einum á úrslitaleik íslands- mótsins í knattspyrnu, en sá átti að afhenda sigurlaunin í leikslok. Ráðherrann mun lítið hafa þekkt til knattspyrnu og verið ónæmur með öllu fyrir þeirri bakteríu. Alla vega spurði hann þegar síðari hálfleikur hófst: “Hvers vegna skiptu þeir um búninga í leikhléinu?” Afinn var á ferð með tvíburana 5 ára. Þegar leiðin lá fram hjá stórum stein- drang með stórum steini þar á sögðu tvíburarnir einum rómi að þetta væri risi, tröllkarl sem hefði orðið að steini. Afinn varð svo að spinna upp langa sögu um tröllkarlinn sem var á leið til byggða en dagaði uppi og varð að steini þegar dagur reis og sólin kom upp. En í bakaleiðinni spurði svo ann- ar, greinilega eftir góða umhugsun um málið: “En afi, getur tröllkarlinn þá ekki lifnað við aftur þegar dimmir?” FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.