Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 49

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 49
ekki var síðra að hafa hana með við borðhaldið og á kvöldvökunni á laugardagskvöldið. Þá var sungið við undirleik Einars Hjörleifssonar eftir góða máltíð kokksins Sigurlaugar Gunnlaugsdóttur. Eins og fram hefur komið stendur námskeiðið yfir í tvo daga og vil ég taka fram að sérlega góð aðstaða er í Sjálfsbjargarheimilinu (dagvist) fyrir þessi námskeið því bæði eru góður fundarsalur og borðsalur auk herbergis fyrir hópvinnu og svo er hin ágætasta hvíldaraðstaða fyrir fólk sem þarf á henni að halda. Hjálparmenn eru til staðar allan tímann. Boðið er upp á svokallað fræðslu- hom þar sem einstaklingar geta fengið upplýsingar um ýmsa þjónustu og starfsemi á hinum ýmsu stöðum sem tengjast fötlun. Þá er þátttakendum boðið upp á að ræða í einrúmi við fyrirlesara og starfsmenn námskeiðs- ins sem voru að þessu sinni þau: Einar Hjörleifsson, Kristín Jónsdóttir, Lilja Þorgeirsdóttir og María Þorsteins- dóttir. I lok námskeiðsins var gert nám- skeiðsmat að venju, þar sem þátttak- endur fengu tækifæri til að segja sitt álit á námskeiðinu. Þá kemur ýmis- legt í ljós. Allir þátttakendur tóku fram að námskeiðið í heild væri mjög gott eða sérlega gott og að þeir hefðu fræðst mikið og alltaf væri gott að heyra frá reynslu annarra með svipaða fötlun og svo öllu sem aðrir höfðu frá að segja. Umræðan um tilfinningaleg við- brögð við fötlun fellur ávallt í góðan jarðveg. Það kemur einnig ávallt í ljós að mikil þörf er fyrir upplýsingar um tryggingamál og hin ýmsu hagsmuna- mál fatlaðra. Ennfremur finnst fólki mikið gagn af umræðum í litlum hóp- um. Einhver sagði að námskeiðið hefði gefið sér nýja von. Er þá ekki tilganginum náð? Það er skoðun mín að Sjálfsbjörg lsf. sé á réttri braut með námskeiða- haldi sem þessu, enda er það orðinn fastur punktur í starfseminni. Eg vil sem starfsmaður námskeiðanna frá upphafi þakka Sjálfsbjörg lsf. þá frá- bæru aðstöðu sem námskeiðin hafa fengið í Sjálfsbjargarhúsinu. Það er Sjálfsbjörg til mikils sóma. Kristín Jónsdóttir fyrirlesari og starfsmaður námskeiðsins Sveinn Snorri Sveinsson: Ef ég get ekki.. Ef ég get ekki hlaupið geng ég ef ég get ekki gengið skríð ég ef ég get ekki skriðið ligg ég og anda og anda Og lifi í voninni Höfundur er 75% öryrki. Menningardagar heyrnarlausra son. B e r g 1 i n d Stefánsdóttir flutti ávarp og lýsti menning- ardaga heyrn- arlausra opn- aða. Hún kvað nauðsyn til bera að gera menn- ingu heyrnar- lausra svo sýn- ilega almenn- ingi sem unnt væri. Hún kallaði forseta íslands upp og færði honum gjöf frá félaginu, málverk eftir Sunnu Davíðsdóttur, sem forsetinn þakkaði fyrir, bar kveðjur konu sinnar sjúkrar, en Berglind ámaði henni hins bezta bata. Þá voru sýndar stuttmyndir, en höfundar þeirra fengu fyrir þær 1. verðlaun á alþjóðlegri kvikmynda- hátíð í Budapest. Höfundamir Mira Zuckermann og Cornelis Mehlum kynntu myndir sínar með ávörpum. Mira myndina Vináttu, Cornelis leikurum og túlkað á tákn- máli. 11. október opnaði svo Vil- hjálmurG. Vil- h j á I m s s o n inálverkasýn- ingu í Lista- safni ASÍ og fékk hún ein- staklega góða dóma og var fjölsótt. 29. október var svo flutt barnaleikritið Lofthræddi örninn Örvar í Vestur- hlíðarskóla, leikið og túlkað jafnhliða. Hápunkti náði þó þessi menning- arhátíð dagana 3.-5. nóvember þegar Tyst teater frá Svíþjóð sýndi 3 leikrit: Lilla Mahagonny, Shakespearian hit parade og Mirad-drengur frá Bosníu. Þóttu þær sýningar takast einstaklega vel. Þetta framtak Félags heyrnar- lausra var lofsvert mjög og þeim til mikils sóma. H.S. Forseti íslands einnig mættur. myndina Portúgal og vom báðar lista- vel gerðar. f Loftkastalanum var svo stutt- myndahátíð með stuttmyndum eftir heyrnarlausa. Þá var ljóðakvöld, mjög skemmti- legt og fjöl- breytt í Þjóð- leikshúskjall- aranum flutt af Menningardagar heyrnarlausra voru haldnir 2.okt. - 9.nóv. sl. og tókust mjög vel. 2. október var móttaka f Loftkast- alanum íboði Félags heyrnarlausra og var þar fjöl- menni saman- komið. Meðal gesta var forseti íslands, Ólafur Ragnar Gríms- FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.