Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 44
Erlendu gestirnir og Ástrós formaður.
Hér leynist fólk
Málþing um einhverfu
Ritstjóri átti þess því miður
ekki kost að sækja hið ágæta
málþing Umsjónarfélags
einhverfra sem haldið var sunnudag-
inn 9. nóvember sl. í Ráðhúsi Reykja-
víkur sem lokapunktur afmælishátíð-
ar félagsins.
Ástrós Sverrisdóttir formaður
félagsins var hins vegar svo elskuleg
að líta hér inn og gefa lesendum
nokkra hugmynd um málþing þetta.
Ástrós segir að aðsókn að mál-
þinginu hafi farið fram úr björtustu
vonum, en um 400 manns sóttu mál-
þingið. Yfirskriftþess var: Hérleyn-
ist fólk - fjölskyldan - fötlunin.
Hugsunin að baki var að gefa fólki
innsýn í líf einhverfra sjálfra sem og
fjölskyldna þeirra, sýna að þarna
leynist fólk með sínar þrár og ekki
síður sína möguleika í lífinu.
Ástrós setti málþingið. Hún talaði
um hvað áunnizt hefði og lagði
megináherzlu á þjónustuþáttinn. Hún
minnti á markmið félagsins fyrir tutt-
ugu árum og þó margt hefði áunnizt
væri þó enn verið að berjast fyrir
sömu meginmálum. Hún notaði tæki-
færið til að herða á þessum megin-
markmiðum þar sem aðalinntakið
væri heildstæð þjónusta við einhverfa
byggð upp á skipulegan hátt - slíkt
væri allra hagur, ekki sízt sam-
félagsins.
Forseti íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, ávarpaði málþingið, flutti meitl-
að og áhrifamikið ávarp sem alla
hreif. Hann ræddi m.a. um áhrifhvers
konar áfalla í lífinu.
Næstur talaði svo Árni Ragnar
Georgsson, sem er með Asp-
erger heilkennið. Sagði hann á skýran
og skemmtilegan hátt frá áhugamál-
um sínum og eins sagði hann frá
fötlun sinni á ljóslifandi máta, veldur
því m.a. að hann er félagslega ein-
angraður. Hann lýsti í þessu sam-
bandi klaufaskap sínum í mannlegum
samskiptum. Notaði enda tækifærið
í lokin til að auglýsa eftir vinum, því
hann kvaðst eins og aðrir þrá sem bezt
samskipti við aðra.
Þrjú systkini einhverfra: Edda
Jónsdóttir, Hafsteinn Halldórsson og
Jakobína Valsdóttir sögðu frá sínu
sjónarhorni, en þau voru frá 10 ára
og upp í 19 ára gömul.
Þau sögðu frá reynslu sinni af að
eiga einhverf systkini. í gegnum mál
þeirra skein Ijóslega ákveðin aðlögun,
þau voru greinilega sérfræðingar í að
sjá ljósu hliðarnar og voru stolt af
systkinum sínum.
Gunnsteinn Sigurðsson talaði
þessu næst, en hann er foreldri barns
á forskólaaldri sem greint var með
einhverfu á árinu. Hann sagði bamið
eðlilega sem óskrifað blað, en með
sem beztri þekkingu áynnist margt
m.a. að leita hinna ýmsu leiða til að
fá viðeigandi úrræði fyrir bamið.
Bjarnveig Bjarnadóttir rakti
þroskasögu móður sem á son sem nú
er fluttur að heiman. Bjamveig hefur
áður í grein hér í blaðinu gert þessu
frábær skil, en niðurstaða hennar var
að hún væri sátt við erfiðar aðstæður
þar sem æðruleysi skipaði æðstan
sess.
Eftir kaffihlé var svo komið að
gestum málþingsins - höfunda
bókarinnar: Hér leynist drengur, sem
Mál og menning gaf út á þessu ári:
Páll Ásgeirsson geðlæknir bauð þau
mæðgin Judy Barron og Sean Barron
velkomin með nokkmm orðum.
Móðirin sagði að saman hefðu þau
skrifað bókina sem lýsti baráttu
sonarins við einhverfuna, en hann
telur sig í dag ekki einhverfan, heldur
hafi honum tekizt að brjótast út úr
einhverfunni. Hún sagðist engan
stuðning utanaðkomandi hafa fengið
á þeim tíma þegar einhverfunnar varð
vart. Á þeim tíma var móðurinni
hreinlega kennt um fötlunina.
Sonurinn Sean lýsti því hvemig
hann upplifði einhverfuna, lýsti
skynjunartruflunum, þráhyggju og
atferlistruflunum. Þegar hann öðlað-
ist aukinn skilning á einhverfunni
vann hann markvisst að því að vinna
bug á henni. Hann taldi sig hafa verið
í endurhæfingu í fleiri ár, en tekizt svo
að vinna sig frá einhverfu. Ástrós
segir sögu Seans vera einstaka og
mikilvægt að hafa það í huga, en saga
hans kenndi okkur að skilja einhverf-
una betur.
í lokin söng svo K.K. nokkur lög
við góðar undirtektir málþingsgesta.
K.K. sagði að í salnum væri að finna
greinilega rafmögnun ástar og sam-
kenndar.
Ástrós sagði þau hjá Umsjónar-
félaginu vera alsæl með þátttöku
fólks, bæði í afmælisfagnaði - sem á
málþingi og kvað þetta verða þeim
verulega hvatningu til að halda bar-
áttunni ótrauð áfram. Færði öllum
alúðarþakkir sem að hefðu komið,
ekki sízt félagsmálaráðuneytinu sem
hefði kostað kaffiveitingarnar á
málþinginu.
H.S.
44