Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 35

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 35
stóru sérgreinunum í læknisfræði. Síðan hefur læknum og öðrum sér- lærðum starfsmönnum farið fjölgandi og þeir sinnt fræðilegum rannsóknum og almannafræðslu í vaxandi mæli, eftir því sem tími hefur gefist frá lækningunum. Fræði- og fræðslu- greinar, sem birst hafa eftir starfsmenn geðdeildarinnar, skipta hundruðum auk erinda, sem haldin hafa verið á fundum og ráðstefnum innan lands og utan. En betur má ef duga skal á þessu sviði eins og öðrum, sem við erum að fást við. Framtíðarsýn Ekki er hægt að ljúka þessu stutta ágripi af sögu geðdeildar Landspít- alans nema horfa til framtíðar. Þó að 24362 sjúklingar, eða um 6,4% íslendinga, hafi leitað aðstoðar geðdeildarinnar á þessum 90 árum, vantar mikið á að allir, sem hefðu þurft aðstoðar hennar, hafi leitað eftir eða fengið. Okkur, sem störfum á geðdeildinni er ljósara en flestum, að sú aðstoð, sem hefur verið veitt hefði átt að vera enn meiri. Þróun undanfarinna ára hefur verið sú, að sjúkrahúsrúmum hefur farið fækkandi og má þeim nú alls ekki fækka meir. Dagvistum hefur fjölgað, innlögnum á deildina hefur fjölgað og meðaldvalartíminn styst, göngudeild- arviðtöl hafa aukist mjög mikið, um 65% af dagvistun Landspítalans eru á geðdeildinni, 25% af legudögunum, en kostnaður geðdeildarinnar er aðeins 13% af kostnaði spítalans. Vegna þess hversu algengar geð- raskanir eru, er bráðnauðsynlegt að hafa sjálfstæða geðdeild á hverju sér- hæfðu sjúkrahúsi. Nauðsynlegt er að fá meiri sérhæfðan mannafla vegna meðferðar sjúklinganna. Þeir þurfa að geta valið sér meðferðaraðila og Séð yfír salinn á afmælis- hátíð. heilbrigðisstarfsmennirnir þurfa að geta valið sér vinnustað. A deildum þar sem meðferðin byggist á miklum og sérhæfðum mannafla, verður ekki náð sparnaði með sameiningu nema skera niður þjónustuna um leið. Slíkt væri bæði ómannúðlegt og þjóðhags- lega mjög óhagkvæmt. Markmið geðdeildarinnar sem hluta háskólasjúkrahúss er að: 1) stunda bestu mögulegar geðlækn- ingar og endurhæfingu, 2) afla þekk- ingar með vísindalegum rannsóknum og símenntun starfsmanna, 3) miðla þekkingu til annarra og 4) stunda heilsuvernd. Til þess að ná þessum markmiðum þarf að auka sérhæfingu, bæta kennslu og fá meiri tíma til rannsókna. Göngudeildar- og dag- deildarstarfsemi fer vaxandi og jafn- framt er nauðsynlegt að útvega geð- fötluðum verndað húsnæði og aðstoð til eins sjálfstæðrarbúsetu og hverjum hæfir. Bama- og unglingageðdeild þarf að finna stað í byggingu barna- spítala, þegar hann rís, og enn þarf að auka samvinnu og gagnkvæma ráð- gjöf á milli geðdeildarinnar og annarra deilda Landspítalans og við aðila utan spítalans. Sérstaklega þarf að tengja nánar geð- og taugalækn- ingar og bæta við félagslækningum, svo að allt rannsóknar- og forvamar- starf verði áhrifaríkara. Loks þarf nú þegar að fara að huga að því, að samningur um lóðarréttindi Kleppsspítalans rennur út eftir sjö ár, þ.e. 2004. Fyrir þann tíma þarf að vera búið að byggja upp aðstöðu fyrir allar bráðageðlækningar Landspítal- ans á Landspítalalóðinni. Þakkir Hér að framan hefur verið minnst á nokkra aðila, sem geðdeildin hefur átt mikla og góða samvinnu við, Dvalarheimilið As í Hveragerði, Reykjalund, Geðverndarfélagið og Hússjóð Öryrkjabandalagsins. Við þessa upptalningu er nauðsynlegt að bæta Geðhjálp, Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, öðrum deildum Landspítalans, auk fjölmargra annarra aðila sem of langt yrði upp að telja. Nú er komið að starfslokum hjá mér og vil ég því nota þetta tækifæri til að þakka samstarfsfólki á geðdeildinni ánægjulega og góða samvinnu í nærri 35 ár, heilbrigðisráðuneyti, Stjómar- nefnd og framkvæmdastjórn ríkis- spítalanna, starfsfólki skrifstofunnar, svo og öðru starfsfólki Landspítalans, sérstaklega kollegum mínum á geðdeildinni og prófessorum og forstöðumönnum annarra deilda, sem hafa unnið náið saman að viðgangi Landspítalans á undanförnum árum. Tómas Helgason Erindi flutt á afmælishátíð og áður prentað í tímaritinu Geðvernd. Heimildir 1. Lárus H. Blöndal og Vilmundur Jónsson. Læknar á Islandi, 2. útg. Reykjavík. Læknafélag íslands / ísafoldarprentsmiðja 1970; 2:378-81. 2. J.R. Húbertz. Om Daarevæsenets Indretning I Danmark. Köbenhavn 1843. 3. Þórður Sveinsson. Ahrif föstu á undirvitundina. Læknablaðið 1923; 9:226-231. 4. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 1926, dagbók 7, skjal 578 í Þjóð- skjalasafni. Skv. ábendingu Jóhönnu Ingólfsdóttur. 5. Helgi Tómasson. Blodets elekt- rolyter og det vegetative nervesystem. Levin og Munksgaards Forlag. Köbenhavn 1927. Doktorsritgerð. 6. Helgi Tómasson. Therapeutic at- tempts in manic depressive psycho- sis. J. Ment. Science 1936; 82:595- 609. 7. Helgi Tómasson. Rafrot við geð- veiki. Heilbrigðisskýrslur 1951. Reykjavík. Ríkisprentsmiðjan Guten- berg 1955; 193-212. 8. Tómas Helgason. Lovgivning og omfatning af _tvángsvárd” i Island. I: Tváng-Autonomi-Etik i Psykiatri. Stockholm. Socialstyrelsen 1991; 19 (bilaga):89-93. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.