Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Page 6

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Page 6
- okkar lán að hún var barnlaus, enda á klukkan heima hér.” Utvarpstækin voru tækninýjung í þá daga og von að Ríkarður hafi viljað færa fjöl- skyldu sinni slíka af- þreyingu. “Viðsátum svo oft í kringum útvarpstækið,” segir Olöf, “og hlustuðum á útvarpsleikritið, mamma og við syst- urnar með handa- vinnu, pabbi að teikna, miklu meira verið heima þá.” Gamli tíminn sæk- ir að. I málverki á veggnum - bærinn Strýta í Hamarsfirði - uppvaxtar- umhverfi Finns og Rfkarðs. Strýtu- bræður voru þeir kallaðir og hér má sjá úr hvaða umhverfi þeir eru sprottn- ir. Listmálarinn Finnur setur Strýtu í miðju myndar, klettadranginn sem bærinn dregur nafn sitt af. - Skyldi hin dulúðga náttúrusmíð hafa kveikt löngun myndhöggvarans Ríkarðs, fengið hann til að kafa ofan í náttúru- vætti og höfðaletur? Erfitt að yfirgefa svo myndrænt umhverfi. Reykvísk sveit “Pabbi varð að komast úr bænum á sumrin,” segir Olöf. “Þau keyptu þetta hús 1928, en leigðu það fyrst. í nokkur sumur dvöldum við í litlu sumarhúsi á horni Langholtsvegar og Laugarásvegar, sem pabbi reisti að mestu sjálfur. Húsið stóð í enda hlíð- arinnar og Hlíðarendi hét það, eins og húsið á Djúpavogi sem ég fæddist í.” Þá var sveit í Laugardalnum, svo mikil sveit að mikill vinur Ríkarðs, Gísli í Papey, sendi honum að gjöf “kú á fæti” og fóður til margra mánaða! “Hugsaðu þér, að láta sér detta í hug að senda kú frá Djúpavogi til Reykja- víkur,” og Ólöf skellihlær. Skúr var smíðaður fyrir kúna, sem mjólkaði vel, og til er mynd af Maríu, móður Ólafar, við mjaltir. “Mamma var svo mikil búkona.” Ríkarður hjólaði alltaf á milli vinnustofu og heimilis. Þá rfkti ró í Laugardalnum, lítil byggð og fáir bílar, og Ólöf minnist þess að faðir hennar stoppaði alltaf hjá Tungu á Stjórn Sjálfsbjargar - landssambands og framkvæmdastjóri 1975. Suðurlandsbraut - og hóaði hátt til að láta þau vita að hann væri á leiðinni. “Hann hafði svo sterkan róm,” seg- ir Ólöf, “fór að læra söng, þegar hann var í framhaldsnámi á Ítalíu árið 1921. Sá kennari hvatti hann til að hætta myndhöggvaranámi, leggja heldur sönglistinafyrirsig. Já, margirhefðu ruglast í ríminu með svo marga hæfi- leika, en pabbi var alltaf ákveðinn í að leggja fyrir sig tréskurð og mynd- höggvaralist. Að vísu liggja eftir hann einstaka rauðkrítarmyndir, en þar skipti alveg á milli Finns og pabba.” Hlíðarenda í Laugardal varð að selja, þegar heimilisfaðirinn veiktist af hettusótt. En sveitin heillaði áfram og Ólöf á góðar minningar frá Reyni- stað við Skerjafjörð, þar sem Georg föðurbróðir hennar var bóndi á leigu- jörð. “Þar vorum við eins og á bað- strönd og mamma var dugleg að synda með okkur krökkunum í sjón- um. Nú standa olíutankar út við sjó- inn í Skerjafirði og olía búin að skemma gömlu baðströndina.” Sveitin hélt áfram að toga Ríkarð og fjölskyldu til sín á sumrin. “í þrjú sumur leigðum við hjá Ólafi Ketils- syni á Laugarvatni, en árið 1943 byggðu foreldrar mínir sumarbústað í Hveragerði - þann bústað á ég enn. Ómetanlegur þáttur í lífi mínu að fá að dvelja svo mikið úti í náttúrunni.” Meðfótlun út í lífið Árið 1924 veiktist Ólöf, aðeins tveggja ára - og þurfti ávallt síðan að styðjast við hækjur. Þá var ekkert til hjálpar á Islandi. “Eg var fjögurra ára, þegar mamma og pabbi fóru fyrst með mig til Kaupmannahafnar. Þá fékk ég nudd sem hjálpaði mikið og spelkur. Sjúkra- þjálfun þekktist ekki. Þau fóru út með mig sex ára, tíu ára og tólf ára gamla. I eitt skiptið var mjöðmin löguð. Öðru sinni var ökklinn gerður stífur. Allt var gert fyrir mig, sem hægt var að gera þá. Gervilimasmiður var farinn að starfa hér heima, þegar ég var tólf ára. Hjá honum fékk ég nýjar spelkur.” Ólöf gat aldrei gengið úti sem lítil stelpa, aðeins innandyra. “Allt breyttist, þegar ég fékk bíl- inn. Þá gat ég farið allra minna ferða óháð öðrum.” Ólöf menntaði sig þrátt fyrir sína fötlun, lauk prófi frá Samvinnuskól- anum og fór að vinna við skrifstofu- störl hjá KRON á Skólavörðustíg, stutt frá Grundarstígnum. Bætti síðan við sig tungumálanámi, sem átti eftir að koma sér vel. / Olöf var ein af stofnfélögum Sjálfsbjargar 1959. “Uppistað- an í Sjálfsbjörg voru mænuveiki- sjúklingar, eins og flestir af stofnend- unum eru. Lömunarveikin var skæð 1924. Furðulegt hvernig veikin stakk sér niður á landinu, aðeins ein kona fékk hana austur í Álftafirði, annar norður í Ólafsfirði og enn er því ósvar- að, hvernig veikin gat borist á milli landshluta.” Ólöf átti sæti í fyrstu stjórn Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra og var ritari þar í 25 ár. “Árið 1967 fer ég að vinna fyrir Sjálfsbjörg að félags- málum, sem var mikið starf. Ég sá til dæmis að mestu leyti um öll samskipti við útlönd. Við gengum í norrænu samtökin 1961. Þá fengum við bréf frá Bandalagi fatlaðra á Norður- löndumogokkurboðinþátttaka. Við vorum yngstu samtökin.” Það lendir á Ólöfu að vera fulltrúi íslands og fara á fyrsta fundinn. “Það þótti miklum tíðindum sæta, þegarégmætti. Ekkiaðfulltrúiskyldi 6

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.