Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Síða 14

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Síða 14
Aðspurðir sögðust nokkrir einstakl- ingar ekki einu sinni hafa áttað sig á því sjálfir að eitthvað væri að sjón þeirra. Kennduumklaufaskapefþeir ráku sig utan í eða duttu um hluti sem urðu á vegi þeirra. Em það afleiðingar sjúkdóms þeirra sem hefur þau áhrif að sjónsviðið þrengist svo hægt að oft líða mörg ár þar til menn átta sig á því að ekki er allt með felldu. Spurt var um notagildi hjálpar- tækja sem úthlutað hefur verið á Sjón- stöðinni. Hópurinn hafði fengið úthlutað samtals 67 hjálpartækjum, allt frá einföldum stækkunarglerjum, upp í flókinn og dýran tölvubúnað allt eftir þörfum hvers og eins. Flestir töldu sig hafa mikið eða mjög mikið gagn af tækjunum, þó reyndust sum hjálp- artækin liggja ónotuð og engum til gagns. Notagildið virtist ekki fara eftir umfangieðaverðmætihlutarins. Ein- falt stækkunargler kom að miklum notum hjá einum á meðan blindralet- ursritvél kom að litlum notum hjá öðrum. Þar sem lítið gagn virðist vera af tækjunum gæti ástæðan verið versnandi sjón þar sem hjálpartækin koma ekki að eins miklu gagni nú og þegar þeim var úthlutað. Önnur ástæða gæti verið sú að notendumir hafi ekki fengið nægjan- lega þjálfun í notkun þeirra, því ef hinum sjónskerta eru aðeins afhent hjálpartækin en ekki kennd notkun þeirra er líklegt að þau komi ekki að tilætluðum notum. Þó er vel þekkt meðal sjónskertra, sérstaklega yngra fólksins að það veigrar sér við að nota hjálpartæki svo aðrir sjái þ.e. vilja halda fötlun sinni leyndri. Það er regla meðal starfsfólks Sjónstöðvar- innar að minna skjólstæðinga sína á að koma aftur ef hjálpartækin nýtast ekki eða þeir finna þörf fyrir ný. Margt má eflaust læra af niðurstöðum könnunarinnar. A það ef til vill helst við um starfsfólk Sjónstöðvar Islands. Þeir einstaklingar sem verða fyrir því áfalli að missa sjón verða að glíma við erfið vandamál bæði andleg, félagsleg og fjárhagsleg. Þeir eiga oft erfitt með að leita eftir hjálp og það virðist stundum auðveldast að gefast upp. Þeir þurfa nauðsynlega á endurhæfingu að halda ásamt sálfræðilegum stuðningi. Einnig mætti gera ráðstafanir til að gera hina sjónskertu og blindu “sýnilegri” í þjóðfélaginu með því að veita þeim meiri aðstoð og hvetja þá til að sækja um vinnu á hinum almenna markaði. Uppástungur um tillögur til bóta fyrir blinda og sjónskerta á vinnu- markaðinum: 1. Fagfólk sem vinnur að endurhæf- ingu sjónskertra mætti e.t.v. fylgja betur eftir sínum skjólstæðingum til að meta árangur endurhæfing- arinnar og styðja við bakið á þeim sem líklegir eru til að gefast upp. 2. Auglýsa betur þá endurhæfingu sem stendur sjónskertum til boða. 3. Hvetja yfirvöld til að verja meira Ijármagni til vinnumiðlunar fyrir fatlaða, þ.á.m. sjónskertra. Ahersla er lögð á það í ræðu og riti hve mikils virði það er fyrir alla vinnufæra menn að hafa vinnu bæði til að sjá sér farborða og eins er það talið mikils virði fyrir sjálfs- traustið. Skoðun mín er sú að það sé ekkert kraftaverk eins og sumir vilja halda fram að blindir og sjónskertir geti unnið hin ýmsu störf. Það þarf aðeins að gefa þeim tækifæri bæði með hverskonar endurhæfingu sem og að trúa þeim fyrir störfum við hæfi. Hlerað í hornum Kona ein fór í krabbameinsskoðun sem ekki er í frásögur færandi. Þegar hún lá svo á bekknum til skoðunar og læknirinn kom til, þá sagði hann. “Ja þú ert aldeilis fín. Mér þykir þú vera fín”. Konan ansaði þessu engu enda þóttu henni þessi orð læknisins virkilega óþægileg. Þegar hún kom svo heim fór hún að kanna nánar við hvað læknirinn hefði getað átt. Þá kom í ljós að hún var öll út í glimmer á versta stað en skýringuna vissi hún. Litla dóttir hennar hafði verið í baði með glimmer og hún svo drifið sig beint í baðið enda orðin of sein í skoðunina. En henni þótti nú samt sem læknirinn hefði getað látið þetta ósagt. Nemandi í menntaskólanum kom heldur hnugginn heim með hreina falleinkunn. Móðir hans mælti til hans þessum huggunarorðum. “Fall Eins og málum er háttað í dag er enginn sjónskertur á skrá hjá Vinnu- miðlun Reykjavíkurborgar. Ómögu- legt er að segja til um hvort það er vegna þess að allir sjónskertir hafi vinnu við hæfi eða hvort þeir hafi gefist upp við allar tilraunir til að fá vinnu. Ef þessi ályktun reynist sönn er full þörf á uppstokkun í þessum málum. Vil ég hvetja alla sjónskerta og blinda sem eru atvinnulausir eða gætu hugsað sér að skipta um vinnustað að stíga nú fram í dagsljósið og láta skrá sig hjá Vinnumiðluninni og vera jafnframt í sambandi við starfsfólk Sjónstöðvar íslands sem er tilbúið til að veita viðeigandi aðstoð og þjálfun á vinnustöðum. Þórunn Guðnadóttir Um höfundinn Þórunn Guðnadóttir hefur starfað á Sjónstöð Islands frá opnun hennar árið 1986. Skólaárið 1995-1996 dvaldi hún í Svíþjóð og lauk prófi í sjónþjálfun frá Lárarhögskolan í Stokkhólmi í desember 1996. Hluti lokaprófsins fólst í að gera könnun á högum sjónskertra. Þórunn taldi áhugavert að vita hvernig einstakl- ingum, sem hafa verið fullsjáandi, reiðir af í atvinnulífinu eftir sjóntap. er nú ekki svo afleitt. Hvað sagði ekki karlinn þegar hann datt niður stigann og hálsbrotnaði: Fall er fararheill, en það var nú reyndar það síðasta sem hann sagði”. Ungur maður fór á skemmtistað þar sem léttklæddar meyjar sýndu nektardans. Heimkominn dreif hann sig í svefnherbergið og í myrkrinu þar var tekið á móti honum með kostum og kynjum. A eftir brá hann sér fram á gang en þar mætti hann, sér til mikillar skelfingar konu sinni sem sussaði á hann og sagði: “Uss, ekki vekja mömmu, hún kom í kvöld og sefur í rúminu okkar”. Faðirinn var að fara með bílinn á verkstæði og lítil dóttir hans hafði áhyggjur af bílleysinu og spurði hvernig þau færu nú að. Faðirinn sagði þá: “Hann afi þinn getur bara gefið okkur bflinn sinn”. Sú litla leit hneyksluð á hann og sagði: “Maður kaupir bfla”. 14

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.