Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Síða 18
AÐALFUNDUR 1997
Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands var haldinn í
Borgartúni 6 laugardaginn
18.október og hófst kl. 10 árdegis.
Alls sóttu þennan aðalfund nær 80
manns, 62 fulltrúar frá öllum aðild-
arfélögum bandalagsins, starfsfólk og
fulltrúar ÖBI í svæðisráðum.
Það var Ólöf Ríkarðsdóttir, for-
maður bandalagsins sem setti fundinn
og bauð menn velkomna. Hún til-
nefndi Þóri Þorvarðarson sem fund-
arstjóra og þau Kristínu Jónsdóttur og
Helga Hróðmarsson sem fundarritara.
Formaður flutti því næst skýrslu
sína og kom víða við. Margt í máli
formanns hefur fengið góða umfjöllun
hér í Fréttabréfinu og því er hér aðeins
á áherzluatriðum stiklað.
Hún greindi fyrst frá umsóknum
þriggja félaga um aðild að bandalag-
inu: Daufblindrafélaginu, Málbjörg
og Tourette samtökunum, en
afgreiðslu verið frestað vegna vinnu
við skipulag bandalagsins og lög þess,
félögin látin vita þar af og um full sátt.
Ólöf vék því næst að hinum mörgu
fundum sem haldnir hefðu verið niðri
í heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti,
sumt án árangurs, annað hefði afrakst-
ur borið. í gangi væri samráðsnefnd
ráðuneytis og bandalags, þar sem
mörg mál væru viðruð og sumu þokað
á betri veg, öðru afstýrt. Hún minnti
á samráðsnefndina með stéttarfélög-
unum og kröfuna í síðustu kjarasamn-
ingum um að bætur fylgdu launaþró-
un, lágmarkslaunum í landinu. Ólöf
sagði að við yfirlýsingu forsætisráð-
herra um að bætur skyldu taka meðal-
hækkun launa hefði fylgt “að mati
ríkisstjórnar”, og það mat skilað sam-
tals 6% hækkun. Tveggja og hálfs
prósenta hækkunin í sumar hefði ekki
komið til af góðu, reiðialda í þjóð-
félaginu út af tugþúsunda hækkun
toppanna á mánuði og áskorun A.S.Í.
um að bótahækkun skyldi fylgja í
kjölfarið.
í þessu sambandi rakti Ólöf svo
helztu efnisatriði ályktana þeirra sem
fyrir fundinn yrðu lagðar og lytu að
kjaramálum að yfirgnæfandi hluta,
beint framhald í raun af einkar vel
heppnaðri kjararáðstefnu. Ólöf sagði
að nú væru 19 mánuðir liðnir frá því
kvartað hefði verið til umboðsmanns
Alþingis vegna kjarasamninga 1995
og enn engin svör fengizt. Allnokkuð
væri sem áður um umsagnir til Al-
þingis og reynt að vanda sem bezt þar
til.
ún minnti á mikilvægi lög-
fræðiþjónustu bandalagsins þar
sem mörg mál fengju ágæta úrlausn.
Fréttabréfið væri bandalaginu þýð-
ingarmikill miðill.
Upplýsingabæklingar um banda-
lagið og félög þess væru nú til bæði á
dönsku og ensku. Stefnuskráin hefði
verið gefin út í fallegum, mynd-
skreyttum bæklingi. Samþykkt hefði
verið að láta útbúa hátíðarfána og væri
hann í vinnslu nú.
Hún minnti á að meginreglur Sam-
einuðu þjóðanna væru nú brátt fimm
ára gamlar. Þess hefði verið farið á
leit við félagsmálaráðherra að hann
gæfi Alþingi skýrslu um meginregl-
umar nú á alþjóðadegi fatlaðra þann
3. des. nk. Huga þyrfti að lagasetn-
ingu þessara meginreglna.
Hún kvað vefsíðu bandalagsins
formlega í notkun tekna á þessum
aðalfundi. Minnti svo á styrkina til
aðildarfélaganna, sjóði í vörzlu
bandalagsins og vel heppnaða
samstöðuhátíð á Selfossi en allt það
afar vel kynnt hér áður.
Hún rakti lottómálið svokallaða
ítarlega þ.e. þá ósk Þroskahjálpar að
fá hluta af tekjum ÖBI frá Islenzkri
getspá. Nú yrði að frumkvæði dóms-
málaráðherra skipuð þingmannanefnd
til að fara yfir öll happdrættismál í
landinu.
Ólöf greindi frá samkomulagi
ríkisstjórnar og Sambands íslenzkra
sveitarfélaga um ferlimál. í því sam-
bandi minnti hún á ráðstefnu um ferli-
mál á vegum ferlinefndar félagsmála-
ráðuneytis hinn 26. nóv. nk.
Kvaðst nú láta af störfum sem
formaður. Færði öllum samstarfsaðil-
um alúðarþakkir fyrir hin ágætu
samskipti áranna um leið og hún
árnaði nýrri stjórn allra heilla.
r
Olafur H. Sigurjónsson kvað
brýna nauðsyn til þess bera að
bandalagið sýndi aukið frumkvæði í
kjarabaráttunni í stað þess að bregðast
stöðugt við áreiti stjórnvalda, þó
einnig væri knýjandi. Viðeigumekki
að láta varnarsigrana eina nægja,
sagði Ólafur.
Tómas Helgason stjórnarform.
Hússjóðs flutti því næst sína skýrslu
sem birt er hér í blaðinu. Helgi
Hjörvar innti eftir skýringum þess að
Byggingarsjóður ríkisins hefði engin
lán veitt Hússjóði. Sömuleiðis spurð-
ist hann fyrir um framkvæmdir þær
sem fyrirhugaðar væru í Fossvogi.
Tómas svaraði þessu glögglega.
Þá var komið að skýrslu frá skrif-
stofu bandalagsins. Mál Asgerðar er
birt hér í blaðinu.
18