Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Side 20
millj.kr. Laun og launatengd gjöld
voru upp á 25,8 millj.kr. Eigið fé er
upp á 10,1 millj.kr. Framlög samtals
upp á 12,5 millj.kr. þar af frá ÖBÍ 4
millj.kr.
Húsaleigutekjur hjá Hússjóði
nema um 126,6 millj.kr. Hluti Hús-
sjóðs af lottóhagnaði var nær 93,9
millj.kr. Eignir eru samtals upp á
rúmlega 1.8 milljarð króna en á móti
eru skuldir upp á um 935 millj.kr.
Heildartekjur Öryrkjabandalagsins
af Islenzkri getspá voru 140 millj.kr.
á móti 147 millj.kr. árið áður. Til
bandalagsins sjálfs fóru nær 46
millj.kr. Rekstrargjöld bandalagsins
voru samtals um 17,6 millj.kr. þar af
voru laun og launatengd gjöld rúmar
9 millj.kr.
Fréttabréfið tók til sín 5,4 millj.kr.
Styrkir til aðildarfélaga námu 8.7
millj .kr. Til annarra rúmlega 8,2 millj.
kr. Þar eru hæstu liðir: Til Vinnustaða
4 millj.kr., til íþróttasambands fatlaðra
1 millj.kr. og 750 þús.kr. til Starfs-
þjálfunar fatlaðra.
Eftir fáeinar fyrirspurnir sem
svarað var voru reikningamir bornir
undir atkvæði og samþykktir sam-
hljóða.
Helgi Hróðmarsson var svo
næstur skýrsluhöfunda. Helgi
flutti ítarlega skýrslu um Helios II
verkefnið og virka þátttöku okkar þar.
Þar hefðum við víða verið virkir
þátttakendur í samstarfsnefndum um
hin ýmsu mál er okkur varða miklu.
Hann taldi ávinninginn ólíkt meiri en
þann kostnað sem af hefði hlotizt.
íslendingar væru með 5 1/2% kostn-
aðar af heildarkostnaði Efta ríkja sem
greiddu þó ekki nema tæp 1,6% heild-
arkostnaðar. Helgi taldi atvinnumála-
verkefni brýnast nú. Hann gjörðist
þjóðlegur og líkti þessum þætti
Evrópusambandsins við mjólkurkú
sem teygði spena sinn allt hingað til
lands. Þann spena ættum við að
mjólka okkur til gagns. Helgi vakti
athygli á því að þó okkur þætti margt
hér öðmvísi en vera skyldi, þá væri
staðreyndin sú að víða í löndum
Evrópu væri aðstaða og aðstæður
fatlaðra mun lakari en hér. Megin-
málið væri það að hvarvetna ætti að
gildareglanumfólkífyrirrúmi. Helgi
kvaddi svo Ólöfu með fallegum, vel
völdum orðum og gat m.a. um þátt
hennar í Helios verkefninu þar sem
hún hefði tvímælalaust verið fremst
meðal jafningja.
Nokkrar umræður urðu um fyrir-
komulag aðalfunda, menn vildu draga
úr skýrslugjöf, verja meiri tíma í
almennar umræður; senda ályktanir,
skýrslur og reikninga fyrirfram til
aðalfundarfulltrúa. Vísast þar til til-
lögu Guðmundar Magnússonar sem
samþykkt var síðar á fundinum.
Næsti dagskrárliður var kjör í
framkvæmdastjórn. Kjósa
skyldi nú skv. lögum bandalagsins
formann og gjaldkera. Aðeins ein
tillaga kom um formann, Haukur
Þórðarson því sjálfkjörinn í það
embætti. Sömuleiðis kom aðeins ein
tillaga fram um gjaldkera og var
Hafliði Hjartarson sjálfkjörinn í það
embætti. Kjósa varð varaformann til
eins árs þar sem Haukur Þórðarson
var varaformaður áður. Fram komu
tillögur um tvo: Garðar Sverrisson
og Ólaf H. Sigurjónsson.
Fram fór leynileg kosning og var
Garðar kjörinn með 39 atkv. Ólafur
H. fékk 21.
Til vara í framkvæmdastjóm voru
kjörnar þær: Elísabet Á Möller,
Dagfríður Halldórsdóttir og Valgerður
Auðunsdóttir. Endurskoðendur vom
þeir kjömir: Vigfús Gunnarsson og
Tómas Sturlaugsson.
Skýrsla skipulagsnefndar banda-
lagsins var svo þessu næst tekin fyrir
en framsögu fyrir henni hafði Bjöm
Hermannsson. Bjöm sagði að stefnu-
skráin væri vegvísir Öryrkjabanda-
lagsins, nú væri verkefnið að leggja
vegina. Samvinnu félaga þyrfti að
auka og bæta enn tengsl bandalags og
félaga. Bjöm rifjaði upp jafnréttis-
markmið stefnuskrárinnar, lífsgæðin
væru það meginmál sem öllu skipti.
Hann benti á margvíslegar breytingar
á innra og ytra umhverfi bandalagsins
m.a. væri þörf á hagfræðilegum ráð-
leggingum og upplýsingum. Starfs-
kraftar félaganna dreifðir og sum
félög innan bandalagsins með veikan
starfsgrundvöll. Nefndin hefði reynt
að skilgreina hlutverk bandalagsins til
framtíðar, en eftir þessa 15 fundi
nefndarinnar væri nú lögð fram
áfangaskýrsla og 3 tillögur til
ályktunar fyrir aðalfundinn. Kynnti
bæði ýmsar hugmyndir á umræðustigi
svo og tillögumar sjálfar.
Þeim var vel tekið og að loknum
talsverðum umræðum voru þær sam-
þykktarsamhljóða. Þær eru birtar sér
hér í blaðinu.
á var komið að ályktunum
aðalfundar. Helgi Seljan kynnti
drög að ályktunum sem lagðar höfðu
verið fyrir framkvæmdastjórn og hún
lagt blessun sína yfir. Smávægilegar
breytingartillögur komu fram og til
þeirra tekið fullt tillit. Ályktanimar
síðan bornar undir atkvæði og
samþykktarsamhljóða. Þærembirtar
hér í blaðinu nú.
Einar Aðalsteinsson flutti þessu
næst fróðlega yfirlitsræðu um vefsíðu
bandalagsins, hvað þar yrði helzt að
hafa og hvemig að gagni kæmi. Einar
20