Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Page 24

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Page 24
Kjararáðstefna Öryrkj abandalagsins Föstudaginn 17. október sl. var haldin á vegum Öryrkja- bandalagsins ráðstefna um kjaramál. Ráðstefnan stóð frá kl. 13- 16,30 og var í Borgartúni 6. Ráð- stefnuna munu hafa sótt um 80 manns. Ráðstefnustjórar voru þeir Garðar Sverrisson og Helgi Seljan. Ólöf Ríkarðsdóttir formaður Öryrkjabandalagsins var fyrst frum- mælenda, en ávarp hennar í heild hér í blaðinu. Næstur frummælenda var Ólafur Ólafsson landlæknir. Hann rakti heilsufarskannanir sem sýndu glögg- lega að heilsufar fólks færi batnandi, aðbúnaður fólks einnig batnað á öllum sviðum almennt. Einn er þó sá hópur er kannanir sýna að ekki hefur bætt stöðu sína og það eru öryrkjar, sama til hvers er litið: íbúðareignar, bílaeignar eða annars. Bilið hefur breikkað milli hinna heilbrigðu og öryrkjanna. Á tíma þessara kannana hefur öryrkjum fjölgað verulega eða frá 1978 - 3600 og til 1996 - 7800 og nú yfir 8000. Meginástæður þessa eru fækkandi atvinnutækifæri, læknar í þeim vanda við örorkumat og til- vísanir til þess að velja á milli örorku og félagsmálastofnana. Hvað teljið þið að læknar fólksins geri við þessar aðstæður? spurði landlæknir. Þá töluðu þau Sig- urbjörg Ármanns- dóttir, Ingimundur K. Guðmundsson og Árni Salómonsson sem fulltrúar neyt- enda og aðstandenda, en þeirra ávörp hér birt í blaðinu. Grétar Þorsteins- son forseti ASÍ flutti því næst framsögu um tengsl bóta al- mannatrygginga og lífeyrissjóðanna, en hans erindi er birt hér sem viðhorfsgrein í opnu blaðsins. Ogmundur Jónasson formaður B.S.R.B. var næstur á mæl- endaskrá. Lífskjör öryrkja eru hvorki vel sýnileg né skiljanleg. Við blasir flókin mynd, enda oft um frumskóg talað. Reglurnar margar og misvís- andi. Margt óþolandi í þeim.s.s. eins og það að hjúskaparstaða skuli skapa svo mikla mismunun. Öryrkinn má í raun ekki hreyfa sig svo reikniverkið raskist ekki. Heildarbætur fjögurra bótaflokka ofurlágar eða um 61 þús. svo ekki má miklu raska. Hann nefndi þann fáránleika að menn misstu bætur - laun við eignir. Hvar annars staðar myndi slíkt gilda um launafólk. Nefndi Ögmundur svo nokkur áherzluatriði: fækkun bótaflokka, hækkun grunnlífeyris, aukakostnaður fatlaðra metinn, byggt skyldi á lækn- isfræðilegu rnati. Vasapeninga nefndi hann sem sérstakan smánarblett, en skv. útreikningi vísitölu þá ættu þeir að innibera 1/3 neyzlu fólks þ.e. þessar 11.589,- kr. ættu þar að nægja. Fylkja þarf liði um ákveðnar, ein- faldar kröfur s.s. um bein tengsl launa og bóta. Öryrkjar þyrftu að eiga rétt til eiginlegra samningsviðræðna við ríkisvaldið í tengslum við gerð almennra kjarasamninga, sagði Ögmundur. Eftir kaffihlé talaði fyrstur séra Jakob Ág. Hjálmarsson frá Þjóð- málanefnd Þjóðkirkjunnar. Hann rakti kynni sín af seyðfirzkum öryrkja sem bjargaði sér sem bezt hann gat, enda andlegur jafnoki þeirra beztu. Áherzlur kirkjunnar væru á sérstæði einstaklingsins, helgi mannlegs lífs og í tengslum þar við sambandið við guð- dóminn. Hann minnti á kærleiksboð- skap Krists og gullnu regluna: “Allt sem þér viljið” o.s.frv. og “það sem þér gjörið einum þessara minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér”. Kirkjan berst gegn misskipt- ingu lífsins gæða, þolir ekki órétt- lætið, vill að engar bætur samfélagsins séu tengdar fjölskyldutekjum. Ámaði Öryrkjabandalagi íslands allra heilla og árangurs góðs í þörfum störfum. á var síðastur frummælenda Ámi Björnsson fv. yfirlæknir, en hans erindi hér birt. í almennu umræðunum á eftir tóku allnokkrir til máls. Ragnar Gunnar Þórhallsson benti á þá staðreynd að atvinnutekjur fatlaðra gætu leitt til lægri ráðstöfunartekna. Vildi að Öryrkjabandalag íslands yrði sú stofnun jafnréttismála sem í umræðu væri að stofna. Guðríður Ólafsdóttir kvað ríka tilhneigingu til þess að hegna þeim sem geta og vilja vinna. Alls ekki væri nógu vel séð fyrir því að mæta aukakostn- aði fatlaðra. Sem mest þjóðfélagsleg þátttaka fatlaðra væri samfélaginu nauð- synleg. Nefndidæmi um að við nýlega hækkun lífeyris hjá Lífeyrissjóði verzl- unarmanna hefðu öryrkjar enga hækk- un fengið. Hilmar Björgvinsson kvað nauðsynlegt að rjúfa tengsl bóta öryrkja við aldraða, svo ólrku væri þar saman að jafna. Aldraðir 24

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.