Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Page 31

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Page 31
S- Arni Salómonsson: ^Frá mínum bæjardyrum séð Árni Salómonsson Eg er öryrki og ekki nóg með það, heldur er ég einnig piparsveinn., Nú veltið þið eflaust fyrir ykkur af hverju ég sé að tilkynna ykkur þetta svona hátíðlega. Jú, það er einfaldlega vegna þess að þið þurfið að hafa þessi orð í huga þegar ég segi ykk- ur hvernig efna- hagsástandið á mínu heimili er. Fyrsta hvers mánaðar fer ég niður í banka á mínum fólksbíl. Eg fæ að heyra "■ hjá gjaldkeranum að innistæða mín í bankanum hljóði upp á 60.944 kr. Þetta er hæsta upphæðin sem ég hef „náð” út úr Tryggingastofnun rík- isins. Ég borga strax húsaleiguna af minni piparsveinaíbúð sem er í Hátúni lOa og er í eigu Hússjóðs Öryrkjabanda- lagsins. í hanafara 17.488 kr. Þar slepp ég nokkuð vel því innifalið er rafmagn, hiti og þrif á sameign. Ég veit um aðra einstaklinga sem eru í sömu sporum og ég þ.e. 75% öryrkjar og eru úti á hinum almenna leigumarkaði og þurfa þar af leiðandi að borga meira en ég í hverjum mánuði, hafið það hugfast. Þarna í bankanum reiði ég einnig fram u.þ.b. 5000 kr sem fara í tryggingar af mínum venjulega fólksbíl með 1600 vél og í 850 kílóa þyngdarflokki. Þarna er um að ræða u.þ.b. 58000 króna skuld hjá mínu tryggingafélagi, sem ég læt dreifa yfir árið. Ég borga um það bil 7000 kr. í bensín á mánuði og bið til guðs á hverjum degi að bfllinn muni ekki bila, athugið bfllinn minn er 4ra ára gamall. Sjónvarpið fær svo 1600 krónur á mánuði, sem innheimtist að vísu annan hvern mánuð, en sá ógæfu- mánuður hljóðar þá upp á 3200 kr. Póstur og sími lætur á sér kræla þriðja hvern mánuð. Því „miður” á ég marga vini og ættingja sem ég þarf að hafa samband við af og til, svona rétt til þess að láta vita að ég sé lifandi og halda mér þannig virkum innan vinahópsins og í sumum tilfellum til þess að heilla hitt kynið upp úr skónum. Þá á ég það til að fara 1000 til I500krónumyfirfastagjaldið. En ég vona að ég sé ekki glæpamaður fyrir þá sök. Ég verð að láta þau orð falla hér, að mér þykir ekki sniðugt að bíða eftir því að stjórnvöld taki af okkur öryrkjum fastagjaldið af sím- anum. Matur er mjög mikilvægur, því komst ég að þegar ég hreinlega gleymdi að borða í fyrra vegna ann- rfkis og hneig niður á sjálfum Lauga- veginum. Ég var að leysa af í sumar- afleysingum hjá Styrktarfélagi vegna að fara í sjúkraþjálfun á morg- un. Þá kosta fyrstu skiptin „aðeins” u.þ.b. 7000 krónur. Ég gæti líka orðið alvarlega veikur á morgun, þá bætist við einhver lyfjakostnaður þó að einhver afsláttur sé til staðar. A ég að fara í skóla, ein önn með bókum og öllu saman getur kostað 30 - 40.000 krónur!! Mig langar að geta fylgst með því hvaðséaðgerastíheiminum. Askrift að Morgunblaði kostar 900 krónur með öryrkjaafslætti. Ég þarf að fá mér föt, og því miður þá þarf ég í mörgum tilfellum að láta sérsauma fyrir mig, vegna þess að ég lít ekki út eins og aðrir. Einnig geta aðstæður verið neyðarlegar t.d. þegar fegurra kynið, það er að segja kven- fólkið, hefur bent mér á að ég sé í alveg eins peysu og litli bróðir. Svipmynd úr sal. lamaðra og fatlaðra, var einnig í kvöldskóla og mætti líka á æftngar á Gullna hliðinu hjá Halaleikhópnum. Eftir þennan atburð gæti ég þess að borða hollan og næringarríkan mat. Að meðaltali eyði ég 23 þúsund krón- um í þann „munað” á mánuði. Ég tek það fram að inn í þennan kostnað koma hreinlætisvörur, það er að segja sápa, uppþvottalögur, tannkrem og fleira. Þessi kostnaðarliður getur einnig hækkað ef maður býður hinu kyninu heim í mat. Þegar öllu þessu er lokið á ég eftir að meðaltali 5.356 kr. Það er nú ágætis upphæð, eða hvað? Gefum okkur að ég þyrfti einhverra hluta Síðan kemur það fyrir að vinir mínir halda veislur af einhverju tagi, má þar nefna afmælisveislur, skírnarveislur, fermingarveislur og fleira í þessum dúr. Þá, eins og allir vita þarf maður að koma með gjafir. Einnig kemur það fyrir að maður reynir að heilla hið fagra kvenkyn með blómum og fleiru, (já förum nú ekkert nán- ar út í það!!). Þegar hér er komið sögu vil ég benda á að ég reyki hvorki né drekk. Ég sést sjaldan á skemmtistöðum. En reyni, athugið reyni, að láta sjá mig í leikhúsum og kvikmyndahúsum. Þá hljótið þið að sjá að þessar 5.356 kr eru löngu flognar veg allrar veraldar. Einnig langar mig til að þið hugsið út í það að EF ég myndi hitta mína draumadís þá skerðast bætur mínar að verulegu marki! Eftir þessar vanga- veltur mínar er ég búinn að komast að því að stjórnvöld verði að hækka okkar bætur, að minnsta kosti að leyfa okkur að fylgja lágmarks-launum, annars sé ég fram á að verða pipar- sveinn í nokkur ár í viðbót!!!!!! Arni Salómonsson Erindi flutt á kjararáðstefnu ÖBI FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 31

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.