Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Síða 39
Tómas Helgason stjórnarform.:
SKÝRSLA HÚSSJÓÐS
ÖRYRKJAB AND ALAGSIN S
Frá síðasta aðalfundi hefur
Hússjóðurinn keypt nokkrar
eignir, íbúðir og hús, sem
leigð eru einstaklingum, félögum eða
fyrir sambýli. Þrjáríbúðimareru úti
á landi. Þá lauk breytingum á 1 .hæð
hússins í Hátúni
10, sem leigð var
Ríkisspítölunum
og fengust þar
fjóraríbúðirheld-
ur stærri en í hús-
unum að öðru
leyti. Verið er að
byggja tveggja
íbúða parhús á
Selfossi og verið
er að leita að hentugu húsnæði fyrir
heymarskerta, þroskahefta einstakl-
inga. Einnig er verið að leita að
hentugu húsnæði fyrir vemdað heim-
ili handa geðfötluðum, sem yrði rekið
í umsjá Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Geðhjálp hefur og leitað eftir
fyrirgreiðslu til að kaupa hús fyrir
geðfatlaða, sem njóta liðveislu á
þeirra vegum, en ekki hefur fundist
hentugt húsnæði enn.
Frá síðasta aðalfundi ÖBÍ hafa 68
fengið húsnæði hjá Hússjóðnum, þar
af 25 í Hátúnshúsunum. Þrátt fyrir
þetta hefur biðlistinn aðeins lengst og
era nú 256 á biðlista. Verðmæti eigna
sjóðsins er nú nærri 2 milljörðum, en
skuldir 1 milljarður. Með svo háu
eiginfjárhlutfalli er hægt að halda
leigu mun lægri en ella væri.
Umfangmestu framkvæmdir
Hússjóðs hafa hins vegar verið
í Hátúni 10 og lOb vegna brottflutn-
ings deilda Landspítalans, sem þar
hafa verið. í Hátúni 10 hafa farið
fram gagngerar endurbætur á mötu-
neytinu, með það fyrir augum að
íbúar geti fengið keyptan mat sem
yrði fluttur þangað á vegum Reykja-
víkurborgar. Þá hefur verið ákveðið
að breyta húsnæði því sem
öldrunardeild Landspítalans hafði í
Hátúni lOb í íbúðir, eins og upp-
haflega var gert ráð fyrir, en þó í
nokkuð öðru formi. Annars vegar
verða íbúðir stækkaðar með því að
sameina tvær í eina. Hins vegar er
ætlunin að skapa aðstöðu fyrir heim-
ilishjálp og jafnvel meiri hjálp við
nokkra íbúa í húsinu, en sú hjálp yrði
á vegum Félagsmálastofnunar
Reykjavíkur. Veruleg þörf er fyrir
slíkar íbúðir og þjónustu og hafa farið
fram viðræður um rekstur þeirra við
Félagsmálastofnun. í lok þessa árs
og byrjun hins næsta munu verða
teknar um 30 íbúðir í notkun í stað
38, eins og ætlað var fyrir tuttugu
árum. Umsjón með framkvæmd-
unum hefur umsjónarmaður hús-
eigna okkar Eggert Magnússon
byggingameistari haft, en hann
vinnur raunar mikið að þeim sjálfur,
eins og þetta væri hans eigið hús.
Hann hefur og haft umsjón með
utanhússviðgerðum og endurbótum
á brunavarnakerfi í húsunum nr. 10,
lOa og lOb, auk alls daglegs
viðhalds.
egar þessum breytingum lýkur
verða íbúðir Hússjóðsins um
540, þar af 71 utan Stór-Reykjavík-
ursvæðisins.
Að undanfömu hefurTeiknistofan
á Óðinstorgi, sem annast alla arki-
tekta- og verkfræðivinnu fyrir Hús-
sjóðinn, unnið að framhönnun á lítilli
byggð að Sléttuvegi 9, en lóðina fékk
Hússjóðurinn um leið og hann fékk
lóðina undir Oddshús. Hugmynd
stjómarinnar er að þar verði byggðar
12-20 íbúðir í tveim til þrem þjón-
ustukjörnum fyrir fatlaða einstakl-
inga, sem þurfa meiri aðstoð en
venjulega heimilisaðstoð, jafnvel að
þar geti verið sólarhringsaðstoð.
Staðurinn er mjög góður og er einn
af fáum vestan Elliðaáa, sem ekki
hefur verið ráðstafað til annarra.
Ætlunin er, að byggingarnar verði
þannig, að tiltölulega auðvelt verði
að breyta íbúðunum og aðlaga þær
mismunandi þörfum fólks fyrir þjón-
ustu, en allar verða þær að sjálfsögðu
gerðar þannig, að hreyfifatlaðir geti
notað þær.
Ekki er hægt að fjalla um hús-
næðismál fatlaðra nema víkja
að atlögum, sem gerðar eru að þeim.
Síðasta uppákoman er tillaga tveggja
þingmanna um að leggja eignarskatt
á líknarfélög og sjálfeignarstofnanir,
sem eiga og reka húsnæði fyrir
fatlaða. Þetta sýnir furðulegan
ókunnugleika á aðstæðum fatlaðra og
kjörum, auk þekkingarskorts á
starfsemi þeirra félaga og stofnana,
sem eiga húsnæði til að leigja fötl-
uðum á góðum kjörum. Slík skatt-
lagning mundi enn skerða kjör
fatlaðra, vegna þess að enginn væri
til að bera skaðann nema leigjend-
umir. Sérkenni sjálfeignarstofnana
og líknarfélaga er, að þau eru ekki
rekin með hagnaðarvon, heldur ein-
göngu til að þjóna þeim sem brýnasta
hafa þörfina og minnstu úr að spila.
Brýna nauðsyn ber til að samtökin
berjist gegn öllum tilraunum til að
auka álögur á stofnanir þeirra og að
þau standi vörð um tekjustofna sína
og láti ekki kljúfa þá. Slíkur klofn-
ingur mundi leiða til ófamaðar fyrir
þá sem síst skyldi.
Að lokum ber að þakka með-
stjórnendum og starfsfólki gott starf
á undanförnum áram. Sérstaklega
þykir mér að gefnu tilefni ástæða til
að hrósa og þakka framkvæmdastjóra
Hússjóðsins fyrir þolinmæði, kurteisi
og lipurð við leigjendur og alla
viðskiptamenn sjóðsins.
Tómas Helgason
Tómas
Helgason
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
39