Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Qupperneq 42
Táknmálstúlkar, tindrandi af gleði.
Háskólinn útskrifar
táknmálstúlka
Háskólahátíð var haldin laug-
ardaginn 25.okt. sl. og þá
voru útskrifaðir fyrstu tákn-
málstúlkarnir frá Háskóla Islands, 4
útlærðir táknmálstúikar, en 2 til við-
bótar eiga aðeins eftir að skila ritgerð-
um sínum og bætast þá í hópinn.
Hinir nýju táknmálstúlkar eru:
Arný Guðmundsdóttir, Geirlaug
Ottósdóttir, Gerður Ólafsdóttir og
Sigrún Edda Theódórsdóttir.
Af þessu tilefni bauð Samskipta-
miðstöð heyrnarlausra og heyrnar-
skertra til skemmtilegrar og hátíð-
legrar móttöku í húsnæði stöðvarinnar
í Sjómannaskólanum. Þar voru mætt-
ir auk nýju táknmálstúlkanna, starfs-
fólk stöðvarinnar, stjórnamefnd um
háskólanámið, eldri táknmálstúlkar,
fulltrúar Félags heymarlausra o.fl.
Það var Valgerður Stefánsdóttir
forstöðumaður, sem bauð gesti vel-
komna. Hún sagði þetta vera stóran
dag í sögu Samskiptamiðstöðvar, en
ekki síður stóran dag í sögu Háskóla
Islands.
Hún rakti nokkuð söguna. 1985
hefði Félag heymarlausra staðið fyrir
þjálfun í táknmálstúlkun einn vetur.
Út úr þeirri þjálfun komu 4 fyrstu
“gömlu” túlkamir. 1987 stóð Heyrn-
leysingjaskólinn fyrir 100 stunda
námskeiði, flestir þeirra sem þar vora
kenndu við skólann, enda námskeiðið
beinzt að því.
Síðan var svo túlkanám við
Þroskaþjálfaskólann þegar Júlía
Hreinsdóttir var þar við nám, þetta var
700 stunda túlkanám, en enginn túlkur
kom þó út úr því. Þegar Samskipta-
miðstöð var komið á fót var það for-
gangsverkefni hennar að koma á námi
við Háskóla íslands, sjá svo um það
og sinna svo rannsóknum á táknmáli.
Kennslan í H.í. miðuð við B.A.próf
og túlkun. Að þessu unnið með það
að markmiði að fá 15 táknmálstúlka
með þetta háskólanám.
Víða leitað fanga við undirbúning,
bæði í Bandaríkjunum og á
Norðurlöndum, námið sniðið að námi
í heimspekideild. Samkomulag um
að námið yrði tvö fræðileg ár og þriðja
árið svo hagnýtt viðbótamám. 1994
hófu svo tveir hópar nám, annar hóp-
urinn útskrifast því á næsta ári. Stefnt
að því að námið verði áfram innan
Háskólans, enda áhugi fyrir því þar,
en Samskiptamiðstöð yrði áfram að
sjá um kostnaðarhliðina.
Enn vantar táknmálstúlka hér, en
þó ber þess að geta að á næsta ári
bætast 7-9 í hópinn.
Vitnaði í Berglindi Stefánsdóttur
form. Félags heyrnarlausra sem segði
að heymarlausir byggju í eins konar
glerkúlu. Þessi áfangi nú væri þó
nokkuð góð sprunga í þessa glerkúlu.
Samfagnaði hinum nýju táknmáls-
túlkum innilega.
Þórey Torfadóttir talaði fyrir
“gömlu” túlkana. Langþráður dagur
að fá þessa viðbót. Velkomnar til
starfa, sagði Þórey og undirstrikaði
það með blómum frá þeim “gömlu”.
Sigrún Edda talaði fyrir hönd hinna
nýútskrifuðu. Þakkaði fyrir móttök-
umar. Þetta væri stór áfangi. Sagðist
vonast til að þessi námsbraut yrði
áfram við Háskólann. Heymarlausir
og heyrandi yrðu að geta mætzt á
miðri leið.
Fulltrúi Félags heyrnarlausra
Margareth Hartvedt færði fram ham-
ingjuóskir og blóm.
Fyrir hönd þeirra sem séð hafa um
táknmálstúlkanámið talaði svo Svan-
dís Svavarsdóttir. Hún minnti á að
nú væri fyrsti vetrardagur og að sum-
um setti kvíða. Þeir sem hefðu byggt
sig bezt upp yfir sumarið væra bezt í
stakk búnir til að taka á móti vetrinum.
Nýju táknmálstúlkarnir væru þar í
hóp, væru “með fulla frystikistu”.
Flutti þeim nýju ámaðaróskir. Þetta
var afar notaleg stund og nú taka
táknmálstúlkarnir nýju til óspilltra
málanna. Þeim eru heillaóskir hlýjar
sendar héðan frá okkur í Öryrkja-
bandalagi Islands sem og þeim sem
njóta.
H.S.
42