Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202036
Vinnulag við rúning er með
nokkru öðru móti á bænum Þverá
í Dalsmynni, en Þverárbændur
hafa löngum þótt verkhagir og
úrræðagóðir sem kemur sér
einkar vel þegar fáar hendur
eru til að vinna verkin. Arnór
Erlingsson, bóndi á Þverá,
tók á móti Ósk Helgadóttur,
varaformanni Stéttarfélagsins
Framsýnar, á dögunum og kynnti
verklagið við rúninginn og tók
hún helstu upplýsingar saman
í grein sem birtist á vefsíðu
Framsýnar.
Rúningur hefur staðið yfir síð-
ustu vikur á flestum sauðfjárbúum
landsins, seinni rúningur sem gjarn-
an kallast snoðrúningur. Algengasta
rúningsaðferðin sem tíðkast hér á
landi er kennd við Nýja-Sjáland og
hefur verið notuð frá því á áttunda
áratugnum. Það þótti mikil breyting
á verklagi þegar hún var tekin upp
miðað við þær aðferðir sem áður
voru notaðar þegar sauðfé var klippt
með handklippum eða hnífum einu
sinni á ári.
Nýsjálenska aðferðin algengust
„Með nýsjálensku aðferðinni eru
ærnar lagðar á malirnar og rúið
frá bringu og aftur úr. Starfið er
slítandi og reynir mikið á bakið.
Því hafa margir rúningsmenn fjár-
fest í rólu, sem þeir hanga í meðan
þeir vinna verkið og létta þannig
á stoðkerfinu. Góðir rúningsmenn
eru eldsnöggir að svipta kindinni
úr reyfinu og geta náð miklum af-
köstum yfir daginn. Eru þeir eru
gulls ígildi fyrir bændur og líklega
eins eftirsóttir í dag og góðir sláttu-
menn voru fyrir um 100 árum,“
segir Ósk í pistli sínum.
Kindunum komið fyrir á lyftupalli
Arnór segir þar að sömu vinnustell-
ingar henti ekki öllum, en hann telur
ekki algengt að bændur noti palla
við rúninginn þó vissulega sé það
til. Arnór kemur sínu fé fyrir á þar
til gerðum palli og segir fullorðna
féð oftast rólegt á pallinum, það séu
helst gemsarnir sem séu eitthvað að
sprikla til að byrja með. Þeir venjist
þó fljótt.
Byrjað er á að koma kindinni
fyrir á lyftupallinum. Síðan er bandi
smeygt aftur fyrir hornin, komið
fyrir eins konar múl og taumnum
tyllt við stoð. Vel fer um kindurnar
við rúninginn og með þessu fyrir-
komulagi er ekki verið að böggla
þeim saman, þær standa bara keikar
á sínum fjóru fótum. Til að tryggja
réttar vinnustellingar segist Arnór
byrja á því að stilla pallinn í vinnu-
hæð, en síðan geti hann bara hafið
verkið. Hann segist yfirleitt ekki
nota þetta verklag við haustrún-
inginn, en þyki þessi aðferð þægi-
legri við snoðrúninginn. „Ærnar eru
þá líka orðnar þyngri á sér og erfiðari
í meðförum,“ segir hann. /MÞÞ
LÍF&STARF
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Mikið úrval varahluta í Ifor Williams
og allar aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
Nýtt verklag við rúning á Þverá í Dalsmynni:
Kindum komið fyrir á lyftupalli
Unnið við sumarrúning á Lokastaðarétt í Dalsmynni um miðja síðustu öld.
Það er Benedikt Karlsson bóndi á Ytra-Hóli sem mundar klippurnar, en Helgi
Jóhannesson vinnumaður heldur í ána. Helgi þessi er ættaður frá Bakka á
Tjörnesi og er núverandi forstóri Norðurorku.
Mynd / Úr ljósmyndasafni gamla barnaskólans á Skógum í Fnjóskadal
Arnór Erlingsson, bóndi á Þverá, kemur sínu fé fyrir á þar til gerðum palli merð lyftubúnaði. Byrjað er á að koma kindinni fyrir á lyftupallinum. Síðan er bandi smeygt aftur fyrir hornin, komið
fyrir eins konar múl og taumnum tyllt við stoð. Pallurinn er síðan stilltur í rétta vinnuhæð áður en hafist er handa. Myndir / Aðalsteinn Árni Baldursson
Arnór Erlingsson, bóndi á Þverá, ræðir við Sigurð Ágúst Þórarinsson, bónda
í Skarðaborg í Reykjahverfi (t.v.), Tryggva Óskarsson á Þverá í Reykjahverfi
og Margréti Bjartmannsdóttur, bónda á Sandhólum á Tjörnesi. Myndin var
tekin í bændaferð.
Með nýsjálensku aðferðinni eru
ærnar lagðar á malirnar og rúið frá
bringu og aftur úr. Starfið er slítandi
og reynir mikið á bakið. Því hafa
margir rúningsmenn fjárfest í í rólu,
sem þeir hanga í meðan þeir vinna
verkið og létta þannig á stoðkerfinu.
Rúningur með rafmagnsklippum
með verklagi eins og algengast var
á árum áður.