Víkurfréttir - 30.04.2020, Side 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf.,
kt. 710183-0319
Afgreiðsla og ritstjórn:
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbæ,
sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0004,
pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 898 2222,
hilmar@vf.is
Auglýsingastjóri:
Andrea Vigdís Theodórsdóttir,
sími 421 0001,
andrea@vf.is
Útlit og umbrot:
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Hilmar Bragi Bárðarson
Dagleg stafræn útgáfa:
vf.is og kylfingur.is
Líklegt þykir að atvinnuleysi geti náð 30% eftir
hópuppsagnir í vikunni frá Icelandair, Isavia og
Fríhöfninni. Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri, segir málið gríðarlega alvarlegt.
Í frumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var
í vikunni vegna aðgerða fyrir sveitarstjórnar-
stigið er gert ráð fyrir 250 milljónum króna í
sérstakan stuðning við Suðurnes til að fylgja
eftir aðgerðaáætlun ráðherraskipaðrar nefndar
um málefni svæðisins. Efnahagsástand á Suður-
nesjum krefst sérstakra úrræða en atvinnuleysi
þar stefnir í 24% í apríl. Fyrirhuguð úrræði eru
m.a. aukin þjónusta við erlenda íbúa, efling
Reykjanes Geopark og stofnun þverfaglegs
teymis á sviði félags-, heilbrigðis- og mennta-
mála.
Kjartan Már ræddi stöðuna við Sjónvarp
Víkurfrétta. Sjá viðtalið hér til hliðar.
Atvinnuleysi í 30%
Engar sumarráðningar verða í
framlínustörfum hjá Isavia í ár
vegna áhrifa COVID-19. Það
kemur til viðbótar við þær aðgerðir
sem gripið var til í lok mars þegar
101 starfsmanni félagsins var sagt
upp störfum vegna áhrifa kórón-
uveirunnar og 37 til viðbótar boðið
áframhaldandi starf í lægra starfs-
hlutfalli. Ekki eru fyrirhugaðar
frekari aðgerðir hjá móðurfélagi
Isavia og dótturfélögunum Isavia
ANS og Isaiva Innanlands að svo
stöddu, segir í tilkynningu frá
Isavia.
Í vikunni tilkynnt að 30 starfs-
mönnum hjá Fríhöfninni, dóttur-
félagi Isavia, hefði verið sagt upp
störfum vegna áhrifa COVID-19.
Því til viðbótar verður rúmlega 100
starfsmönnum boðið áframhald-
andi starf en í lægra starfshlutfalli.
Áður en gripið var til aðgerðanna
í dag störfuðu 169 manns hjá Frí-
höfninni.
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri
Isavia, segir að óvissan um fram-
haldið í flugtengdum rekstri sé enn
afar mikil. „Við erum í þeirri stöðu
fjárhagslega að geta enn sem komið
er leyft okkur að horfa til haustsins
en ekki einungis til næstu vikna eða
örfárra mánaða.“
Engar sumarráðningar hjá Isavia
og uppsagnir hjá Fríhöfninni
– Hundruð Suðurnesja
manna sagt upp hjá Ice
landair og Fríhöfninni
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
2 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.