Víkurfréttir - 30.04.2020, Qupperneq 48
Meðal breytinga á fjárfestingaráætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2020 voru
tilfærslur á verkefnum með það fyrir augum að fara í verkefni sem myndu
kalla á fleiri vinnandi hendur og nýtast atvinnuátaki sem er í undirbúningi.
Eitt þessara verkefna eru svokallaðir Heilsustígar sem hafa lengi verið í
plönum umhverfissviðs og hófst undirbúningur á því í raun þegar settir
voru upp svokallaðir Hreystigarðar árið 2013 á fjórum stöðum, í skrúð-
görðum Keflavíkur og Njarðvíkur, Tjarnarhverfi og á Ásbrú.
„Hugmyndin með Heilsustígum er
að setja niður svokallaða ása, sem
eru stofnstígar og verða tvískiptir,
2,8 metra breiðir, malbikaðir stígar.
Þessi útfærsla svipar til stígsins
frá Eyjavöllum upp í flugstöð sem
lagður var af Reykjanesbæ og Vegar-
gerðinni árið 2015 og er geysivinsæll
og mikið notaður. Stígarnir verða
vel upplýstir með bekkjum, rusla-
tunnum og skiltum með fræðslu-
efni um hollustu og lýðheilsu. Þá
verða ásarnir einnig merktir litum
og lengdum þannig notendur sjái
vel hve langt þeir hafa farið og hve
langt þeir eiga eftir í þeirri leið sem
þeir eru á. Með því að hafa þessa
stíga svona breiða verður tryggt að
umsjón með þeim og rekstur verður
betri en á öðrum stígum bæjarins
þar sem það verður til að mynda
betra að koma tækjum fyrir sópun,
snjómokstur og hálkueyðingu. Þessir
stígar verða ekki skilgreindir sem
hjóla- og/eða göngustígar heldur er
hugmyndin sú að líkt og á stígnum
upp í flugstöð sýni notendur tillit til
hvers annars,“ segir Guðlaugur H.
Sigurjónsson, sviðsstjóri Umhverfis-
sviðs Reykjanesbæjar.
Undanfarnar vikur hafa stígar
bæjarins, sem eru í misjöfnu ástandi,
verið mikið notaðir af bæjarbúum
og munu örugglega, líkt og annað
sem breytist eftir COVID-19, verða
mikið notaðir áfram að sögn Guð-
laugs.
„Eins og sést á þessari yfirlitsmynd
(sem fylgir fréttinni) sést hvernig
þessir ásar munu tengjast Strandleið-
inni og þannig mynda góðar teng-
ingar milli hverfa. Þegar hefur verið
hafist handa og munum við gæta
þess að það verði eins lítil röskun á
stígunum eins og kostur er á meðan
framkvæmdum stendur. Frágangur
verður þó unnin í sumar með átaks-
vinnuhópum en eins og áður segir
mun þess gætt að stígarnir verði
brúklegir þrátt fyrir það, íbúum til
yndisauka,“ sagði Guðlaugur.
ÁTAK Í GERÐ OG LAGFÆRINGUM
HEILSUSTÍGA Í REYKJANESBÆ
Fleiri vinnandi hendur
nýttar á næstunni
Stígar sem fyrir eru verða margir breikkaðir og nýir lagðir.
Að ofan má sjá göngustíg sem liggur upp í flugstöð. Neðri
myndin er af stíg sem liggur í gegnum Vatnsholtið, þar hefur
Skógræktarfélag Suðurnesja gróðursett á undanförnum árum.
Þetta er mjög skemmtilegt svæði og þar verður stígurinn lagaður.
Í Njarðvíkurskógum hefur verið smíðuð brú,
í nágrenni hennar er talsverður trjágróður
og skemmtilegt svæði til að setjast niður.
Göngustígur er í gegnum svæðið. Guðlaugur
H. Sigurjónsson hjá umhverfissviði
Reykjanesbæjar stendur á nýju brúnni.
48 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.