Spássían - 2013, Side 49

Spássían - 2013, Side 49
49 að sýningin væri búin og þeir mættu klappa eða fara og hvorki dansarar né höfundur létu sjá sig. Í báðum þessum verkum gaf fjarvera manneskjunnar og óljós endir til kynna að um myndlistargjörning væri að ræða frekar en danssýningu. Þarna var ósamræmi á milli væntinga og veruleika, áhorfandinn fór á danssýningu en fannst hann vera á myndlistarsýningu. Þrátt fyrir að báðar sýningarnar væru flottar og eftirminnilegar truflaði þetta ósamræmi upplifunina nokkuð, þótt það kæmi líka skemmtilega á óvart. Í verkinu Untitled movement sýndi japanski dansflokkurinn Contact Gonzo sína eigin útgáfu af snertispuna. Snerting var grundvöllur verksins, en ekki í formi flæðandi samruna tveggja eða fleiri líkama heldur í líki slagsmála. Dansararnir slógu hver á annan, stukku hver á annan og drógu hver annan um sviðið. Öll samskiptin voru ofbeldisfull en þó innan ákveðins ramma. Eftir að hafa nýverið horft á nokkuð mörg MMA myndbönd kom hugtakið bardagaíþrótt frekar upp í hugann en danssýning. Red Herring eftir Diederik Peeters var aftur á móti greinilega list. Peeters lék sér á snilldarlegan hátt með leikhúsformið og má segja að verk hans hafi verið vel kóreógraferað útvarpsleikhús. Efni og sviðsetning báru vott um skemmtilega uppátektarsemi og allt það sem eyrað nam var hrein snilld. Framsetning sýningarinnar væri fullkomin fyrir barnasýningu, alltaf eitthvað óvænt og skemmtilegt að gerast. Verkið var gott leikhúsverk en hvort það var dans fer eftir því hvernig dans er skilgreindur. Allar sýningarnar sem nefndar hafa verið hér á undan voru áhugaverðar og eftirminnilegar og því má segja að það skipti ekki máli hvað þær séu kallaðar. Áhorfandinn ætti að mæta á sýningar með opinn huga og forvitnina eina að vopni. Það verður samt ekki hjá því komist að áhorfandinn hafi einhverjar væntingar til þess sem hann sér, og of stór frávik frá væntingum, geta haft truflandi áhrif á upplifun af verkum þó að þau geti líka komið ánægjulega á óvart. Í nútímasamfélagi hefur áhorfandinn úr svo miklu að moða að hann hefur enga ástæðu til að fara á viðburði sem hann vill ekki sjá. Rétt eins og börnin sem velja aðeins það sem þau þekkja velja áhorfendur að sjá það sem þeir vita að þeim á eftir að líka við - nema þeir hörðustu í listabransanum. Hin eiginlega merking á bak við hugtakið listdans getur því aðeins breyst og stækkað að sameiginlegur skilningur náist á milli listamanna og áhorfenda um þróun hugtaksins. Þessi sameiginlegi skilningur verður þó varla til nema lifandi umræða um listformið sé í gangi, ekki aðeins á milli listamannanna sjálfra heldur líka listamanna og áhorfenda. Þegar litið var yfir áhorfendahópinn á Reykjavík dansfestival sást að þar var samankominn frekar einsleitur hópur listáhugafólks frekar en breiður hópur dansnemenda, danskennara og annarra þeirra sem áhuga hafa á dansi. Þetta er kannski eðlilegt því danshátíðin leggur áherslu á framsækni í listsköpun og það er þekkt staðreynd að nýjar nálganir í listum ná sjaldnast almennri viðurkenningu fyrr en eftir áralanga gerjun og síun. En það má líka spyrja sig hvort fjarvera þeirra sem mestan hafa áhugann á dansinum í sínu hefðbundna formi stafi af því að þeir eru hræddir um að fá kjöt þegar þeir ætla að fá fisk. 1 „Færri komast að en vilja“, Fréttablaðið, 31. ágúst 2013. Red Herring eftir Diederik Peeters

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.