Spássían - 2013, Page 50

Spássían - 2013, Page 50
50 egar ég sest niður til að þýða viðtal við chutney- meistara að nafni Drake Page er verið að fjalla um kryddsultu (chutney), súrkrás (pikkles) og gerjað tófú í útvarpinu hér í New York. Pikkles er mjög vinsælt og pæklunarsérfræðingar með exótískar súrkrásir og sultur eru orðnir nær klisjukennd ímynd svokallaðrar matgæðinga-menningar (foodie-culture). Sjálfbær lítil þorp eru fyrirmyndin að umhverfisvænum lífsstíl, sem sífellt stækkandi hópur New York-búa reynir að aðlaga stórborgarlífi sínu. Ég get verslað allt í matinn á bændamörkuðum víðs vegar um borgina. Jafnvel hér í Bushwick, sem var iðnaðarhverfi fyrir fimm árum og þar sem góðar líkur voru á skotbardaga eftir sólsetur, má nú finna nokkra bændamarkaði og grænmetisgarða fyrir almenning. Heimavinnandi feður með börn hangandi utan á sér í afrískum burðarsjölum versla lífræn matvæli og hunang sem búið er til á húsþökum í Brooklyn og Bronx. Þunnar listakonur og -menn skríða út úr vinnustofum sínum, klædd einkennisbúningi þunnra listaspíra (gallastuttbuxur, bolir með víðu hálsmáli, skítugir merkjalausir strigaskór), smakka ógerilsneydda osta og ræða lífsskilyrði dýranna sem lögðu þá til. Þetta er dásamleg þróun og hinir bjartsýnu vonast til að snúa megi þróun matarmenningar Vesturlanda í átt frá ömurlegum aðstæðum húsdýra og slæmu heilsufari þeirra er unna unnum matvörum. Matarsaga okkar segir margt um okkur. Að leyfa pyntingar á fólki skemmir karakter þjóðar, sagði Barack Obama árið 2009.1 Hann hefði getað bætt því við að þegar leyfð er hryllileg meðferð á dýrum, og fyrirtækjum leyfist að fæða okkur á eiturefnum og næringarlausum „mat“, breytir það einnig karakter okkar og lífsgæðum. Skilningur á því hversu vel matarvenjur okkar lýsa karakter, hvort sem er karakter þjóðar, einnar persónu, eða tímabils, hefur löngum verið til staðar í bókmenntum. Matarlýsingar eru notaðar til að auka skilning okkar eða, eins og ég las í Spássíunni,2 til að veita okkur hvíld frá æsispennandi atburðarás. Heili okkar nærist af hvíldinni á meðan persónur Enid Blyton nærast á niðursoðnum ávöxtum, sem segir okkur líka ýmislegt um tíðarandann. Þarna hafa stórfyrirtæki sannfært Önnu, sem sá um matargerðina, að best væri að éta dýrkeyptar unnar dósamatvörur. Í dag myndi Anna frá New York vita að hollara og ódýrara (og léttara) væri að nýta það sem til staðar er í nærumhverfinu; búa til þangsalat og drekka nokkur hrá mávaegg, þar sem fjórmenningarnir fela sig í hellum við sjávarsíðuna, íklædd gúmmísóluðum skóm (með óforskammaða smyglara á hælunum). Í bókinni Miðnæturbörn notar Salman Rushdie fjölskyldusögu, og sögu einstaklinga innan fjölskyldunnar, til að lýsa sögu þjóðar sem er sundruð í þrjár. Hann notar líka chutney til að tengja söguna við eitthvað jarðneskt sem stendur utan við hugsjónir iðnæturbörn, kryddsulta og matarmenning M Eftir Þórdísi Aðalsteinsdóttur Þ yfirlesið

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.